Varnarbarátta Úkraínu og Rússlandsskatturinn Pawel Bartoszek skrifar 24. febrúar 2026 08:01 Fjögur ár eru nú liðin frá því að allsherjarinnrás Rússlands inn í Úkraínu hófst. Stríð sem Rússar áformuðu að myndi standa yfir í þrjá sólarhringa en vanmátu algerlega hetjudáð og baráttuþrek úkraínsku þjóðarinnar. Á þessum fjórum árum hefur Úkraína gengið í gegnum hluti sem engin þjóð á að þurfa að þola: stríðsglæpi á óbreyttum borgurum, stórfelld og skipulögð rán á úkraínskum börnum og nú síðast: allsherjarinnrás á orkuinnviði Úkraínu, þar sem vetrarfrosti er beitt til að gera líf óbreyttra borgara óbærilegt. Við Íslendingar höfum reynt að leggja okkar af mörkum. Til dæmis var nýlega tilkynnt um 800 milljóna framlag til kaupa á rafstöðvum og svipuðu eins til að bæta loftvarnir Úkraínu. Styðjum tífalt minna en Danir Ef það er rétt að gagnrýna stuðning Íslands við Úkraínu þá er það helst fyrir það að hann er mjög lágur samanborið við nágrannaríki okkar. Er þá átt við þann mælikvarða sem við helst viljum nota, höfðatöluútreikninginn. Á árunum 2022-2025 námu framlög Dana á hvern íbúa rúmlega 1700 Evrum en Íslendinga 170 Evrum. Framlög Dana eru sem sagt tífalt hærri. Framlög Íslendinga á þessum tíma jafngilda því 6 þúsund kr. á mann á ári. Það eru nokkurn veginn tveir Hlöllabátar, með gosi. Rússlandsskattur Í raun er samt rangt að tengja þessi framlög við Úkraínu í almennri umræðu. Þessi framlög eru ekki tilkomin vegna aðgerða Úkraínu heldur vegna aðgerða Rússlands. Réttara væri að kalla þau “Rússlandsskatt”. Ef Rússar hefðu ekki reynt að lama orkukerfi Úkraínu með loftárásum þyrftum við ekki að kaupa neyðarrafstöðvar til að koma í veg fyrir að almenningur myndi frjósa í hel. Úkraínumenn eiga skilið frið Enginn þráir frið meira en úkraínska þjóðin. Því miður hefur hins vegar síðasta ár verið ár glataðra tækifæra. Tilraunir til að þvinga Úkraínu til uppgjafar eru ekki rétt uppskrift að friði. Friður mun ekki komast á þegar að samviska Pútíns segir honum að nú sé komið nóg af mannfalli. Sú stund mun aldrei koma. Friður kemst á þegar Pútín sannfærist um að honum verður ekki meira ágengt á vígvellinum. Til þess þarf Úkraína að geta varið sig. Höfundur er þingmaður Viðreisnar og formaður utanríkismálanefndar Alþingis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Pawel Bartoszek Utanríkismál Viðreisn Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Af hverju tala þau svona? Guðjón Heiðar Pálsson Skoðun Vægi Íslendinga gæti jafnast á við 15 milljónir Þjóðverja Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Mörk réttarríkisins og friðhelgi einkasamskipta Erna Bjarnadóttir Skoðun Mesti árangur í útlendingamálum í 9 ár Þorbjörg S Gunnlaugsdóttir Skoðun Mætti sleppa því að blekkja heimilisfólkið Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Hver gætir barnanna þegar kerfið bregst? Inga Sæland Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja Skoðun Skoðun Skoðun Vægi Íslendinga gæti jafnast á við 15 milljónir Þjóðverja Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Af hverju tala þau svona? Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Hver gætir barnanna þegar kerfið bregst? Inga Sæland skrifar Skoðun Mörk réttarríkisins og friðhelgi einkasamskipta Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Samfélagsmiðlar eru ekki barnaleikur Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Mesti árangur í útlendingamálum í 9 ár Þorbjörg S Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Mætti sleppa því að blekkja heimilisfólkið Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmæti góðrar vinnustaðamenningar Hólmfríður Jennýar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hélt fyrst að fréttin væri um Sigurð Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Sjá meira