Gagnrýndi Tarantino fyrir n-orðið og fékk gusuna yfir sig Magnús Jochum Pálsson skrifar 10. mars 2026 13:26 Rosanna Arquette baunaði á Tarantino sem svaraði heldur betur fyrir sig. Getty Leikkonan Rosanna Arquette gagnrýndi leikstjórann Quentin Tarantino vegna notkunar hans á n-orðinu og sagði hana ekki vera list heldur rasíska og ógeðslega. Tarantino svaraði Arquette fullum hálsi, sagði hana ekki hafa kvartað þegar hann gaf henni vinnu og að hana skorti bæði heiður og klassa.
Rosanna Arquette var í löngu viðtali hjá The Sunday Times um helgina vegna nýútkominnar myndar sinnar The Moment eftir Charli XCX og Aidan Zamiri. Arquette talaði þar um feril sinn til þessa, fjölskyldulífið og afleiðingar þess að hafa sagt nei við Harvey Weinstein á tíunda áratugnum. Meðal þess sem Arquette ræddi var glæpamyndin Pulp Fiction (1994) í leikstjórn Tarantino þar sem hún leikur Jody, eiginkonu eiturlyfjasalans Lance (sem Eric Stoltz lék). John Travolta, Rosanna Arquette og Eric Stoltz í hlutverkum sínum í Pulp Fiction. Uma Thurman liggur á gólfinu. „Hún er íkonísk, frábær mynd fyrir margra hluta sakir,“ sagði Arquette um Pulp Fiction. „En persónulega er ég komin með nóg af notkun n-orðsins, ég hata það. Ég þoli ekki að [Tarantino] hafi fengið einhvers konar leyfi fyrir því.“ „Það er ekki list, það er bara rasískt og ógeðslegt.“ Pulp Fiction er oft flokkuð sem besta mynd Tarantino og ratar jafnan á lista yfir bestu myndir allra tíma. Tarantino fékk bæði Gullpálmann á Cannes og Óskarsverðlaun fyrir besta handrit fyrir myndina. Í myndinni, líkt og öðrum myndum leikstjórans, er n-orðið notað óspart, þar á meðal fjölmörgum sinnum af persónunni Jimmie, sem Tarantino leikur sjálfur. Segir Arquette skorta klassa Quentin Tarantino svaraði gagnrýni Arquette fullum hálsi í yfirlýsingu sem dægurmálamiðillinn Deadline birti í gær. „Kæra Rosanna, ég vona að umfjöllunin sem þú hefur fengið frá 132 mismunandi fréttamiðlum, sem skrifað hafa nafn þitt og birt myndir af þér, sé þess virði að dissa mig og mynd sem ég man mjög skýrt að þú varst í sjöunda himni með að leika í,“ sagði Tarantino í yfirlýsingunni. Tarantino elskar n-orðið.Getty „Líður þér svona núna? Líklega. Að þú skulir, eftir að ég gaf þér vinnu og þú tókst við peningnum, urða svo yfir myndina, fyrir það sem ég gruna að séu bölsýnisástæður, sýnir skort á klassa og heiðri,“ sagði hann jafnframt. „Það á að vera samábyrgðarkennd (fr. esprit de corps) milli samstarfsmanna í listum. En mér sýnist þú hafa tekist markmið þitt. til hamingju,“ sagði hann að lokum og skrifaði undir yfirlýsinguna með upphafsstafnum Q. Oft verið gagnrýndur áður Tarantino hefur nokkrum sinnum áður sætt gagnrýni fyrir frjálslega notkun sína á n-orðinu í gegnum tíðina. Leikstjórinn Spike Lee sagði í viðtali við Variety árið 1997 að Tarantino „yfir sig hrifinn af orðinu.“ Þá spurði hann jafnframt hvort Tarantino vildi vera gerður að „heiðursblökkumanni“. Spike Lee er óhræddur við að gagnrýna fólk sé honum misboðið. Samuel L. Jackson, sem hafði þá leikið í bæði Pulp Fiction og Jackie Brown, kom Tarantino þá til varnar og sagði notkun orðsins ekki niðrandi í samhengi myndanna. „[Jackie Brown] er frekar góð mynd um svart fólk, ég held að Spike hafi ekki gert svoleiðis mynd lengi. Þegar Tarantino gerði vestrann Django Unchained (2012) með Jamie Foxx og Cristoph Waltz í aðalhlutverkum þá gagnrýndi Spike Lee leikstjórann aftur. „Bandarískt þrælahald var ekki Sergio Leone-spaghettívestri. Það var helför,“ sagði Lee þá. Þeldökki leikstjórinn Antoine Fuqua kom Tarantino til varnar í það skiptið og sagðist ekki trúa að Tarantino væri með „rasískt bein í sínum líkama“. Tarantino tjáði sig sjálfur um orðanotkunina í viðtali með Bret Easton Ellis í New York Times árið 2015 og sagði kynþátt sinn ekki skipta neinu máli. „Í mörgum ljótari umfjöllununum voru hvatir mínar dregnar fram á sem neikvæðastan máta. Það er eins og ég sé eitthvað ofur-illmenni að finna upp á þessu,“ sagði hann um gagnrýnina.
Bíó og sjónvarp Hollywood Bandaríkin Kynþáttafordómar Mest lesið Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Lífið Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Lífið Opnar sig um kvíða og þunglyndi Lífið „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Lífið Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Lífið Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Lífið Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Lífið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls Lífið Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Lífið Fleiri fréttir Endurlífguðu Kilmer með gervigreind fyrir fornleifamynd „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Cruise tekur á loft í þriðja sinn Gaylord Focker deyr ekki drottni sínum Joy Harmon er látin Höfði í stóru hlutverki í æsispennandi stiklu Tæplega helmingur tilnefndra leikara til Eddunnar erlendur Leikarinn Michael Patrick látinn eftir baráttu við MND Ólétt af fyrsta barni ári eftir andlát fyrrverandi Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi Hugmyndir að hámhorfi um páskana Hera verður ástkona JFK Margt að sjá í nýrri stiklu fyrir þættina um Harry Potter Colbert skrifar handrit nýrrar myndar úr Hringadróttinssögu Stjarna úr Married at First Sight látin Chuck Norris er látinn Breyta Reykjavík í kvikmyndagallerí út mánuðinn Chuck Norris lagður inn á spítala Spacey sleppur við dómsalinn með sátt við þrjá menn Senn kemur Zendaya: Sturlaðar stiklur fyrir Dune III og Köngulóarmanninn Færðu Penn Óskar fyrst hann missti af hátíðinni Sjöunda jafnteflið á 98 árum Bæði fyrsta konan og svarta manneskjan til að vinna One Battle After Another bar sigur úr býtum Hulunni svipt af Taskmaster Hvernig fer Óskarinn? Teboð með Ryan Gosling og helstu skvísunum í Smárabíói Rapparar slíðruðu sverðin á galaforsýningu Stikla úr Jóhönnu af Örk Gagnrýndi Tarantino fyrir n-orðið og fékk gusuna yfir sig Sjá meira