Aðgerðir gegn ofbeldi meðal barna Eygló Harðardóttir skrifar 2. mars 2026 11:00 Börn sem lenda í vanda koma ekki endilega úr „slæmum" aðstæðum. Rannsóknir sýna að margir samverkandi áhættuþættir geta leitt til ofbeldis, til að mynda vanræksla, einelti, þroskaraskanir eða erfiðleikar innan fjölskyldunnar. Sama barn getur verið bæði þolandi ofbeldis og sýnt verulega krefjandi áhættuhegðun. Þess vegna dugar ekki að horfa á einstaka atburði, heldur þarf að horfa til alls umhverfis barnsins. Á síðasta ári hafa fjögur ráðuneyti, stofnanir og sveitarfélög unnið saman að því að styrkja úrræði og samræma verklag samkvæmt aðgerðaáætlun stjórnvalda gegn ofbeldi meðal og gegn börnum fyrir árin 2025-2026. Ný stöðuskýrsla sýnir áþreifanlegan árangur á mikilvægum sviðum milli áranna 2024 og 2025. Hlutfall nemenda í 8. bekk sem komu með hníf í skóla lækkaði úr 3% í 1% og kynferðis- og heimilisofbeldi gegn börnum fór minnkandi. Þá fækkaði vopnaútköllum sérsveitar ríkislögreglustjóra frá fyrra ári. Að auki styttist málshraði ungmennamála hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu úr 197 dögum (2022) í 82 daga (2025) og biðlistar eftir meðferðarúrræðum hafa styst verulega. Fleiri börnum líður vel í skóla og fleiri hafa traustan fullorðinn til að leita til. Fræðslufundir undir yfirskriftinni „Tökum samtalið" hafa náð til foreldra og fagfólks um land allt. Sameiginlegt verklag um viðbrögð við krefjandi hegðun barna fyrir skóla og frístund er í vinnslu. Samfélagslögregla hefur tekið til starfa um nær allt land og meðal annarra verka útbúið og dreift leiðbeiningum um fyrstu viðbrögð fagfólks vegna kynferðisbrota, vopnalagabrota og heimilisofbeldis. Barnavernd fær stuðning við innleiðingu gagnreyndra aðferða og unnið er að endurskoðun barnaverndarlaga. Miðstöð menntunar og skólaþjónustu hefur eflt stuðning við skóla með áfallamiðaðri nálgun, foreldrafræðslu og sérhæfðri ráðgjöf. Þá mun fara fram forprófun á skimun fyrir ofbeldi hjá grunnskólabörnum nú á vormánuðum. Markmiðið er að skimað verði með markvissum og reglubundnum hætti fyrir ofbeldi meðal barna í grunnskólum á landsvísu og að tryggt verði að börn sem greina frá ofbeldi standi til boða viðeigandi þjónusta. Þá er unnið að mótun ofbeldismóttöku fyrir börn á Landspítala og að Bryndísarhlíð, ný sérhæfð ofbeldis- og áfallamóttaka fyrir börn og ungmenni opni á Landspítala næsta vetur. Allar skapa þessar aðgerðir þann grunn sem nauðsynlegur er til að vinna gegn ofbeldi meðal og gegn börnum. Áskoranir eru áfram til staðar. Einelti í 6. bekk hefur t.d. aukist og líkamsárásir meðal yngstu barnanna, sérstaklega drengja. Stafrænt ofbeldi og netöfgahópar eru vaxandi áhyggjuefni. Margar aðgerðir í áætluninni eru í undirbúningi og verður þeim markvisst fylgt eftir út árið. Hvað skiptir mestu máli? Að grípa inn í mál barna á fyrstu stigum áhættuhegðunar og að saman vinni skóli, heilbrigðisþjónusta, barnavernd, frístundastarf og lögregla að máli barna og með fjölskyldum þeirra. Með slíkri samþættingu er stuðlað að því að barn falli síður á milli kerfa. Til að ná til fjölskyldna í vanda þarf jafnframt að byggja upp traust og nálgast fólk af virðingu. Stuðningurinn er ekki til að refsa eða dæma, heldur til að styrkja foreldra og hjálpa börnum að eiga farsæla framtíð. Oft er best að byrja í gegnum þau sem börnin þekkja og treysta: kennara, íþróttaþjálfara eða starfsmann í frístund. Góður grunnur hefur verið lagður, en grunnurinn einn og sér verndar engin börn. Nú þarf að halda áfram. Þetta er ekki bara verkefni stjórnvalda. Þetta er sameiginlegt verkefni okkar allra. Höfundur skrifar fyrir hönd stýrihóps aðgerðaráætlunar stjórnvalda gegn ofbeldi meðal og gegn börnum 2025-2026, skipaður fulltrúum frá mennta- og barnamálaráðuneyti, dómsmálaráðuneyti, heilbrigðisráðuneyti og innviðaráðuneyti. Höfundur er formaður stýrihópsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eygló Harðardóttir Ofbeldi barna Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar