Fleiri en þrír hagfræðingar fundnir Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar 5. mars 2026 08:18 Umræða um frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra um breytingar á lögum um almannatryggingar sem felur í sér að greiðslur þeirra hækki samkvæmt launavísitölu hefur farið hátt á Alþingi og í samfélaginu. Um er að ræða breytingar á viðmiðum elli- og örorkulífeyris almannatrygginga. Markmið frumvarpsins er að styrkja stöðu þeirra sem fá greiðslur úr almannatryggingum með því að tryggja að lífeyrisgreiðslur fylgi þróun launavísitölu í stað þess að taka mið af launaþróun, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs. Hér er ekki um neina sjálfstýringu að ræða eins og gagnrýnendur frumvarpsins hafa haldið fram því Alþingi fer alltaf með fjárveitingarvaldið hverju sinni. Markmiðið er að stöðva kjaragliðnun sem hefur átt sér stað á milli lægstu launa í landinu og greiðslna almannatrygginga mörg undanfarin ár. Fjölmargir hafa tjáð sig Fulltrúar nokkurra fyrirtækja, stofnana, lærðir og leiknir hafa tjáð sig um þetta mál. Umsagnir um frumvarpið voru eins og gengur ýmist jákvæðar eða neikvæðar. Hagfræðingar hafa birt greinar sem ýmist hafa stutt frumvarpið eða lastað það. Sumir jafnvel gengið svo langt að telja að þessi breyting setja ríkisfjármálin á hvolf. Þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa fundið málinu allt til foráttu. Einn þingmanna Sjálfstæðisflokksins rökstuddi andstöðu sína í grein undir fyrirsögninni „Þrír hagfræðingar fundnir“. Ég get upplýst að fleiri en þrír hagfræðingar hafa fundist sem telja þessar breytingu góðrar gjalda verðar og löngu tímabærar. Á köflum hefur ríkt hrein upplýsingaóreiða í málinu og ekki gott að átta sig á hvað snýr fram eða aftur. Því skal ekki undra að margir hafi átt erfitt með að fóta sig i umræðunni. Hinn meinti tvöfaldi lás Í umræðu um þessi mál hefur mörgum verið tíðrætt um svo kallaðan „tvöfaldur lás“. Tvöfaldur lás er hugtak úr umræðu um kjaramál, sérstaklega í tengslum við bætur ýmis konar og vísar til þess þegar bætur hækka umfram launaþróun. Gagnrýnendur fullyrða að lögbundið verði að hækka lífeyrisgreiðslur í samræmi við breytingu þeirrar vísitölunnar sem meira hafi hækkað milli meðaltala tveggja undangenginna ára: Launavísitölu og Neysluverðsvísitölu. Þetta er kallað tvöfaldur lás vegna þess að viðmiðunarvísitölurnar eru tvær. Íverðbólguskoti gætu greiðslur almannatrygginga hækkað meira en laun. Í frumvarpinu er hins vegar komið í veg fyrir þetta með því að miða við upphafspunkt vísitalna frá 1. júní 2025 þegar árlegar breytingar verða gerðar á greiðslum almannatrygginga. Dæmi: Hækki launavísitala Hagstofu Íslands minna en vísitala neysluverðs mun hækkun greiðslna almannatrygginga taka mið af vísitölu neysluverðs. Breytingin mun því ekki leiða til hækkunar vegna breytinga sem verða á bæði launavísitölu og vísitölu neysluverðs samtímis, aðeins annarri hvorri vísitölunni ár hvert. Meiri hlutinn lagði til ákveðnar breytingar milli 2. og 3. umræðu með vísan til nefndarálits með breytingartillögu. Þar kemur fram að nefndin telji rétt að kveðið sé á um áhrif breytinganna á greiðslur almannatryggingar í ákvæði laganna en ekki aðeins í skýringum og greinargerð. Verið er að efna gamalt loforð stjórnvalda Í þessu sambandi vil ég draga fram nokkra grunnþætti sem liggja hér til grundvallar. Stjórnvöld hafa lengi lofað því að taka á vaxandi gliðnun á greiðslum almannatrygginga og lægstu launum án þess að fyrri ríkisstjórnir hafi gripið til aðgerða. Hingað til hefur fjármálaráðuneytið gert áætlun um launaþróun á komandi ári og því ekki tekið mið af raunverulegri launaþróun. Elli- og örorkulífeyrisþegar hafa með tímanum og stundum í stökkum dregist aftur úr þróun launa. Með þessari breytingu er horfið frá huglægu mati og miðað við mælanlegar breytingar. Nú verður ekki lengur hægt að hunsa launaþróunina þegar kemur að lífeyrisgreiðslum. Lífeyrisþegum verður héðan í frá ekki gleymt. Lokaorð Þessar breytingar eru pólitískt forgangsmál núverandi ríkisstjórnar sem full samstaða er um innan stjórnarflokkanna. Hér er um réttlætismál að ræða og löngu tímabæra aðgerð. Þeir sem lifa á greiðslum almannatrygginga hafa setið eftir í launaþróun og kaupmætti mörg undanfarin ár. Nánast verið afgreiddir sem afgangsstærð þegar kemur að launahækkunum. Allir eru sammála um að koma böndum á verðbólguna. Þessi aðgerð mun ekki ein og sér næra verðbólgudrauginn. Launaskriðið hefur ekki verið hjá þeim lægst launuðu og þeim sem lifa á greiðslum almannatrygginga. Kjör þessara hópa hafa því ekki kynt undir verðbólgubálinu. Orsakanna er frekar að leita í miklum launahækkunum þeirra hæst launuðu og þeirra sem taka bróðurpart launa sinna með fjármagnstekjum sem eru skattlagðar mun minna en launatekjur. Málið komið úr nefnd Velferðarnefnd afgreiddi frumvarpið til 3. umræðu á fundi sínum á miðvikudag. Minnihlutinn greiddi atkvæði gegn því að málið yrði afgreitt út úr nefndinni. Meiri hlutinn bókaði hins vegar að málið hefði fengið málefnalega skoðun, verið ítarlega rætt og ólík sjónarmið reifuð. Sérstaklega hafi verið orðið við beiðni minnihlutans að kalla tiltekna gesti fyrir nefndina og að frekari gagna yrði aflað. Þetta framfaramál er því vel ígrundað og verður vonandi sem allra fyrst að lögum. Höfundur er þingmaður Flokks fólksins og formaður velferðarnefndar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Flokkur fólksins Tenging almannatrygginga við launavísitölu Mest lesið Þjóð í vaxtafjötrum hafta Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Sögnin að banna Hans Alexander Margrétarson Hansen Skoðun Slapp lifandi út af elliheimili Margrét Sigríður Guðmundsdóttir Skoðun Listin að blekkja heila þjóð Halldóra Mogensen Skoðun Ertu ekki hress? Sigurbjörg J. Helgadóttir Skoðun Tunglskot og tilraunastofa Ásta Kristín Sigurjónsdóttir Skoðun Er fagmennska kennara einskis virði? Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Mataræði stéttaskiptingarinnar: Þegar hollusta verður forréttindi Steinar Björgvinsson Skoðun Af hverju? - Af hverju ekki? Halldór Bachmann Skoðun Rjúfum vítahring olíunnar Guðjón Hugberg Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Tunglskot og tilraunastofa Ásta Kristín Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Sögnin að banna Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Hvað sagði konan? G.Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Öflugur framhaldsskóli á Suðurnesjum er réttlætismál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við stöndum á tímamótum Ellý Tómasdóttir skrifar Skoðun Samkeppnisreglur sem myndlistarmenn hafa komið sér saman um Emma Heiðarsdóttir,Eva Ísleifs,Jóna Hlíf Halldórsdóttir,Unndór Egill Jónsson skrifar Skoðun Námsárangur í frjálsu falli — hversu lengi ætlum við að horfa á? Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þjóð í vaxtafjötrum hafta Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Samningsmarkmið Íslands mega ekki vera leyndarmál Júlíus Valsson skrifar Skoðun Dánaraðstoð og hjúkrunarfræðingar: Hvað segja gögnin? Bjarni Jónsson skrifar Skoðun Lögreglu-Ríkið Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Þarf einhverja yfirbyggingu í skólamálum Mosfellsbæjar? Haukur Skúlason skrifar Skoðun Verkin tala! Kristinn Jakobsson skrifar Skoðun Vandinn er ekki lóðaskortur Óli Örn Eiríksson skrifar Skoðun Af hverju? - Af hverju ekki? Halldór Bachmann skrifar Skoðun Er staða Garðabæjar jafn sterk og við höldum? Tinna Borg Arnfinnsdóttir ,Hreiðar Jónsson skrifar Skoðun Er fagmennska kennara einskis virði? Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Að þora að vera til fyrirmyndar Trausti Jóhannsson skrifar Skoðun Orkan sem skapar verðmæti Sævar Freyr Þráinsson skrifar Skoðun Er Kristrún Frostadóttir viljandi að reyna að leiða þjóðina inn í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Eru 700 milljónir á ári ekki miklir peningar? Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Ertu ekki hress? Sigurbjörg J. Helgadóttir skrifar Skoðun Tölum um samfélagið okkar Jónína Margrét Sigmundsdóttir skrifar Skoðun Umferðin vex í Hafnarfirði – hvað ætlum við að gera öðruvísi? Stefán Már Víðisson skrifar Skoðun Listin að blekkja heila þjóð Halldóra Mogensen skrifar Skoðun Hagsmunir launafólks og Evrópusambandið Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Rjúfum vítahring olíunnar Guðjón Hugberg Björnsson skrifar Skoðun Dómar eiga að hafa tilgang Védís Einarsdóttir skrifar Skoðun Vandamál leikskólanna verða ekki leyst nema með aðkomu ríkisins Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Mannréttindi í hættu í yfirfullum fangelsum Tinna Eyberg Örlygsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Öflugur framhaldsskóli á Suðurnesjum er réttlætismál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar
Skoðun Samkeppnisreglur sem myndlistarmenn hafa komið sér saman um Emma Heiðarsdóttir,Eva Ísleifs,Jóna Hlíf Halldórsdóttir,Unndór Egill Jónsson skrifar
Skoðun Námsárangur í frjálsu falli — hversu lengi ætlum við að horfa á? Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar
Skoðun Er staða Garðabæjar jafn sterk og við höldum? Tinna Borg Arnfinnsdóttir ,Hreiðar Jónsson skrifar
Skoðun Er Kristrún Frostadóttir viljandi að reyna að leiða þjóðina inn í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar
Skoðun Vandamál leikskólanna verða ekki leyst nema með aðkomu ríkisins Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar