Báðust afsökunar á niðrandi hljóðkækjum Magnús Jochum Pálsson skrifar 23. febrúar 2026 11:29 John Davidson og Robert Aramayo á BAFTA-verðlaunahátíðinni í gærkvöldi. Hljóðkækir Davidson, sem er með Tourette, komu mörgum í uppnám. Getty Kynnir BAFTA-hátíðarinnar bað gesti afsökunar á óviðeigandi orðfæri eftir að John Davidson, þekktasti baráttamaður Breta fyrir Tourette-heilkenninu, hrópaði niðrandi orð á hátíðinni. Leikarinn Robert Aramayo, sem leikur Davidson í nýrri mynd, kom honum jafnframt til varnar. Hinn skoski John Davidson hefur barist fyrir vitundarvakningu um Tourette-heilkennið í mörg ár og er umfjöllunarefni bresku myndarinnar I Swear (2025). Leikarinn Robert Aramayo leikur Davidson í myndinni og var valinn besti aðalleikarinn á BAFTA-hátíðinni fyrir leik sinn. Davidson var meðal áhorfenda á hátíðinni og hafði ekki stjórn á hljóðkækjum sínum, eins og fylgir heilkenninu, þannig að ýmis óviðeigandi orð heyrðust upp á við. Þar á meðal heyrðist hann hrópa „haltu fokking kjafti“ og „fokkaðu þér“. „Einhverjir áhorfendur kynnu að hafa heyrt gróft og niðrandi orðfæri á BAFTA-kvikmyndahátíðinni 2026. Þetta kom til vegna ósjálfráðra hljóðkækja sem tengjast Tourette-heilkenni og var ekki viljandi. Við biðjum alla þá sem sárnaði orðfærið afsökunar,“ sagði talsmaður Breska ríkisútvarpsins um málið. Komu Davidson til varnar Þegar hörundsdökku leikararnir Michael B. Jordan og Delroy Lindo voru á sviðinu til að veita verðlaun fyrir bestu hljóðhönnun heyrðist n-orðið og kom þeim greinilega úr jafnvægi. „Þið kynnuð að hafa heyrt gróft orðalag í bakgrunninum. Þetta getur verið hluti af því hvernig Tourette-heilkenni birtist fyrir suma og myndin kannar þann reynsluheim. Takk fyrir skilninginn og fyrir að skapa virðingarríkt rými fyrir alla,“ sagði leikarinn Alan Cumming, sem var kynnir hátíðarinnar, um Davidson og I Swear. Alan Cumming var kynnir á hátíðinni.Getty Seinna um kvöldið brást hann aftur við hrópunum. „Tourette-heilkenni er fötlun og kækirnir sem þið heyrðuð í kvöld eru óviljandi, sem þýðir að manneskjan með Tourette-heilkennið hefur enga stjórn á orðfæri sínu. Við biðjumst afsökunar ef þetta særði ykkur í kvöld.“ Fyrrnefndur Aramayo kom Davidson svo til varnar eftir hátíðina þegar blaðamaður spurði hann út í móðgandi orðin. Robert Aramayo hlaut verðlaun bæði fyrir besta leik í aðalhlutverki og sem rísandi stjarna.Getty „Fyrir það fyrsta eru þetta kækir. Hann fær taugakippi. Við verðum að sýna því skilning. Hvernig við skynjum Tourette-heilkenni er sameiginleg ábyrgð. Þetta eru ekki klúryrðahróp. Þetta er ekki meinyrt. Þetta er Tourette. Þetta eru kækir. Ef þetta getur leitt til dýpri skilnings á Tourette, og kvikmyndir eru hluti af því samtali, þá er það frábært,“ sagði Aramayo. Seinni hluta hátíðarinnar hættu hrópin en það virðist vera vegna þess að Davidson yfirgaf vettvanginn. Það var víst hans eigin ákvörðun en ekki að beiðni Bresku akademíunnar. Tourette-heilkenni er lýst svo á vef Tourette-samtakanna á Íslandi: „Tourettesjúkdómur (TS, e. Tourette syndrome) er taugasjúkdómur, sem stafar af ójafnvægi á boðefnaflæði í heila. Helstu einkenni eru svonefndir kækir, sem eru tilgangslausar en óviðráðanlegar endurteknar hreyfingar eða hljóð. Einnig fylgja TS oft áráttu- og þráhyggjueinkenni (OCD) og einkenni athyglisbrests og ofvirkni (ADHD). Tíðni TS er um 0,6%. Tourette er arfgengur sjúkdómur sem ekki er hægt að lækna, en oftast er hægt að halda einkennum í skefjum með lyfjum, þótt þess gerist ekki alltaf þörf.“ Skammast yfir lélegri afsökunarbeiðni Ekki hafa þó allir tekið vel í orðalag Davidson og viðbrögð akademíunnar í málinu. Bandaríski leikarinn Jamie Foxx skrifaði um málið á samfélagsmiðlum, sagði það „óásættanlegt“ og að Davidson „hafi meint þetta“. Bandaríski íþróttablaðamaðurinn Jemele Hill tjáði sig einnig á samfélagsmiðlum um málið: „Svart fólk á bara að samþykkja það að vera niðurlægt og ómennskað svo að öðrum líði ekki illa.