Magnús Kjartan leggur brekkusönginn á hilluna Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 23. febrúar 2026 21:27 Magnús Kjartan hefur stýrt brekkusöng í Eyjum með glæsibrag undanfarin ár. Tónlistarmaðurinn Magnús Kjartan Eyjólfsson aðalsöngvari Stuðlabandsins mun ekki stýra brekkusöngnum í Eyjum í ár líkt og undanfarin ár. Hann segist ekki hafa fundið fyrir neistanum sem til þarf á síðasta ári og því hafa ákveðið að kalla þetta gott í Eyjum, þó hann sé alls ekki hættur í tónlistinni.
Magnús Kjartan greinir frá þessu í færslu á samfélagsmiðlum. Hann hefur stýrt söngnum síðan árið 2021 líkt og honum einum er lagið en hann hefur um árabil verið eftirsóttur trúbador og skemmt landsmönnum um land allt með hljómsveit sinni Stuðlabandinu. Magnús greindist með hvítblæði árið 2024 en Vísir greindi frá því í fyrra að hann væri í sjúkdómshléi. Lítur yfir farinn veg á tímamótum „Ég vil byrja á því að þakka öllum vinum mínum á facebook fyrir að hafa gefið sér tíma til að senda mér línu á afmælisdaginn minn á laugardaginn, mér þykir virkilega vænt um það. Á öllum slíkum tímamótum í lífi hvers manns er gott að líta yfir farinn veg og meta hvaða áhrif það mun hafa á framtíðina, hvar ástríða manns liggur og hvað vill maður gera í lífinu,“ skrifar Magnús á Facebook. Hann segir að sín ástríða hafi langi verið í tónlist. Hann hafi verið svo heppinn að ná langt á því sviði og náð flestum af þeim markmiðum sem hann hafi sett sér í geiranum og gott betur en það. „Það eru ekki allir sem hafa farið af stað með drauma um að spila á stærstu sviðum landsins og náð þeim og fengið svo nokkur bónusverkefni uppí hendurnar. En allir verða að þekkja sinn vitjunartíma og vita hvenær er kominn tími á að eitthvað annað taki við.“ Fann að þetta var orðin meiri kvöð Magnús rifjar upp að fyrir nokkrum árum hafi hann fengið vægast sagt krefjandi og stórt verkefni við ansi undarlegar aðstæður, það hafi verið að stjórna brekkjusöng á Þjóðhátíð Vestmannaeyja. Vísar Magnús þar til þess þegar hann tók við af Ingó Veðurguð í brekkusöngnum, rúmum mánuði fyrir þjóðhátíð á sínum tíma 2021. „Ákvað ég að leggja minn feril að veði og slá til enda sjálfsagt draumagigg fyrir hvern þann sem hefur lifibrauð sitt af því að spila á gítar og syngja. Hef ég sinnt þessu verkefni af metnaði og stolti lagt mig allan fram við að gera þetta vel og náði það sjálfsagt hámarki árið 2024 þegar ég náði að stjórna brekkusöngnum í miðri krabbameinsmeðferð,“ skrifar Magnús. „Í undirbúningi síðasta brekkusöngs fann ég hins vegar ekki fyrir þessum neista sem á að einkenna verkefni af slíkri stærðargráðu og fannst meiri kvöð en ánægja að klára verkefnið. Tilfynningin segir mér því að láta staðar numið í bili og leggja verkefnið í hendur einhverra sem finna ennþá neistann og langar að gera þetta af heilum hug. Ég sagði einhvertíman að ef ég hefði ekki ánægju af þessu lengur þá myndi ég hætta og ég ætla að standa við það.“ Magnús segist að sjálfsögðu vilja þakka Eyjamönnum, þjóðhátíðargestum og öllum velunnurum fyrir samfylgdina. Hann þakkar jafnframt fjölskyldu sinni og Stuðlabandinu fyrir endalausa þolinmæði og skilyrðislausan stuðning í gegnum allt saman. „Og þá sérstaklega henni Sigríði minni, án þess hefði þetta aldrei gengið upp. Ég er þó alls ekki hættur í tónlistinni, þar á ég nóg eftir. Takk fyrir mig.“
Þjóðhátíð í Eyjum Vestmannaeyjar Tímamót Tónlist Ástin og lífið Tengdar fréttir Magnús Kjartan Eyjólfsson stýrir Brekkusöngnum Magnús Kjartan Eyjólfsson, forsöngvari og gítarleikari Stuðlabandsins, mun stýra Brekkusöngnum á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í ár. Brekkusöngurinn fer fram árlega á sunnudagskvöldi Þjóðhátíðar á stóra sviðinu í Herjólfsdal, sem verður þann 1. ágúst næstkomandi. 13. júlí 2021 09:02 Brekkusöngurinn: „Það er sannur heiður að fá þetta verkefni“ Magnús Kjartan Eyjólfsson, forsöngvari og gítarleikari Stuðlabandsins mun leiða brekkusönginn á Þjóðhátíð í ár. Hann er góðkunnur hátíðinni en hefur komið þar fram síðan 2016 og stýrði brekkusöngnum í fyrra fyrir tóma brekkuna. 24. júní 2022 12:30 Draumur rættist í gær: „Það væri nú gaman að prufa þetta einu sinni með fólki“ Þetta var algjör heiður, segir Magnús Kjartan Eyjólfsson um brekkusönginn sem hann stýrði í fyrsta sinn í gær. Hann segir upplifunina stórkostlega og væri tilbúinn til að stýra söngnum aftur að ári. 2. ágúst 2021 13:00 Mest lesið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Menning Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Lífið Fleiri fréttir Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Sjá meira
Magnús Kjartan Eyjólfsson stýrir Brekkusöngnum Magnús Kjartan Eyjólfsson, forsöngvari og gítarleikari Stuðlabandsins, mun stýra Brekkusöngnum á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í ár. Brekkusöngurinn fer fram árlega á sunnudagskvöldi Þjóðhátíðar á stóra sviðinu í Herjólfsdal, sem verður þann 1. ágúst næstkomandi. 13. júlí 2021 09:02
Brekkusöngurinn: „Það er sannur heiður að fá þetta verkefni“ Magnús Kjartan Eyjólfsson, forsöngvari og gítarleikari Stuðlabandsins mun leiða brekkusönginn á Þjóðhátíð í ár. Hann er góðkunnur hátíðinni en hefur komið þar fram síðan 2016 og stýrði brekkusöngnum í fyrra fyrir tóma brekkuna. 24. júní 2022 12:30
Draumur rættist í gær: „Það væri nú gaman að prufa þetta einu sinni með fólki“ Þetta var algjör heiður, segir Magnús Kjartan Eyjólfsson um brekkusönginn sem hann stýrði í fyrsta sinn í gær. Hann segir upplifunina stórkostlega og væri tilbúinn til að stýra söngnum aftur að ári. 2. ágúst 2021 13:00