Enn frekari dráttur á máli Margrétar Árni Sæberg skrifar 6. mars 2026 15:36 Margrét mætti í Héraðsdóm Reykjaness í dag en var óvænt farin um tuttugu mínútum eftir að hún kom. Vísir/Lýður Valberg Mál Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu á hendur Margréti McArthur Friðriksdóttur var ekki endurflutt í dag líkt og til stóð. Þess í stað fór fram málflutningur um kröfu Margrétar um endurteknar vitnaleiðslur í málinu og um að Sigríður Hjaltested héraðsdómari verði leidd fyrir dóminn sem vitni.
Þetta staðfestir Hilmar Garðars Þorsteinsson, verjandi Margrétar, í samtali við Vísi. Aðalmeðferð í meiðyrðamáli ákæruvaldsins gegn Margréti fór fram sextánda janúar og dómsuppkvaðningu var frestað þrisvar vegna veikinda dómara. Málið varðar ætluð meiðyrði Margrétar í garð Barböru Björnsdóttur héraðsdómara. Lög um meðferð sakamála gera ráð fyrir að dómur sé kveðinn upp innan fjögurra vikna frá því að það var dómtekið nema dómari og málsaðilar telji það óþarft. Það taldi Margrét ekki og því varð dómurinn að verða við kröfu hennar um endurtekinn munnlegan málflutning. Margrét krafðist þess einnig að fá að leiða vitni fyrir dóminn á ný og bæta einu vitni við. Málflutningur um þá kröfu hennar fór fram í dag og Jónas Jóhannsson, dómari málsins, tilkynnti að hann myndi kveða upp úrskurð um kröfuna þann 13. mars. Sá úrskurður mun eftir atvikum sæta kæru til Landsréttar. Því gæti málið dregist enn frekar. Það mun vera héraðsdómarinn Sigríður Hjaltested sem Margrét vill leiða fyrir dóm sem vitni en áðurnefnd Barbara hélt því fram í aðalmeðferð málsins að Sigríður hefði lagt sig í einelti um áratugaskeið og komið af stað orðrómi um ætlað ástarsamband hennar og annars dómara, Símons Sigvaldasonar. Hann er þriðja vitnið sem Margrét vill fá fyrir dóm. Sigríður Hjaltested héraðsdómari.Sýn
Dómsmál Meiðyrðamál Margrétar Friðriksdóttur Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent Fleiri fréttir „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Viðbrögð við sláandi PISA-könnun Sjá meira