Flott embætti í boði fyrir ESB ríki Diljá Mist Einarsdóttir skrifar 9. mars 2026 07:32 Samfylking, Viðreisn og Flokkur fólksins hafa sett ESB aðild rækilega á dagskrá á ný með fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu. Aðild Íslands að ESB var síðast á dagskrá vinstristjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur sem stóð fyrir umsókn að ESB árið 2009. Sama ríkisstjórn ákvað síðan að gera „hlé“ á viðræðunum árið 2013. Eins og fram kemur í minnisblaði til ríkisstjórnar frá 2013, höfðu viðræður um „mikilvægustu kafla“ viðræðnanna ekki enn hafist þegar viðræðunum var slitið. Málaflokkarnir sem voru ekki „opnaðir“ í viðræðunum snerta m.a. íslenskan sjávarútveg og landbúnað. Málaflokkar sem snúa að mikilvægustu hagsmunum Íslands. Æðstu embættin gjarnan skipuð fyrrum ráðherrum Aðildarríki ESB eiga tilkall til ýmissa embætta á vegum þess og sagan sýnir að æðstu embættin eru gjarnan skipuð fyrrum ráðherrum og háttsettum embættismönnum aðildarríkjanna. Það er því ærið tilefni til að rifja nú upp frumvarp okkar þingmanna Sjálfstæðisflokksins sem snýr að reglum um starfsval að loknum ýmsum opinberum störfum. Þar leggjum við til nýja reglu þegar æðstu stjórnendur og aðstoðarmenn ráðherra, sem sinna hagsmunagæslu fyrir hönd Íslands í samningaviðræðum við erlend ríkjabandalög eða alþjóðastofnanir, láta af störfum. Þá verði þeim óheimilt að þiggja embætti á vegum slíkra aðila næstu 18 mánuði eftir starfslok, komi til inngöngu. Raunar ætti tímabilið að vara lengur. Við höfum þegar slíkar reglur, m.a. í lögum um varnir gegn hagsmunaárekstrum í Stjórnarráði Íslands og í siðareglum ráðherra og starfsfólks ríkisins. Margar nágranna- og vinaþjóðir okkar hafa hins vegar strangari lagaramma varðandi starfsval og hagsmunaárekstra. Reglurnar eru til þess fallnar að auka traust og trú á íslenskt stjórnkerfi og stjórnsýslu. Markmiðið er að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra, tryggja óhlutdrægni og traust á stjórnsýslu og ráðamenn og forðast að tengsl og trúnaðarupplýsingar séu nýttar í þágu erlendra aðila. Framtíðarstöðuveitingar hafi ekki áhrif Það er gríðarlega mikilvægt að embættisfærslur í tengslum við viðræður við erlenda aðila séu hafnar yfir allan vafa og hugsanlegar framtíðarstöðuveitingar geti til að mynda ekki haft þar áhrif. Frumvarpið er þannig lagt fram í samhengi við alþjóðlega umræðu um siðferði og hagsmunaárekstra í stjórnmálum. Fyrrum ráðamenn vestrænna ríkja hafa sætt gagnrýni vegna persónulegra ákvarðana eftir að hafa látið af embætti. Schröder, fv. kanslari Þýskalands, er nærtækt dæmi, en engan veginn einstakt. Mikilvægir hagsmunir, m.a. grundvallaratvinnuvegir, og möguleg eftirgjöf stórfelldra hagsmuna eru t.a.m. andlag viðræðna um inngöngu í ESB. Nú er því tíminn til að ræða það að við skerpum á reglum um starfsval að loknum þessum opinberu störfum. Það væri til þess fallið að auka traust, hlutleysi og gerir skýran greinarmun á eiginhagsmunum og hagsmunum þjóðarinnar. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Diljá Mist Einarsdóttir Sjálfstæðisflokkurinn Evrópusambandið Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar