Rammagerðin fari með fleipur í fjölmiðlum og beri sjálf ábyrgð á stöðunni Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 15. mars 2026 15:07 Sveinbjörn Indriðason er forstjóri Isavia. Vísir/Vilhelm Sveinbjörn Indriðason forstjóri Isavia segir forsvarsfólk Rammagerðarinnar hafa farið með rangfærslur í fjölmiðlum og að staðan sem upp er kominn sé vegna ákvarðana sem Rammagerðin hafi tekið í sjálf í rekstri sínum.
Isavia lokaði í fyrrinótt öllum þremur verslunum Rammagerðarinnar á Keflavíkurflugvelli og Sveinbjörn segir að síðastliðinn þriðjudag hafi Isavia rift samningnum við Rammagerðina vegna vanefnda af hálfu hennar. Lydía Kims framkvæmdastjóri Rammagerðarinnar segir félagið hafa fengið greiðsluskjól vegna vangreiddrar leigu samkvæmt dómsúrskurði. „Við á Keflavíkurflugvelli tjáum okkur almennt ekki um málefni einstaka viðskiptafélaga og leggjum áherslu á að vinna með þeim að úrlausn mála á grundvelli gagnkvæms traust. Því miður eru ummæli forsvarsfólks Rammagerðarinnar í fjölmiðlum þess að eðlis að við sjáum okkur knúin til að bregðast við þeim og koma á framfæri réttum upplýsingum,“ segir Sveinbjörn Indriðason forstjóri Isavia í tilkynningu frá félaginu. Málið átt sér aðdraganda Hann segir að rekstrarleyfissamningur um rekstur gjafavöruverslunar í flugstöðinni hafa verið í gildi og að samkvæmt honum hafi Rammagerðin skuldbundið sig til að greiða leiguna vangoldnu á eigin forsendum. „Unnið hefur verið samkvæmt þessum samningi og hafa öll mál sem upp hafa komið verið leyst farsællega með gagnkvæmu samkomulagi þar til nú.“ Þann þriðja mars hafi Rammagerðinni verið birt greiðsluáskorun vegna vanskila með vísan til samningsins og svo síðastliðinn þriðjudag hafi Isavia rift samningnum. „Vanskil Rammagerðarinnar voru ekki nýtilkomin. Það kom þó ekki í veg fyrir það að við hjá Isavia unnum hörðum höndum fram á síðustu mínútu að finna leiðir til að Rammagerðin, okkar viðskiptafélagi, gæti haldið áfram starfsemi sinni á Keflavíkurflugvelli, en á sama tíma uppfyllt þær skyldur sem lög, sérleyfisreglugerðin og opinbert eignarhald setur Isavia. Því miður tókst forsvarsfólki Rammagerðarinnar ekki að leysa úr sínum málum,“ segir Sveinbjörn. Hönnuðir og handverksfólk verði fyrir tjóni Í lok dags á föstudaginn hafi Isavia svo borist tilkynning um að Rammagerðin hefði óskað eftir heimild til greiðslustöðvunar eftir að samningnum var rift. „Því miður er það ekki bara Isavia sem verður fyrir tjóni heldur fjöldinn allur af aðilum, þar á meðal frábærir íslenskir hönnuðir og handverksfólk, sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að framleiðslu á þeim gæðavörum sem Rammagerðin hefur haft til sölu í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli.“ „Okkur þykir miður að forsvarsfólk Rammagerðarinnar hafi farið með rangfærslur í fjölmiðlum en auðvitað er það þannig að staðan sem nú er upp komin er vegna þeirra ákvarðana sem þau hafa tekið sjálf í sínum rekstri til þessa,“ segir Sveinbjörn Indriðason forstjóri Isavia.
Keflavíkurflugvöllur Isavia Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Fleiri fréttir Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Sjá meira