Kallar eftir betri rökstuðningi hvernig eigi að hífa arðsemina upp í 13 prósent
Áform Íslandsbanka að skila að lágmarki þrettán prósenta arðsemi innan fárra ára þýðir að stefnt er að umtalsverðum rekstrarbata og í nýrri greiningu, sem lækkar lítillega verðmatið á bankanum, er kallað eftir því að stjórnendur útskýri og rökstyðji betur hvernig eigi að ná því markmiði. Þá er varað við því að róðurinn gæti þyngst hratt í ár núna þegar er að teiknast upp umhverfi kreppuverðbólgu sem er „allt að því fjandsamlegt fyrir fjárfestingarbankastarfsemi.“
Tengdar fréttir
Ekki lengur stærsti erlendi hluthafinn eftir að hafa selt fyrir nærri fjóra milljarða
Bandaríska sjóðastýringarfélagið Capital Group er ekki lengur stærsti erlendi fjárfestirinn í hluthafahópi Íslandsbanka eftir að hafa verið statt og stöðugt á söluhliðinni í bankanum frá því um miðjan janúar. Á þeim tíma hefur gengið lækkað um liðlega sjö prósent.