Borgarlína – og hvað svo? Þórir Garðarsson skrifar 12. mars 2026 12:31 Borgarlínan hefur verið kynnt sem eitt stærsta samgönguverkefni sem ráðist verði í á höfuðborgarsvæðinu. Framkvæmd sem getur haft veruleg áhrif á skipulag borgarinnar, ferðavenjur íbúa og opinber fjármál til áratuga. Þrátt fyrir það liggur enn ekki fyrir skýr og samfelld heildarmynd af verkefninu. Bútasaumur í skipulagi Í stað þess að leggja fram eina heildstæða skipulagsáætlun hefur Borgarlínan verið kynnt í mörgum aðskildum deiliskipulagsáföngum. Sumir kaflar leiðarinnar hafa verið samþykktir, aðrir eru enn í vinnslu og víða eru útfærslur óljósar. Fyrir íbúa, fyrirtæki og alla þá sem treysta á samgöngukerfið er erfitt að átta sig á hvernig heildarverkefnið á að líta út þegar upp verður staðið. Þegar framkvæmd af þessari stærðargráðu er annars vegar þarf almenningur – sem á að borga reikninginn – að geta séð skýra og samfellda heildarmynd, ekki brotakennda framsetningu í mörgum ólíkum skipulagsgögnum. Óvissa um fjármögnun Á sama tíma er fjármögnun verkefnisins enn óljós. Kostnaðaráætlanir hafa hækkað og ekki liggur fyrir endanleg fjármögnun fyrir heildarverkefnið. Talað hefur verið um veggjöld eða aðrar tekjuöflunarleiðir, en slíkt hefur hvorki verið útfært né samþykkt með afgerandi hætti. Þegar um er að ræða opinbera framkvæmd sem kostar samfélagið hundruð milljarða króna þarf að gera heildstæð verk- og fjármálaáætlun, raunhæfa kostnaðargreiningu og vandaða framkvæmdaáætlun sem gerir grein fyrir tímasetningu framkvæmda. Þá fyrst verður hægt að taka upplýsta og ábyrga ákvörðun um þetta risavaxna innviðaverkefni. Þangað til ætti að stöðva frekari vinnu við Borgarlínuna. Höfundur er stjórnarmaður í Félagi Sjálfstæðismanna í Grafarvogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórir Garðarsson Borgarlína Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Sjá meira
Borgarlínan hefur verið kynnt sem eitt stærsta samgönguverkefni sem ráðist verði í á höfuðborgarsvæðinu. Framkvæmd sem getur haft veruleg áhrif á skipulag borgarinnar, ferðavenjur íbúa og opinber fjármál til áratuga. Þrátt fyrir það liggur enn ekki fyrir skýr og samfelld heildarmynd af verkefninu. Bútasaumur í skipulagi Í stað þess að leggja fram eina heildstæða skipulagsáætlun hefur Borgarlínan verið kynnt í mörgum aðskildum deiliskipulagsáföngum. Sumir kaflar leiðarinnar hafa verið samþykktir, aðrir eru enn í vinnslu og víða eru útfærslur óljósar. Fyrir íbúa, fyrirtæki og alla þá sem treysta á samgöngukerfið er erfitt að átta sig á hvernig heildarverkefnið á að líta út þegar upp verður staðið. Þegar framkvæmd af þessari stærðargráðu er annars vegar þarf almenningur – sem á að borga reikninginn – að geta séð skýra og samfellda heildarmynd, ekki brotakennda framsetningu í mörgum ólíkum skipulagsgögnum. Óvissa um fjármögnun Á sama tíma er fjármögnun verkefnisins enn óljós. Kostnaðaráætlanir hafa hækkað og ekki liggur fyrir endanleg fjármögnun fyrir heildarverkefnið. Talað hefur verið um veggjöld eða aðrar tekjuöflunarleiðir, en slíkt hefur hvorki verið útfært né samþykkt með afgerandi hætti. Þegar um er að ræða opinbera framkvæmd sem kostar samfélagið hundruð milljarða króna þarf að gera heildstæð verk- og fjármálaáætlun, raunhæfa kostnaðargreiningu og vandaða framkvæmdaáætlun sem gerir grein fyrir tímasetningu framkvæmda. Þá fyrst verður hægt að taka upplýsta og ábyrga ákvörðun um þetta risavaxna innviðaverkefni. Þangað til ætti að stöðva frekari vinnu við Borgarlínuna. Höfundur er stjórnarmaður í Félagi Sjálfstæðismanna í Grafarvogi.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar