Kvótahopp og ESB Eggert Sigurbergsson skrifar 10. mars 2026 15:16 Í nýlegri grein hér á Vísi fjallar ágætur maður um sjávarauðlindina og hugsanlega ESB-aðild. Hann hafnar þeirri fullyrðingu að við inngöngu myndu erlendir aðilar kaupa upp íslensk skip, leggja niður sjávarpláss og flytja aflann óunninn úr landi. Hann segist hafa „aðeins“ kynnt sér málið og komist að þeirri niðurstöðu að þetta sé einfaldlega ekki rétt. Því miður virðist rannsóknarvinna þessa ágæta manns hafa stoppað áður en komið er að raunverulegum kjarna málsins: Grunnsáttmálum Evrópusambandsins. Það er algengur misskilningur hjá þeim sem tala fyrir ESB-aðild að Ísland geti haldið yfirráðum og hagnaði af fiskveiðiauðlindinni með einhvers konar sértækri íslenskri lagasetningu um kvótaúthlutanir innan sambandsins. Þessi nálgun sýnir að menn vaða um í villu og svima og skilja ekki hvernig kvótahopp, staðfesturéttur og frjálst flæði fjármagns virka í framkvæmd. Við fáum ekki undanþágu frá fjórfrelsinu Líkt og margir aðrir ESB-sinnar sem virðist trúa því að Evrópusambandið muni leyfa okkur að leika eftir okkar eigin reglum þegar kemur að eignarhaldi í sjávarútvegi. En raunveruleikinn er annar. ESB hvílir á fjórfrelsinu. Staðfesturétturinn sem tryggir erlendum ESB-fyrirtækjum rétt til að stofna og reka fyrirtæki, eða kaupa upp starfandi fyrirtæki, í hvaða aðildarríki sem er á nákvæmlega sömu kjörum og heimamenn. Frjálsu flæði fjármagns sem gerir ríkjum algjörlega ókleift að banna erlendum aðilum að kaupa hlutafé í innlendum fyrirtækjum. Ef Ísland gengur í ESB opnast íslenskur sjávarútvegur fyrir þessu flæði. Fáeinar stórauðugar fjölskyldur og alþjóðlegar samsteypur eiga megnið af sjávarútveginum í Evrópu. Fyrir þessa aðila munar lítið um að kaupa upp íslenskar útgerðir. Kvótahopp er fullkomlega löglegt í ESB Þegar erlend útgerð kaupir íslenskt sjávarútvegsfyrirtæki fylgja aflaheimildirnar með. Þetta kallast „kvótahopp“. Skipið fær vissulega úthlutaðan íslenskan kvóta frá íslenskum stjórnvöldum að nafninu til – en það er eignarhaldið sem skiptir máli. Erlendi eigandinn getur ráðstafað fiskinum og hagnaðinum eftir eigin þörfum, sem oftar en ekki þýðir að fjármagnið rennur beint úr landi til móðurfélagsins. Þetta er ekki hugmyndaflug, þetta er blákaldur veruleiki hins sameiginlega markaðar. ESB-sinnar ættu að kynna sér Factortame-málið Ef ESB-sinnar trúa því í alvöru að við getum sett lög til að verjast þessu, ættu þeir að kynna sér reynslu Breta. Á níunda áratugnum keyptu spænskar útgerðir upp bresk fiskiskip til að komast yfir breskan kvóta. Bretar brugðust við með lögum (Merchant Shipping Act 1988) sem kröfðust þess að skip skráð í Bretlandi væru að meirihluta í eigu breskra ríkisborgara. Evrópudómstóllinn dæmdi bresku lögin ólögmæt í hinu þekkta Factortame-máli, þar sem þau brutu gegn staðfesturétti ESB. Bretar neyddust til að afnema eigin lög og borga skaðabætur til spænsku útgerðanna. Niðurstaðan er óyggjandi: ESB-réttur og staðfesturéttur trompa alltaf innlend lög um kvótaúthlutanir. Krafan um „efnahagsleg tengsl“ Í ljósi þessa benda ESB-sinnar stundum á að ríki geti samt sett kröfur um sérstök efnahagsleg tengsl. Þeir halda því fram að við gætum skilyrt kvótann við að útgerðin styðji við nærsamfélagið eða hafnirnar. En þetta haldreipi hefur nú þegar verið prófað fyrir ESB-dómstólnum og reynst afar götótt. Eftir að hafa tapað Factortame-málinu reyndu Bretar að bjarga því sem bjargað varð með því að setja skilyrði um að útgerðir yrðu að sýna fram á raunveruleg „efnahagsleg tengsl“ við Bretland. Þá komu tveir stórir dómar: Jaderow-málið (C-216/87) og Agegate-málið (C-3/87). Dómstóllinn úrskurðaði þar að ríki mættu vissulega setja áhöfn og rekstur skipa skorður að einhverju leyti (svo sem að skip þyrftu að landa hluta afla eða heimsækja höfn), EN dómstóllinn tók skýrt fram að þessi „efnahagslegu tengsl“ mættu aldrei brjóta gegn réttindum evrópskra borgara. Þau mega ekki fela í sér mismunun á grundvelli þjóðernis, og þau mættu alls ekki hindra erlent fjármagn í að streyma til eigenda sinna. Til dæmis mátti ekki einu sinni krefjast þess að áhöfnin væri meirihluti breskra ríkisborgara – það dugði að þeir væru frá hvaða ESB landi sem er. Niðurstaða ESB-dómstólsins var skýr: Þú getur kannski neytt erlenda útgerð til að dýfa landfestum í innlenda höfn við og við, en þú getur aldrei neytt útgerðina til að skilja arðinn eftir í landinu og þú getur ekki stjórnað hver á hana. Blekkjum ekki okkur sjálf Ástæðan fyrir því að útlendingar hafa ekki keypt upp íslenskan sjávarútveg nú þegar er einungis sú að sjávarútvegur er undanskilinn EES-samningnum. Vegna þeirrar undanþágu geta íslensk lög enn þá bannað erlendum aðilum að eiga meira en 25% (eða 33% óbeint) í íslenskum útgerðum. Við þurfum vissulega að kynna okkur málin vel svo hver sem er geti ekki logið hverju sem er að okkur. Og það fyrsta sem við þurfum að horfast í augu við er þessi lagalega staðreynd: Lög um kvótaúthlutun duga skammt ef lög um eignarhald og staðfesturétt standa opin upp á gátt. Ef við göngum í ESB er það staðfesturétturinn og frjálst flæði fjármagns sem ræður ferðinni, ekki Alþingi Íslendinga. Það er ekki aðeins verið að ræða um auðlindir okkar og velferð um ókomna tíð, heldur einnig þá hættu að sjávarþorpið Ísland, í útjaðri Bandaríkja Evrópu, heyri sögunni til – sem stundum mætti ætla að væri markmið sumra hér á landi. Höfundur lærði viðskipta- og sjávarútvegsfræði við Háskólann á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eggert Sigurbergsson Sjávarútvegur Evrópusambandið Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson Skoðun Kristján Loftsson og stalínistarnir Arngrímur Stefánsson Skoðun Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson Skoðun Ofveiðin í ESB fyrir 500 árum Sigurjón Þórðarson Skoðun Að þýða texta er ekki það sama og að búa til námsefni Bogi Ragnarsson Skoðun Lögreglan auglýsir eftir vilja löggjafans Elías Blöndal Guðjónsson Skoðun Almyrkvinn 2026 – besta áhorfssvæðið gæti verið heima hjá þér Dagbjartur Kr. Brynjarsson Skoðun Getum við gert betur fyrir íslensk heimili? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson Skoðun Pílagrímaganga fyrir líkama og sál Sr. Arna Grétarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Kristján Loftsson og stalínistarnir Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Að þýða texta er ekki það sama og að búa til námsefni Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Ólafur Ragnar Grímsson og Cherry-picking Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Pílagrímaganga fyrir líkama og sál Sr. Arna Grétarsdóttir skrifar Skoðun Hatursorðræða á ekki heima í íþrótta- og æskulýðsstarfi Þóra Sigfríður Einarsdóttir,Kristín Skjaldardóttir,Eygló Ósk Gústafsdóttir skrifar Skoðun Lögreglan auglýsir eftir vilja löggjafans Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson skrifar Skoðun Kveðum niður gyðingahatur Guðmundur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Almyrkvinn 2026 – besta áhorfssvæðið gæti verið heima hjá þér Dagbjartur Kr. Brynjarsson skrifar Skoðun Hvalfjarðarsveit kallar eftir samtali við Vegagerðina um umferðaröryggi Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Tæknin kemur hratt - en ávinningurinn ekki sjálfkrafa Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Óafsakanlegt, en ekki óleysanlegt Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ofveiðin í ESB fyrir 500 árum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Getum við gert betur fyrir íslensk heimili? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun FIFA skapar nýja skúrka Bragi V. Bergmann skrifar Skoðun Vangaveltur Hörður Torfason skrifar Skoðun Þegar stórveldin gera það sem þeim sýnist er ESB okkar besti kostur Eiríkur Ragnarsson skrifar Skoðun Nærri þrír vinnumánuðir á ári – hinn ósýnilegi kostnaður endómetríósu Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Temu-pakkar JP Zimsen eða alvöru hagsmunir Íslands Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Bless tollfrjálsu Temu, Shein og Alibaba Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun En stelirðu miklu... Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Menntun fyrir mennsku Fanney Dóróthe Halldórsdóttir skrifar Skoðun Ekki má draga víðtækar ályktanir af veikum gögnum Helga Rósa Másdóttir,Steinunn Þórðadóttir skrifar Skoðun Krónuskatturinn á kynslóðirnar: mesti skattur Íslandssögunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Það er mér í hag að hinsegin fánar séu sýnilegir Daníel Ágúst Gautason skrifar Skoðun Minnir á kafla úr bók Franz Kafka Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Kannski erum við að spyrja rangra spurninga Haukur Logi Jóhannsson skrifar Sjá meira
Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson Skoðun
Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson Skoðun
Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson skrifar
Skoðun Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar
Skoðun Hatursorðræða á ekki heima í íþrótta- og æskulýðsstarfi Þóra Sigfríður Einarsdóttir,Kristín Skjaldardóttir,Eygló Ósk Gústafsdóttir skrifar
Skoðun Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson skrifar
Skoðun Almyrkvinn 2026 – besta áhorfssvæðið gæti verið heima hjá þér Dagbjartur Kr. Brynjarsson skrifar
Skoðun Hvalfjarðarsveit kallar eftir samtali við Vegagerðina um umferðaröryggi Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar
Skoðun Þegar stórveldin gera það sem þeim sýnist er ESB okkar besti kostur Eiríkur Ragnarsson skrifar
Skoðun Nærri þrír vinnumánuðir á ári – hinn ósýnilegi kostnaður endómetríósu Jón Ívar Einarsson skrifar
Skoðun Ekki má draga víðtækar ályktanir af veikum gögnum Helga Rósa Másdóttir,Steinunn Þórðadóttir skrifar
Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson Skoðun
Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson Skoðun