Byggjum framtíð á ís – fyrir börnin okkar og samfélagið allt Anna Maria Hedman skrifar 27. febrúar 2026 15:33 Umræðan um uppbyggingu skautasvella í Reykjavík er bæði tímabær og nauðsynleg. Árangur íshokkís – sem hefur náð miklum árangri þrátt fyrir takmarkaða aðstöðu – sýnir hvað er hægt þegar vilji og gæði hittast. En þetta snýst ekki um eina íþróttagrein. Þetta snýst um heildarsýn fyrir íþróttir á ís í borg sem vex og vill standa framarlega. Ég er sænsk og íslensk ríkisborgari, formaður listskautadeildar Skautafélags Reykjavíkur og hef verið skautamamma í 15 ár. Ég hef séð af eigin raun hversu mikil áhrif íþróttir á ís hafa á börn og fjölskyldur – þau byggja upp aga, sjálfstraust, seiglu og gleði. Ég ólst upp í Svíþjóð þar sem skautar voru sjálfsagður hluti af íþróttum í skólum yfir vetrartímann. Útisvell voru nýtt markvisst og börn fá að kynnast fjölbreyttum skautagreinum – íshokkí, listskautum, bandý og skautahlaupi. Samhliða var kennt ís-öryggisfræði – meðal annars hvernig bregðast eigi við ef fallið er í gegnum ís. En miðað við veðurfar á Íslandi getum við ekki treyst á útisvell sem grundvöll að skipulögðu íþróttastarfi. Hlýindi, rigning og óstöðug frost gera slíkt ekki áreiðanlegt. Þess vegna er íshöll ekki munaður – hún er grunnforsenda þess að hægt sé að byggja upp og viðhalda íþróttum á ís með faglegum, öruggum og stöðugum hætti. Skautar í Reykjavík í dag Í dag stunda yfir 500 börn og ungmenni listskauta hjá Skautafélagi Reykjavíkur. Biðröð hefur myndast í skautaskólann, þar sem allt byrjar, og iðkendur bíða eftir tækifæri til að komast á ís. Við höfum aldrei verið með fleiri iðkendur í keppnisflokkunum Chicks, Cubs og Basic Novice. Biðröð er í afrekshópinn Advanced Novice, sem veitir aðgang að stærri mótum á heimsvísu og er mikilvægur áfangi fyrir þau sem vilja ná langt. Í dag eigum við einnig tvo iðkendur í landsliði Íslands, sem sýnir að uppbyggingin skilar árangri þegar aðstæður leyfa. En starfið snýst ekki eingöngu um afrek. Félagslínan er stór og mikilvægur hluti af okkar starfi. Okkar helsta markmið er að skautar eigi að vera til fyrir alla – ekki aðeins þau sem stefna á landslið eða alþjóðleg mót. Við viljum skapa öruggt og jákvætt umhverfi þar sem börn, ungmenni og fullorðnir geta notið hreyfingar, eignast vini og fundið sinn stað – óháð aldri eða metnaði. Við viljum einnig bjóða upp á námskeið fyrir fullorðna byrjendur. Við höfum þegar sett af stað nýtt fyrirkomulag með svokölluðu „klippikorti“ fyrir fullorðna sem stunduðu listskauta á unglingsárum og vilja snúa aftur á ísinn – sem og fyrir nýja byrjendur. Áhuginn vex stöðugt og fullorðnir iðkendur verða sífellt kröfuharðari á eigin framfarir. Sumir eru þegar farnir að keppa og jafnvel sækja æfingabúðir erlendis. Það sýnir að listskautar eru ekki aðeins barnastarf – heldur íþrótt sem fólk getur stundað alla ævi. Við erum einnig að þróa synchro – samhæfðan skautadans, þar sem lið skautara framkvæmir samstillt prógrömm við tónlist. Nýtt lið, ÍSEY, hefur verið stofnað og áhuginn er mikill. Synchro er lykill að því að halda ungmennum lengur í íþróttinni, sérstaklega þegar skólaálag eykst um 16 ára aldur og margir hætta. Markmið okkar er skýrt: að byggja upp junior-lið í synchro og skapa farveg fyrir íslenskt lið á alþjóðlegum vettvangi. Ekki barátta – heldur sameiginlegt verkefni Við gleðjumst yfir velgengni íshokkís – hún sýnir hvað er mögulegt þrátt fyrir þröngan kost. En þegar aðstaðan er takmörkuð verður sífellt erfiðara að mæta þörfum allra greina. Þetta þarf ekki að vera barátta milli íshokkís og listskauta um ístíma. Það þarf að vera sameiginlegt verkefni að tryggja næga aðstöðu fyrir fólk á öllum aldri og öllum hæfileikum. Skautasvell eru ekki hagsmunamál fárra.