Selfosskirkja 70 ára og kirkjukórinn 80 ára Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 6. mars 2026 20:05 Selfosskirkja, sem stendur á bökkum Ölfusár var vígð 25. mars á pálmasunnudag 1956 af Ásmundi Guðmundssyni, þáverandi biskupi. Magnús Hlynur Hreiðarsson Það stendur mikið til í Selfosskirkju í marsmánuði því þá fagnar kirkjan 70 ára afmæli sínu og kirkjukórinn 80 ára afmæli. Sérstök hátíðarmessa verður á pálmasunnudag þar sem biskup Íslands predikar en kirkjan var einmitt vígð á pálmasunnudag 1956.
Selfosskirkja er í Árborgarprestakalli í Suðurprófastsdæmi en fyrsta skóflustungan var tekin að kirkjunni 7. júní 1952. Kirkjuna teiknaði Bjarni Pálsson en yfirsmiður var Guðmundur Sveinsson byggingameistari. Kirkjan, sem stendur á bökkum Ölfusár var svo vígð 25. mars á pálmasunnudag 1956 af Ásmundi Guðmundssyni, þáverandi biskupi. Á aðalsafnarfundi kirkjunnar nýlega var afmælisdagskrá m.a. kynnt af formanni sóknarnefndar. „Við ætlum að helga marsmánuði komandi í hátíðarhöldum, sem verða alveg frá fyrsta degi mars og til loka. Þetta eru mikil tímamót og þetta líður hratt. Ég man þegar fyrsta skóflustungan var tekin að þessari kirkju og ég trúi því varla að það séu liðin 70 ár en svona er það,” segir Björn Gíslason, formaður sóknarnefndar kirkjunnar. Frá aðalsafnaðarfundi kirkjunnar, sem haldinn var á dögunum.Magnús Hlynur Hreiðarsson Björn segir að starfsemi kirkjunnar sé alltaf að vaxa og vaxa en þúsund fleiri gestir sóttu til dæmis messur og aðra viðburði á vegum kirkjunnar á síðasta ári en árið áður. Björn Gíslason, formaður sóknarnefndar Selfosskirkju.Magnús Hlynur Hreiðarsson Sérstök afmælismessa verður 29. mars, sem er pálmasunnudagur. „Það verður sannkölluð hátíðarmessa þar sem við bjóðum biskupi Íslands og prófasti, séra Óskari Hafsteini að vera hér sérstakir gestir okkar. Vonandi verður hér troðfull kirkja og falleg hátíð, sem fer hér fram,” segir Björn. Afmælisdagskrá kirkjunnar.Magnús Hlynur Hreiðarsson Heimasíða kirkjunnar
Árborg Þjóðkirkjan Tímamót Mest lesið Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Innlent Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Erlent Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Innlent Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Innlent Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Erlent Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Erlent Erfitt að fullyrða nokkuð um orsakasamhengi milli 4G og fæðingartíðni Innlent Fleiri fréttir Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Grunaður um að ofsækja son sinn sem sleit á öll tengsl Átta vilja vera forstjóri Hafró Eldur kviknaði í veitingastað í nýja miðbænum á Selfossi Erfitt að fullyrða nokkuð um orsakasamhengi milli 4G og fæðingartíðni Tónlistarskólar FÍH og Eddu Borg sameinast í þéttum takti Handtökur í tengslum við ræktun og þrjú skotvopn haldlögð Séra Friðrik fær ekki að rísa strax Hvalbátarnir komnir úr klössun fyrir vertíðina Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Hleyptu málinu í gegn eftir að hafa fengið „leynigögnin“ Tímasetning Canvas-árásarinnar engin tilviljun Sjá meira