Viðskipti innlent

Hag­kerfið allt í hættu

Birgir Olgeirsson skrifar
Þórður Guðjónsson, forstjóri Skeljungs, segir að almenningur hljóti að fara að opna augun fyrir mikilvægi olíunnar sem sé undirstaða allrar framleiðslu í heiminum. Atburðir síðustu daga sýni fram á það og geri hugmyndir um kolefnishlutleysi árið 2030 óraunhæfar. 
Þórður Guðjónsson, forstjóri Skeljungs, segir að almenningur hljóti að fara að opna augun fyrir mikilvægi olíunnar sem sé undirstaða allrar framleiðslu í heiminum. Atburðir síðustu daga sýni fram á það og geri hugmyndir um kolefnishlutleysi árið 2030 óraunhæfar.  Vísir/Vilhelm

„Það þarf að hafa verulegar áhyggjur því þetta mun hafa gríðarlegar afleiðingar,“ segir Þórður Guðjónsson forstjóri Skeljungs um þær hækkanir sem hafa orðið á heimsmarkaðsverði olíu síðustu daga vegna átakanna í Íran.

„Þetta snýst ekki bara um hvað bensínið mun kosta á bílana okkar heldur hvaða áhrif þetta mun hafa á heildarhagkerfi heimsins. Það er vandfundin sú vara sem ekki er annaðhvort framleidd eða flutt með olíu,“ segir Þórður.

Skammtímaáhrifin verði ekki mikil en langtímaáhrifin verði gríðarleg. „Þetta er grafalvarleg staða,“ bætir hann við.

Flutningskostnaður tvöfaldast

Strax í gær tvöfaldaðist verð á olíuflutningsskipum og flutningskeðjur hafi rofnað. Nú þegar vanti daglega 20 milljónir olíutunna sem ekki skila sér í gegnum Hormussund og birgðastaðan sé ekki þannig að markaðurinn þoli það mjög lengi.

„Frá því í gær og fram eftir deginum í dag hefur olíuverð rokið upp um 300 dollara á tonnið og hefur verið í kringum þúsund dollara,“ segir Þórður.

Gallon af bensíni hafði hækkað um 25 sent bara í gær.

Áhrifin af átökunum tengdum Íran munu reynast hagkerfinu ansi afdrifarík að mati Þórðar. Bensínsverð muni vafalaust hækka en áhrifin á heildarhagkerfi heimsins verði mun meiri. Vísir/Vilhelm

„En ég ítreka, eitt er að hafa áhyggjur af því hvað bensínið kostar á bílinn en það sem verður mun afdrifaríkara er hvaða áhrif þetta hefur á heildarhagkerfi heimsins. Flutningur, aðföng og framleiðsla, allt mun þetta hækka í verði. Gasið í Bretlandi hækkaði um 50% á einum degi í gær. Gasið er einmitt notað til að framleiða áburð, þannig að áburðarverð er að fara að rjúka upp.“

Forstjórinn skýtur á borgarstjóra

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri skrifaði nýverið undir samning sem kveður á um að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis og takmarka framleiðslu þess. Borgarráð staðfesti síðan viljayfirlýsinguna á fundi sínum síðastliðinn fimmtudag. Samningurinn nefnist Fossil Fuel Non-Proliferation Treaty en borgarstjóri segir hann í samræmi við loftslagsmarkmið Reykjavíkur, þar á meðal markmið um kolefnishlutleysi árið 2030.

Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri, við undirritun viljayfirlýsingarinnar.Reykjavík/Róbert Reynisson

Þegar Þórður er spurður út í áhrif þessara hækkana hér heima fyrir segir hann Íslendinga lítið annað geta gert en að fylgjast með stöðunni. Hann nefnir hins vegar að það skjóti skökku við að sjá borgarstjóra skrifa undir slíka viljayfirlýsingu.

„Það hljóta allir að opna augun fyrir því hvað olían er mikilvæg. Hún er undirstaðan í öllu okkar efnahagskerfi, sem gerir hugmyndir á borð við kolefnishlutleysi árið 2030 óraunhæfar. Þessir atburðir síðustu daga tengdir Íran, við munum svo sannarlega finna fyrir afleiðingum af þeim á næstunni.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×