Þau eru: Lýðheilsumál Forvarnarmál Jafnréttismál Skólamál Samfélagsmál Reykjavíkurborg hefur tækifæri til að móta heildstæða stefnu fyrir íþróttir á ís – stefnu sem tekur mið af raunverulegum vexti, framtíð og þörfum næstu kynslóða. Saga okkar sýnir hvað er mögulegt Saga Íslendinga á ís er lengri en margir gera sér grein fyrir. Árið 1920 vann lið íslenskra innflytjenda í Kanada – Winnipeg Falcons – Ólympíugull í íshokkí á leikunum í Antwerpen. Liðið var skipað nánast eingöngu af íslenskum innflytjendum í Manitoba. Þeir kepptu undir kanadísku flaggi – en rætur þeirra voru íslenskar. Það er líka merkilegt að minna á að fyrsta kvennalandslið Íslands sem tók þátt í heimsmeistaramóti í Synchro var úr LSR – Team Icecubes árið 2002. Saga okkar sýnir að metnaður og geta eru til staðar. Þetta var afrakstur samfélags sem gaf börnum sínum aðstöðu, tækifæri og umgjörð til að vaxa á ís. Spurningin sem við stöndum frammi fyrir í dag er einföld: Ætlum við að skapa slíkar aðstæður í dag? Áskorun og samvinna Herra borgarstjóri og borgaryfirvöld í Reykjavík: Við sem störfum í íþróttahreyfingunni sjáum skýrt að eftirspurnin er til staðar. Börnin eru til staðar. Viljinn er til staðar. Fagfólkið er til staðar. Nú þarf innviðina. Við köllum ekki eftir munaði. Við köllum eftir grunnforsendu. Við köllum ekki eftir forréttindum fyrir eina grein. Við köllum eftir heildarsýn sem þjónar öllum íþróttum á ís. Við viljum vinna með borginni að lausnum. Taka þátt í stefnumótun, greiningu og framtíðarskipulagi. En það þarf skýra forystu og ákvörðun um að uppbygging íshalla verði hluti af langtímasýn Reykjavíkurborgar. Ísinn er ekki bara yfirborð. Hann er vettvangur þar sem börn læra aga, samvinnu og seiglu. Þar kvikna draumar. Þar mótast framtíð. Reykjavík getur valið að vera borg sem leiðir uppbyggingu íþrótta á ís – eða borg sem horfir á eftir tækifærum. Við erum tilbúin í samtal. Spurningin er: Er borgin tilbúin að taka næsta skref með okkur? Höfundur er formaður Listskautadeildar Skautafélags Reykjavíkur og móðir þriggja barna, en fjölskylda hennar hefur verið hluti af félaginu síðastliðin 15 ár. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Stokkið á (barna)vagninn Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Opnum Skálafell Valdimar Breiðfjörð Birgisson Skoðun Að þora að spyrja og þola svarið Katrín Þrastardóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason Skoðun Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Ferðaþjónustunni hent fyrir rútu hallalausra fjárlaga Njáll Trausti Friðbertsson Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvar á gervigreind að vinna fyrir hið opinbera? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustunni hent fyrir rútu hallalausra fjárlaga Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun Virðismiðuð velferðarþjónusta Finnur Pálmi Magnússon skrifar Skoðun Skuldadagar í Reykjavík Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Að þora að spyrja og þola svarið Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Um fitulag og burðarvirki – atlaga að velferð barna og unglinga í Reykjavík Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Stokkið á (barna)vagninn Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Opnum Skálafell Valdimar Breiðfjörð Birgisson skrifar Skoðun Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Sjá meira
Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Skoðun Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Um fitulag og burðarvirki – atlaga að velferð barna og unglinga í Reykjavík Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir skrifar
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar
Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun