„Ægilega hamingjusamur“ með milljarðana frá Kerecis Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 24. febrúar 2026 12:21 Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, er kátur með að ríkissjóður fái að óbreyttu meira í kassan en áætlanir gerðu ráð fyrir. Vísir/Ívar Fannar Það er gríðarlegt ánægjuefni að fjörutíu milljarða skattgreiðsla frá Kerecis komi að óbreyttu til með að snúa við rekstri ríkissjóðs á þessu ári, að sögn fjármálaráðherra. Ekki var gert ráð fyrir tekjunum í fjármálaáætlun en ráðherra gerir ráð fyrir að peningarnir nýtist til að ná betra jafnvægi í ríkisreksturinn.
Vestfirska frumkvöðlafyrirtækið Kerecis mun í haust greiða um 40 milljarða króna eingreiðslu í ríkissjóð Íslands, en um er að ræða skattgreiðslu vegna kaupa danska móðurfélagsins Coloplast á hugverkaréttindum dótturfyrirækisins, Kerecis. Morgunblaðið greindi frá þessu í morgun, en þar segir að upphæðin verði greidd í einni greiðslu í stað þess að dreifa henni yfir nokkurra ára tímabil líkt og heimild er fyrir. Þessi eina greiðsla leiðir að óbreyttu til viðsnúnings í rekstri ríkissjóðs ef aðrar forsendur fjárlaga þessa árs ganga eftir. Fjárlög gera ráð fyrir 28 milljarða halla í ár, en séu milljarðarnir frá Kerecis teknir með í reikninginn, ætti að verða 12 milljarða afgangur af rekstri ríkissjóðs. Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir að ekki hafi heldur verið gert sérstaklega ráð fyrir þessum tekjum í fjármálaáætlun til næstu ára. „Þetta kemur inn sem splunkunýtt. Við gerum almennt ekki ráð fyrir svona tilviljanakenndum tekjum. Það er líka þannig, alveg eins og hefur komið fram, að það er réttur þeirra sem fá svona tekjur að dreifa skattinum á lengra tímabil, og þess vegna var ekki gert ráð fyrir þessum,“ segir Daði. En það liggur nánast beinast við að spyrja, hvað ætlið þið að gera við peninginn? Daði hlær og segir ljóst að fjármagnið muni koma sér vel fyrir ríkissjóð. „Það þarf í sjálfu sér ekki að útskýra það fyrir fólki að ríkissjóður hefur verið rekinn með halla um alllangt skeið og það er einlægt markmið þessarar ríkisstjórnar að stoppa það. Við getum ekki fjármagnað velferðina með lánum til barnanna okkar. Þannig við munum nú kannski bara fyrst og fremst nýta þetta til þess að ná betra jafnvægi í ríkisreksturinn,“ svarar Daði. Samgöngubætur á Vestfjörðum ekki undanskildar Það styrki enn frekar stöðu ríkissjóðs til að ráðast í innviðauppbyggingu, meðal annars á Vestfjörðum. Mikið hefur verið kallað eftir því að ráðist verði í samgöngubætur, en Arna Lára Jónsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur til að mynda ýjað að því að tekjurnar vegna sölu Kerecis mætti nýta til innviðauppbyggingar á svæðinu þar sem verðmætin urðu til. „Það er því skoðunarvert að líta til þessara nýju skatttekna sem hluta mögulegs fjármögnunar fyrir nauðsynlegar vegabætur og aðra innviðauppbyggingu á Vestfjörðum,“ skrifaði Arna Lára í aðsendri grein á Vísi fyrr í þessum mánuði. Aðspurður hvort það komi til greina að eitthvað af þessum peningum verði eyrnamerktir samgöngubótum á Vestfjörðum, svarar Daði því ekki beint. „Það er raunverulega þannig að þessi ríkisstjórn hefur lagt mikla áherslu á uppbyggingu innviða og stærstu viðbæturnar sem voru í síðustu fjármálaáætlun, frá fjármálaáætlunum fyrri ríkisstjórnarinnar, voru annars vegar inn í heilbrigðiskerfið og hins vegar inn í samgöngufjárfestingar. Og alveg eins og samgönguáætlunin sem núna liggur fyrir þinginu gerir ráð fyrir, þá erum við að einblína mjög á fjárfestingu í innviðum úti á landi og Vestfirðir eru þar svo sannarlega engin undantekning,“ svarar Daði. Ríkisstjórnin sé meðvituð um mikilvægi samkeppnishæfni Haft er eftir Guðmundi Fertram, stofnanda Kerecis, í Morgunblaðinu að skatttekjur ríkisins hafi aukist mikið með hröðum vexti atvinnulífsins á Vestfjörðum á undanförnum árum, sem endurspegli styrk og samkeppnishæfni atvinnulífsins á svæðinu. Er þetta ekki til marks um að það þurfi að ráðast jafnvel í frekari aðgerðir til að efla samkeppnishæfni og sömuleiðis varast að fara í aðgerðir sem gætu grafið undan henni? „Ég held að það sé alveg hárrétt hjá honum og ég held að þrátt fyrir að við getum örugglega verið sammála um það við Guðmundur Fertram að það megi gera meira, þá er Kerecis dæmi um og sýnir að fjárfestingar í nýsköpun og fjárfestingar í rannsóknum eru undirstaða verðmætasköpunar til lengri tíma litið. Og um þetta er ríkisstjórnin svo sannarlega meðvituð,“ svarar Daði. Í því samhengi bendir hann til að mynda á atvinnustefnu stjórnvalda sem hefur verið í vinnslu sem byggi „nákvæmlega á þessum prinsippum“ eins og Daði orðar það. „Ég er bara ægilega hamingjusamur með þetta og óska Kerecis innilega til hamingju og því fólki öllu sem stóð að þessu, þetta er frábær árangur,“ segir Daði. Líkt og lesa má úr ársreikningi Coloplast jafnast skattgreiðslan, sem fellur til á Íslandi vegna yfirfærslu hugverkaréttar frá Kerecis á Íslandi til Coloplast í Danmörku, út sem kostnaður á móti tekjum gagnvart skattinum sem móðurfyrirtækið greiðir í Danmörku.
Ísafjarðarbær Höfundar- og hugverkaréttur Nýsköpun Skattar, tollar og gjöld Rekstur hins opinbera Mest lesið Hörður boðar óvænt til starfsmannafundar Viðskipti innlent Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Viðskipti innlent Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Viðskipti innlent Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Atvinnulíf Jafnrétti í stjórnum skilyrði fyrir Framúrskarandi fyrirtæki Framúrskarandi fyrirtæki Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Viðskipti innlent Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Samherji selur Margréti til Færeyja Viðskipti innlent Spá óbreyttum vöxtum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Hörður boðar óvænt til starfsmannafundar Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Sjá meira