„Sagði að ég væri lítill svo ég sagði honum að halda kjafti“ Aron Guðmundsson skrifar 28. febrúar 2026 09:02 Hákon Örn Arnórsson mætir Ali Albazi í aðalbardaga Glacier Fight Night í kvöld. Vísir/Samsett Mikil spenna ríkir fyrir MMA bardagakvöldi sem fer fram í Reykjavík í kvöld. Ungur Mosfellingur, Hákon Örn Arnórsson, keppir í aðalbardaga kvöldsins sem jafnframt er titilbardagi. Óhætt er að segja að Hákon og andstæðingur kvöldsins séu ekki bestu vinir eins og sannaðist í gær.
Það stefnir í að uppselt verði á Glacier Fight Night bardagakvöldið, að fimmtán hundruð áhorfendur troðfylli Framheimilið í kvöld þar sem að ellefu bardagar fara fram, þar af fimm titilbardagar. Fremsta bardagafólk þjóðarinnar frá Mjölni og Reykjavík MMA stígur inn í búrið og berst við andstæðinga erlendis frá. Meiri pressa og meistarabelti undir Hákon Örn Arnórsson, MMA bardagakappi úr Mosfellsbæ og liðsmaður Reykjavík MMA, mætir Írakanum Ali Albazi í aðalbardagakvöldsins sem er jafnframt einn af titilbardögunum. Hákon keppti einnig í aðalbardaga fyrsta Glacier Fight Night bardagakvöldsins sem fór fram í Andrews Theater á Ásbrú. „Ég bara get ekki beðið. Það er aðeins meiri pressa núna, það er búið að auglýsa þetta betur, þetta er þrefalt stærri kvöld. Ég er eira spenntur fyrir þessum bardaga,“ segir Hákon í samtali við íþróttadeild Sýnar. „Ég elska að labba inn í búrið og berjast fyrir framan alla þessa Íslendinga. Þetta er bara geðveikt. Ég er mjög spenntur fyrir því að vinna þennan titil fyrir framan alla Íslendingana.““ „Þetta er besti undirbúningur sem ég hef átt til þessa fyrir bardaga. Ég fór til Manchester og var að æfa þar í tvær vikur. Niðurskurðurinn gekk vel og það gekk í raun allt upp á tíu. Allir þjálfararnir eru búnir að hjálpa mér super vel fyrir þennan bardaga. Ég fer tíu af tíu inn í þennan bardaga.“ „Hann er ekki í UFC“ Og það er vel því Ali, andstæðingur Hákons, er þekkt stærð og reynslumikill í búrinu. Bróðir hans, Amir Albazi er einn fremsti bardagakappi UFC í fluguvigt. Ali Albazi (til hægri) mætir Hákoni í búrinu í kvöld. Hér er hann eftir sigur bróður síns Amir á bardagakvöldi UFC.Vísir/Getty „Bróðir hans er í UFC og allt það en það skiptir mig engu máli. Hann er ekki í UFC. Ég virkilega trúi því að ég geti unnið hann. Ég er með veikleika sem hann er góður í og ég bý yfir styrkleikum sem hann er slæmur í. Ég trúi því að það muni sanna sig á laugardeginum hvor er búinn að vinna harðar að þessu. Ég trúi því að það verði hundrað prósent ég.“ Andstæðurnar miklar þegar kemur að bardagastíl kappanna tveggja. Hákon vill helst hafa sína bardaga standandi þar sem skipst er á höggum, Ali er meira fyrir það að taka andstæðinga sína niður í gólfið og glíma við þá þar. „Það er pirringur fyrir þennan bardaga“ Það sló í brýnu milli Hákons og Ali er þeir hittust í fyrsta sinn augliti til auglitis í gærmorgun eftir vigtun. Þeir skiptust á orðum áður en skipst verður á höggum í kvöld. „Hann sagði við mig að ég væri lítill. Ég sagði honum að halda kjafti og svaraði honum með því að segja að hann væri grindhoraður. Við hlógum svo bara að þessu,“ segir Hákon hlæjandi. „Ég veit að hann vill hafa smá hita í bardögunum sínum. Smá pirring. Persónulega er mér alveg sama, ég er alveg til í bæði. Ef þú vilt vera pirraður út í mig þá skal ég vera pirraður út í þig. Það er pirringur fyrir þennan bardaga.“ Ali hefur talað digurbarkalega í aðdraganda bardagans. Talað um að geta unnið Hákon hvernig sem er. Með rothöggi, uppgjafartaki eða á dómaraúrskurði. View this post on Instagram A post shared by Glacier Fight Night (@gfn_mma) „Hann er klárlega að ljúga að sjálfum sér þar,“ svarar Hákon þegar fullyrðingar Ali eru bornar undir hann. „Ég veit ekki hvar hann fær það út. En mér finnst bara gott að hann trúi því. Ég vona bara að hann komi út og haldi að hann geti boxað við mig. Þá er ég bara viss um að geta steinrotað hann í fyrstu lotu. Ég býst við því að hann muni reyna það snemma að ná mér niður í gólfið. Hann getur ekki staðið með mér í búrinu.“ Hann er frekar góður með sig? „Hann er mjög góður með sig. Ég er ekki þannig. Síðan að ég byrjaði í þessu hef ég aldrei viljað vera hrokafullur. Mér finnst það bara asnalegt. Mér finnst bara gott að mæta mönnum sem eru hrokafullir. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég lendi í því. Það er ekki hægt að vera hrokafullur í þessum leik, það bara virkar ekki.“ Hákon er kominn langt á sínum ferli í MMA þrátt fyrir að ferillinn sé stuttur. „Ég er búinn að æfa í fimm ár, það er ekki mikið miðað við flesta. Ég er eiginlega búinn að æfa MMA styðst af þeim sem mæta til leiks á þessu kvöldi. Ég er búinn að leggja inn það mikla vinnu að ég trúi því að það muni sanna sig á þessu kvöldi. Ég bara veit að þetta verður tryllt. Ég er spenntur að sjá hvað gerist. Þetta verður rosalegt.“ Sýnt verður beint frá bardagakvöldinu hjá Livey. Þar er hægt að kaupa aðgang að bardagakvöldinu. Fyrir þau sem vilja mæta á sjálft bardagakvöldið er lítið eftir af miðum en hægt að kaupa þá á vefsíðu Moment.
MMA Mest lesið Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ „Þetta er bara einn leikur í einu“ Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Fór út í bíl og náði í byssu Messi klæddist Como-treyju Skagamenn á vergangi og af hverju skrifa fótboltamenn ekki á íslensku? Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Sjá meira