Geti átt í samstarfi við nær alla flokka Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 25. febrúar 2026 21:52 Þau eru oddvitaefni Pírata í borginni. Sýn Prófkjör Pírata hefst á morgun en tveir frambjóðendur hafa boðið fram krafta sína í oddvitasætið, Alexandra Briem, núverandi oddviti, og Kristinn Jón Ólafsson, varaborgarfulltrúi. Þau segjast bæði tilbúin að leita að samstarfsflokkum í allar áttir en sá flokkur þurfi að samræmast þeirra grunngildum. Að mati Alexöndru geti það ekki allir.
Í síðustu kosningum var Dóra Björt Guðjónsdóttir í oddvitasætinu en hún skipti yfir í Samfylkinguna fyrr á árinu. Í sveitarstjórnarkosningunum í ár eru alls ellefu sem sækjast eftir sæti á lista flokksins. „Ég tel mig vera tilbúinn að taka þetta skref. Ég hef mikla reynslu úr borgarkerfinu þar sem ég hef unnið í fimm ár og síðan verið varaborgarfulltrúi þetta kjörtímabil. Það hefur verið gaman að takast á við þetta saman, lýðræðisveislu eins og við Píratar stöndum fyrir,“ sagði Kristinn í kvöldfréttum Sýnar. Aðspurð hvort að Alexandra sækist eftir breyttum áherslum sagði hún stefnuna frekar vera að halda áfram að byggja upp borgina. Píratar eru núna í meirihluta borgarstjórnar með Vinstri grænum, Samfylkingunni, Flokki fólksins og Sósíalistaflokknum. „Þetta er lýðræðisborg, mannréttindaborg, borg sem að með öfluga uppbyggingarstefnu og hlustar á íbúana. Hún er í sjálfu sér skerping á því sem við erum þegar búin að vera að gera,“ segir Alexandra „Ég hef ekki verið kjörin sem oddviti beinlínis en ég held að enginn eigi neitt í pólitík en ég hef reynslu, mér hefur verið falin alls konar ábyrgð í gegnum tíðina. Ég hef verið forseti borgarstjórnar, formaður borgarráðs. Ég hef ýmislegt, mér hefur farist það vel úr hendi og ég held að ég sé rétta manneskjan á þessum tímapunkti.“ Miðflokkurinn ekki efstur á lista Kristinn útilokar ekki samstarf við neinn flokk þar sem að Píratar geti leitað í allar áttir. „Þannig ég held að það sé mjög mikilvægt að fólk átti sig á því að við erum ekkert að binda okkur á neinum stað á þeim velli. Ég held að eitt það mikilvægasta sem við þurfum að gera núna sé að standa vörð um ákveðin gildi. Lýðræði, félagshyggju og grænu málin og þetta eru þeir málaflokkar sem eru hvað mikilvægastir í samtali sem við myndum taka með öðrum flokkum,“ segir hann. Alexandra er að mestu leyti á sama máli en til séu flokkar sem Píratar eigi „ekkert brjálæðislega góða samleið með“. „Við getum unnið með flestum sem eru tilbúnir að vinna með okkur að þessum málaflokkum sem við trúum á,“ segir hún. Það eru til flokkar sem við eigum ekkert brjálæðislega góða samleið með en ég er ekkert hér til þess að útiloka neitt fyrir fram. Það er helst Miðflokkurinn sem hefur verið að tala þannig að ég veit ekki alveg hvað maður á að gera með það.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Píratar Reykjavík Borgarstjórn Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent „Hún drap börnin“ Erlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Fleiri fréttir Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Sjá meira