Sólveig Anna furðar sig á kjörum borgarstjóra Jakob Bjarnar skrifar 24. febrúar 2026 10:33 Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og Sólveig Anna sem telur laun borgarstjóra vera komin út yfir öll velsæmismörk. vísir/arnar Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, byrjaði daginn á að skoða hversu mikið borgarstjóri Reykjavíkur er með í laun og menn verða svo bara að meta það hversu góð byrjun á deginum það er. „
Þvílík sturlun. Svo þegar þetta fólk lætur af embætti þykist það aldrei hafa tekið sér frí, voðalegur bömmer, og fær því með sér sem kveðjugjöf orlofsgreiðslur upp á margar milljónir eins og ekkert sé,“ skrifar Sólveig Anna og birtir mynd af rétt tæplega þriggja milljóna króna launum borgarstjóra. Vísir gerði nýverið úttekt á launum bæjarstjórnarmanna og víst er að þar er eftir nokkru að slægjast fyrir þá sem vilja halda eigin heimilisbókhaldi réttu megin við núllið. Borgarfulltrúar í Reykjavík eru með langhæstu grunnlaunin meðal kjörinna fulltrúa á höfuðborgarsvæðinu en bæjarstjórar sveitarfélaganna sex eru með á bilinu tvær til þrjár milljónir króna í laun og aðrar fastar greiðslur á mánuði. „Svo er fólk undrandi á því að ekkert gangi að hemja launaskrið og ná niður verðbólgu – pólitísk yfirstétt fer á undan með ömurlegu fordæmi og skammtar sér milljónir eins og ekkert sé á meðan hún ræður ekki einu sinni við að tryggja sómasamlega grunnþjónustu,“ segir Sólveig Anna og spyr hvaða hvata þessi yfirstétt hafi til að sýna ráðdeild og hún svarar sér sjálf: „Bókstaflega enga.“ Sólveig Anna segir þessa yfirstétt komast upp með hvað sem er enda eigi ráðdeildin aðeins að vera hjá láglaunafólkinu sem „starfar í fjársveltum umönnunarkerfunum sem enginn þykist bera ábyrgð á.“ Ef marka má þessi ummæli Sólveigar Önnu er ljóst að hún verður tilbúin í kjaraviðræður, en eins og fram hefur komið gæti samningum verið sagt lausum í haust vegna þess að verðbólgumarkmið sem ríkisstjórnin setti sér hafa ekki náðst.
Kjaramál Rekstur hins opinbera Reykjavík Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Erlent Fleiri fréttir Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Sjá meira