“ „Það gerir mann brjálaðan að fyrstu viðbrögðin voru ekki hávær og algjör afsökunarbeiðni til Delroy Lindo og Michael B. Jordan. Móðgunin í þeirra garð er aðalmálið. Ástæðan fyrir rasísku níðyrðinu skiptir ekki máli,“ sagði Wire-leikarinn Wendell Pierce. Bretland Heilbrigðismál BAFTA-verðlaunin Hollywood Mest lesið Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Lífið Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Lífið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Lífið Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Lífið Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum Tónlist Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Lífið Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Lífið „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Lífið Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Lífið Fleiri fréttir Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Sjónvarp Símans opnar veitu helgaða bresku sjónvarpsefni Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Af TikTok á skjáinn Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Stjörnurnar syngja inn haustið Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Rödd Eyrnaslapa og Optimusar Prime er öll Tim Curry er látinn Hasarmyndahjón heiðursgestir á RIFF Áhrifamikil rómantísk gamanmynd fær framhald Harington tekur við af uppteknum Hoult Ástin sem eftir er tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs Meghan snýr aftur á skjáinn Etur kappi við Obama og Reynolds Bautista hleypur í skarðið Depp í viðræðum um endurkomu sem Jack Sparrow Bestu hlutverk Hayden Panettiere Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Sjá meira
Tourettesjúkdómur (TS, e. Tourette syndrome) er taugasjúkdómur, sem stafar af ójafnvægi á boðefnaflæði í heila. Helstu einkenni eru svonefndir kækir, sem eru tilgangslausar en óviðráðanlegar endurteknar hreyfingar eða hljóð. Einnig fylgja TS oft áráttu- og þráhyggjueinkenni (OCD) og einkenni athyglisbrests og ofvirkni (ADHD). Tíðni TS er um 0,6%. Tourette er arfgengur sjúkdómur sem ekki er hægt að lækna, en oftast er hægt að halda einkennum í skefjum með lyfjum, þótt þess gerist ekki alltaf þörf.“
Bretland Heilbrigðismál BAFTA-verðlaunin Hollywood Mest lesið Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Lífið Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Lífið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Lífið Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Lífið Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum Tónlist Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Lífið Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Lífið „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Lífið Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Lífið Fleiri fréttir Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Sjónvarp Símans opnar veitu helgaða bresku sjónvarpsefni Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Af TikTok á skjáinn Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Stjörnurnar syngja inn haustið Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Rödd Eyrnaslapa og Optimusar Prime er öll Tim Curry er látinn Hasarmyndahjón heiðursgestir á RIFF Áhrifamikil rómantísk gamanmynd fær framhald Harington tekur við af uppteknum Hoult Ástin sem eftir er tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs Meghan snýr aftur á skjáinn Etur kappi við Obama og Reynolds Bautista hleypur í skarðið Depp í viðræðum um endurkomu sem Jack Sparrow Bestu hlutverk Hayden Panettiere Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Sjá meira