„Fjárhagslega stór biti“ Stefán Árni Pálsson skrifar 10. mars 2026 12:03 Hjónin Bragi og Helga hafa verið í sjö ár að undirbúa kvikmyndina Röskun. Röskun er komin í bíó. Kvikmynd sem hjónin Bragi Þór Hinriksson og Helga Arnardóttir framleiða, en myndin er byggð á fyrstu bók Írisar Aspar Ingjaldsdóttur. Sindri Sindrason leit við í morgunkaffi hjá þeim hjónum í Ísland í dag á Sýn í gærkvöldi. „
Ég skrifaði þessa mynd hérna uppi á háalofti bara með smjör í hárinu í sjö ár, að skrifa einhvern þriller,“ segir Helga Arnardóttir þegar Sindri Sindrason leit við í morgunkaffi hjá þeim hjónum. Undanfarið hefur Bragi meira einbeitt sér að barnamyndum eins og til að mynda myndirnar um Sveppa „Ég hef áhuga á öllu sem tengist kvikmyndum og sérstaklega þrillerum eða sem sagt þessu sálfræðielementi. Vegna þess að áhorfandinn er svo mikið með af því að við svona sáum fræjum, þannig að áhorfandinn skynjar einhverja ógn og það er eitthvað á leiðinni og það er eitthvað hræðilegt, en það er ekkert sýnt sem er hræðilegt,“ segir Bragi. „Mér finnst þetta bara eitthvað spennandi og mér hefur alltaf þótt glæpir spennandi. Það bara keyrir mig áfram,“ segir Helga. Sindri skellti sér sjálfur í bíó og sá myndina. Það sem heillaði hann var myndatakan, tónlistin og íbúðin sem er eitt af sögusviðum myndarinnar. Reistu íbúð fyrir tökurnar „Þetta er bara byggt í stúdíói og líka bara af því þetta eru tvö tímabil. Þetta er sama íbúðin á tveggja ára tímabili. Þannig að við þurftum að byggja hana og dressa hana tvisvar fyrir báðar sögurnar. Það gaf okkur tækifæri til þess að nostra í tökunum,“ segir Bragi. Það tók þau hjónin sjö ár að koma þessari mynd á koppinn. „Við fengum góðan tíma til að þróa verkefnið og það er held ég lykilatriðið. Að vera með svolítið skothelt handrit til að fara af stað með. Það er líka ákveðið frelsi í því að framleiða sjálfur þó að það sé fjárhagslega stór biti. Þú hefur bara tekið þá ákvörðun að gefa þér tíma í að leikstýra og taka þinn tíma í það,“ segir Helga. „Myndin var þrjú, fjögur ár í undirbúningi og svo þurfti að rjúka í gegnum tökur. Stefnan var ekki að taka upp tíu blaðsíður af handriti á dag, við vorum búin að setja á þá reglu. Við ætluðum bara að gefa þessu tíma, að hver sena fengi að njóta sín og okkur tókst það,“ segir Bragi. En tók þetta verkefni á hjónabandið? „Við erum hér enn og ekki skilin og erum enn með sama lögheimili þannig að þetta gekk vel fyrir sig,“ segir Helga á léttum nótum. Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.
Bíó og sjónvarp Ísland í dag Kvikmyndagerð á Íslandi Mest lesið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Tólf barna móðir selur sveitadraum á Selfossi Lífið Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Tímamót hjá Árna Má Menning Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Lífið Fleiri fréttir Tólf barna móðir selur sveitadraum á Selfossi Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Sjá meira