„Viljum alls ekki fá fólk hingað inn og skamma það“ Stefán Árni Pálsson skrifar 13. mars 2026 14:02 Unnsteinn, Jónmundur og Davíð fara með aðalhlutverkin í sýningunni Gæðablóð. Þeir Unnsteinn Manuel og leikararnir Jónmundur Grétarsson og Davíð Þór Katrínarson fara þrír með aðalhlutverkin í verkinu Gæðablóð í Þjóðleikhúsinu.
Þar segja þeir frá reynslu sinni og upplifun af því að alast upp á Íslandi. Verkið hefur verið í vinnslu í um sjö ár frá því að Jónmundi datt í hug að sviðsetja þennan raunveruleika. „Það getur oft verið súrrealískt. Við lendum í aðstæðum þar sem maður er bara, já ókei gerðist þetta bara. Við erum að endurupplifa þannig móment aftur og aftur og nú erum við búin að sviðsetja þau,“ segir Unnsteinn í Íslandi í dag á Sýn í gærkvöldi. „Eins og við segjum í sýningunni, við erum bara frekar týpískir Íslendingar og við höfum svona hlotið alveg að mestu leyti sömu félagsmótun og karlmenn á okkar aldri, bara sem alast upp hérna í Garðabænum eða Vesturbænum. En það kemur fólki alltaf mikið á óvart að það sé raunin. Við erum líka svolítið að draga það fram og benda á skekkjuna sem við einhvern veginn lendum í,“ segir Davíð Þór. Hópurinn á bakvið sýninguna en Þóra Karítas Árnadóttir er leikstjóri verksins. „Ísland er líka svo sérstakt. Það er svo ótrúlega lítið land og það er svo einsleitt þannig að maður stendur alltaf út úr. Sama í hvaða hópi þú ert,“ segir Unnsteinn. Sögur þeirra taka svo sannarlega fyrir allan skalann og geta verið allt frá því að vera sprenghlægilegar yfir í að vera djúpstæðar og tilfinningaþrungnar. Þeir til að mynda nefna til sögunnar atvik þegar kona í Hafnarfirði trúði því einfaldlega ekki að Jónmundur bæri það nafn. Húmor eina leiðin „Og okkur fannst það svo fyndið. Við settum það inn í sýninguna. Þannig að eina leiðin til að tala um eitthvað svona held ég að sé með húmor,“ segir Unnsteinn. „Það var það sem við lögðum upp með alveg frá byrjun og vildum nota þá leið,“ segir Jónmundur. „Því við viljum alls ekki fá fólk hingað inn og skamma það. Við erum bara að segja frá okkar upplifun og hún er bráðfyndin,“ segir Unnsteinn en hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni þar sem þremenningarnir fara nánar yfir sýninguna. Verkið var frumsýnt í gærkvöldi.
Ísland í dag Þjóðleikhúsið Leikhús Kynþáttafordómar Mest lesið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Menning Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Lífið Fleiri fréttir Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Sjá meira