Þá var hægt að lækka fargjöld um 51 prósent Kristján Már Unnarsson skrifar 25. febrúar 2026 14:15 Flugvél Íslandsflugs, TF-ELK, af gerðinni ATR 42, á flugi undan suðurströnd Íslands sumarið 1998 þegar samkeppni ríkti á helstu leiðum innanlands. Mýrdalsjökull í baksýn og Eyjafjallajökull til vinstri. Framan við vélina sjást Sólheimajökull og Pétursey. Baldur Sveinsson Þegar sérleyfiskerfi í innanlandsflugi var afnumið árið 1997 hóf Íslandsflug beina samkeppni við Flugfélag Íslands á öllum helstu leiðum innanlands. Flugfélagið svaraði samkeppninni með því að lækka fargjöldin um 51 prósent.
Í þætti Flugþjóðarinnar á Sýn+ er stiklað á stóru í sögu innanlandsflugsins og meðal annars rakin saga þeirra flugvélategunda sem skipt hafa mestu máli. Sjónum er þó einkum beint að Dash 8-vélum Icelandair, sem núna eru aðalfarkosturinn á innanlandsleiðum og í Færeyja- og Grænlandsfluginu. Douglas Dakota-vélar áttu stærstan þátt í að reglubundnar flugsamgöngur byggðust upp innanlands eftir síðari heimsstyrjöld. Fokker F-27 Friendship, sem þjónaði í 27 ár, leysti þristana af hólmi. Síðan kom enn öflugri Fokker, Fokker 50, sem þjónaði í 23 ár. Fokker F-27 Friendship á Ísafjarðarflugvelli árið 1965.skjáskot Það var á þeim árum sem innanlandsflugið var með hvað mestum blóma. Sem dæmi er að á Patreksfjarðarflugvelli árið 1993 mátti jafnvel sjá tvær áætlunarvélar á sama tíma, önnur að koma úr Reykjavík en hin frá Ísafirði. Farþegafjöldi um Patreksfjarðarflugvöll var margfaldur fjöldi íbúanna. Eitt árið fóru ellefu þúsund farþegar um flugvöllinn, að sögn Kristin Þórs Egilssonar, umsjónarmanns Flugminjasafnsins að Hnjóti í Örlygshöfn. Twin Otter Ernis á Patreksfjarðarflugvelli árið 1993 í áætlunarflugi milli byggða Vestfjarða.Stöð 2/skjáskot Við sjáum myndskeið frá Patreksfirði þegar Fokker 50-vél Flugleiða rennir sér yfir flugvöllinn. Flugvélin var í áætlunarflugi til Reykjavíkur. Flugtak var inn fjörðinn, inni í botni var tekinn hringur og síðan komið hratt yfir flugbrautina. Svo lágt fer hún niður undir brautina að við horfum ofan á flugvélina þegar hún þýtur framhjá flugstöðinni í svipaðri hæð og flugturninn. Ekki er vitað til þess að farþegarnir um borð hafi kvartað. Hér má sjá sjö mínútna kafla úr þættinum: Fokker 50 er flugvél sem á sérstakan sess í hjarta Sigurðar Aðalsteinssonar, sem segir hana fullkomnustu flugvél sem hann hafi flogið. Hún sé smá Airbus í þessum stærðarflokki. Sigurður Aðalsteinsson, einn af stofnendum Flugfélags Norðurlands, færðist yfir til Flugfélags Íslands við sameiningu félaganna árið 1997.Egill Aðalsteinsson Sigurður færðist frá Flugfélagi Norðurlands yfir til Flugleiða við sameiningu félaganna árið 1997. Innanlandsdeild Flugleiða sameinaðist þá FN undir gamla heitinu Flugfélag Íslands en á kennitölu Flugfélags Norðurlands. Sögðu þá sumir að Akureyringar hefðu tekið yfir innanlandsflugið. En svo var innanlandsflugið gefið frjálst þann 1. júlí árið 1997. Í samkeppni við 50 sæta Fokker-vélar Flugfélagsins nýtti Íslandsflug 42 sæta ATR-vélar en einnig 19 sæta Dornier-vélar. Ómar Benediktsson, stofnandi Íslandsflugs, lýsir því hvernig samkeppnin var í innanlandsfluginu, þann skamma tíma sem hún var virk.Egill Aðalsteinsson Ómar Benediktsson, framkvæmdastjóri og annar stofnanda Íslandsflugs, bendir á að almennt í Evrópu hafi frelsið í fluginu verið innleitt með þeim hætti að Flugfélagi Íslands hefði ekki leyfst að bregðast við með svo stórfelldri verðlækkun fargjalda, eins og raunin varð á. Svona svaraði Flugfélagið samkeppninni frá Íslandsflugi sumarið 1997. Hérlendis hafi þannig nýjum aðila verið gert erfitt fyrir að koma sér fyrir á markaðnum þegar hugsunin hafi verið sú að gefa nýjum aðilum tækifæri þannig að það yrði virk samkeppni. Flugvél Íslandsflugs, TF-ELK, komin í þjónustu Flugfélags Íslands árið 2000, eftir að Íslandsflug hætti samkeppninni á innanlandsleiðum.Baldur Sveinsson „En afkoman var ekki nægilega góð þannig að í raun og veru er það 1999 sem við sáum bara fram á það að við hefðum ekki nógu djúpa vasa,“ segir Ómar Benediktsson í þættinum. Þetta er fimmtándi þáttur Flugþjóðarinnar og sá þriðji í þriðju seríu. Áskrifendur geta séð alla þættina á streymisveitunni Sýn+.
Flugþjóðin Fréttir af flugi Icelandair Samkeppnismál Tengdar fréttir Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug „Þetta var núllpokaflug,“ var svarið sem flugfreyjurnar Edda Björk Friðriksdóttir og Eva María Hilmarsdóttir gáfu eftir lendingu Dash 8 Q400-vélar Icelandair á Akureyri þegar spurt var hvort einhverjir ælupokar voru notaðir í fluginu frá Reykjavík. Í flugstjórnarklefanum sátu þeir Jóhann Ingi Sigtryggsson flugstjóri og Egill Andri Jóhannesson flugmaður. 26. desember 2025 07:47 Það sem farþegarnir sjá ekki í innanlandsfluginu Það eru annir á Reykjavíkurflugvelli að vetrarmorgni, flugvélar að koma og fara. Áhöfn frá Norlandair, nýkomin úr sjúkraflugi, er að gera sjúkraflugvélina klára fyrir næsta útkall. Áhöfn Icelandair er að koma úr flugi frá Egilsstöðum og önnur að búa sig undir flug til Akureyrar. Fjær sjáum við aðra flugvél Norlandair aka frá Flugfélagsafgreiðslunni. 19. febrúar 2026 13:13 Ómar og Þórólfur segja frá flugferðinni með Flosa Fjölmiðlamaðurinn og flugmaðurinn landskunni, Ómar Ragnarsson, heimsótti helstu þjóðsagnapersónu innanlandsflugsins, Þórólf Magnússon flugstjóra á nýliðnu ári. Saman rifjuðu öldungarnir upp gamlar flugsögur, eins og þegar þeir flugu að vetrarlagi norður í land á lítilli einshreyfils flugvél með Flosa Ólafsson leikara skelkaðan í aftursætinu. 12. febrúar 2026 09:50 Töldu Akureyringa ekki reka alvöruflugfélag Með stofnun Norðurflugs á Akureyri varð Tryggvi Helgason brautryðjandi í rekstri landshlutaflugfélaga á Íslandi. Flugfélagið Norlandair og áður Flugfélag Norðurlands eru bæði sprottin af Norðurflugi. 27. apríl 2025 07:00 Mest lesið Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Innlent Ráðherrabrölt Flokks fólksins kostað 18 milljónir Innlent Hafi þegið pening fyrir að giftast kærustu Quang Le Innlent Gríðarstór vatnselgur undir Breiðholtsbrú Innlent Þingheimur hló að þýðingu Daða Más Innlent Uppgjör í undirheimunum undir Höfðatorgi Innlent Hvöss suðvestanátt og él fram á laugardagsmorgun Innlent Hart sótt að fjármálaráðherra Innlent „Mjög vont veður sem mun eflaust skapa vandamál“ Innlent Mannréttindadómstóllinn vísar máli Nöru frá Innlent Fleiri fréttir Hörð gagnrýni þegar tenging bóta við launavísitölu var samþykkt Mannréttindadómstóllinn vísar máli Nöru frá Minnisvarði um rauðsokkur rís í sumar Lögreglustöðinni verði lokað verði ekki húsnæðið ekki lagað Gríðarstór vatnselgur undir Breiðholtsbrú Hart sótt að fjármálaráðherra „Mjög vont veður sem mun eflaust skapa vandamál“ Mikilvægast með jarðgöngum að losna við hættulegustu vegi Hugsi yfir fréttum af brunavörnum á Stuðlum Þingheimur hló að þýðingu Daða Más Ráðherrabrölt Flokks fólksins kostað 18 milljónir Vonskuveður víðast hvar og Eyjólfur varði Fljótagöng Eldur kviknaði í bíl Ísland í öðru sæti yfir hamingjusömustu þjóðir heims Hefja rannsóknarboranir fyrir jarðgöng til Eyja Hvöss suðvestanátt og él fram á laugardagsmorgun „Ég sit ekki hér og hóta því að við séum á leiðinni í verkfall“ Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Bein útsending: Opinn fundur um samgönguáætlun „Við aflífun upplifa þessi dýr dauðastríð sem er andstætt lögum“ Flugið er líflína milli byggða Grænlands Intuens höfðar mál á hendur landlæknisembættinu Hafi þegið pening fyrir að giftast kærustu Quang Le Hundrað ár frá því útvarpið varð að veruleika á Íslandi Uppgjör í undirheimunum undir Höfðatorgi Malbiksskemmdir gríðarlegar þetta árið Kreppuverðbólga og kjaraviðræður í aðsigi Kerfið sem átti að bjarga syni hans hafi drepið hann Ógnaði hópi ungmenna með eggvopni Staðráðin í að flýta fyrir samningaviðræðum Sjá meira
Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug „Þetta var núllpokaflug,“ var svarið sem flugfreyjurnar Edda Björk Friðriksdóttir og Eva María Hilmarsdóttir gáfu eftir lendingu Dash 8 Q400-vélar Icelandair á Akureyri þegar spurt var hvort einhverjir ælupokar voru notaðir í fluginu frá Reykjavík. Í flugstjórnarklefanum sátu þeir Jóhann Ingi Sigtryggsson flugstjóri og Egill Andri Jóhannesson flugmaður. 26. desember 2025 07:47
Það sem farþegarnir sjá ekki í innanlandsfluginu Það eru annir á Reykjavíkurflugvelli að vetrarmorgni, flugvélar að koma og fara. Áhöfn frá Norlandair, nýkomin úr sjúkraflugi, er að gera sjúkraflugvélina klára fyrir næsta útkall. Áhöfn Icelandair er að koma úr flugi frá Egilsstöðum og önnur að búa sig undir flug til Akureyrar. Fjær sjáum við aðra flugvél Norlandair aka frá Flugfélagsafgreiðslunni. 19. febrúar 2026 13:13
Ómar og Þórólfur segja frá flugferðinni með Flosa Fjölmiðlamaðurinn og flugmaðurinn landskunni, Ómar Ragnarsson, heimsótti helstu þjóðsagnapersónu innanlandsflugsins, Þórólf Magnússon flugstjóra á nýliðnu ári. Saman rifjuðu öldungarnir upp gamlar flugsögur, eins og þegar þeir flugu að vetrarlagi norður í land á lítilli einshreyfils flugvél með Flosa Ólafsson leikara skelkaðan í aftursætinu. 12. febrúar 2026 09:50
Töldu Akureyringa ekki reka alvöruflugfélag Með stofnun Norðurflugs á Akureyri varð Tryggvi Helgason brautryðjandi í rekstri landshlutaflugfélaga á Íslandi. Flugfélagið Norlandair og áður Flugfélag Norðurlands eru bæði sprottin af Norðurflugi. 27. apríl 2025 07:00