Íslendingur fagnaði Óskarsverðlaunum Jakob Bjarnar skrifar 16. mars 2026 14:15 Íslendingar flækjast víða og í nótt bættist okkur eitt stykki Óskarsverðlaunahafi í safnið: Friðrik Hilmarsson hlaut verðlaun fyrir að vera yfirframleiðandi Sentimental Value sem sigraði í flokki erlendra kvikmynda. Friðrik Hilmarsson var meðal þeirra sem fögnuðu innilega þegar norska kvikmyndin Sentimental Value var valin besta erlenda kvikmyndin. Friðrik er titlaður framleiðandi eða „executive producer“ myndarinnar en hann á að baki gott samstarf með leikstjóranum Joachim Trier.
Þau eru ekki mörg Óskarsverðlaunin sem fallið hafa í skaut okkar Íslendinga og því ekki nema von að uppi verði fótur og fit þegar Íslendingur kemur við sögu á hátíðinni. Ásgrímur Sverrisson kvikmyndasérfræðingur segir þetta vissulega áfanga. Hildur Guðnadóttir vann fyrir tónlistina í Joker árið 2020. Friðrik Þór Friðriksson var tilnefndur fyrir Börn náttúrunnar í flokki bestu erlendu kvikmyndar árið 1992. Björk Guðmundsdóttir og Sjón voru tilnefnd fyrir lagið I’ve Seen it All úr kvikmyndinni Dancer in the Dark árið 2001. Rúnar Rúnarsson og Þórir Snær Sigurjónsson kvikmyndagerðarmenn hlutu svo tilnefningu árið 2006 fyrir stuttmyndina Síðasti bærinn. Þýðing fyrir íslenska kvikmyndagerð? Ásgrímur Sverrisson hefur fylgst vel með ferli Friðriks Hilmarssonar sem hefur starfað við kvikmyndagerð í Noregi nú í um þrjátíu ár.gísli snær „Góð spurning. Ég veit það ekki,“ segir Ásgrímur spurður hvort þetta hafi einhverja þýðingu fyrir kvikmyndageirann íslenska sem á reyndar nú í vök að verjast. Ásgrímur hefur fylgst vel með störfum Friðriks í Noregi hvar hann hefur starfað undanfarna áratugi. „Ég heyri alltaf nokkuð reglulega í honum. Hann gerði leikmyndir fyrir margar norskar myndir um árabil, stýrði svo Rubicon framleiðslufyrirtækinu í Noregi, síðan hjá Viaplay og nú stýrir hann Oslo Film Fund. Ásgrímur nefnir að Friðrik hafi til að mynda verið framleiðslustjóri á myndinni Thelma sem Joachim Trier gerði fyrir nokkrum árum þannig að þeir eru gamlir samstarfsmenn. Friðrik flutti fyrir mörgum árum til Noregs hvar kvikmyndagerð stendur með miklum blóma, eins og sýnir sig meðal annars í þessum verðlaunum. „Friðrik kynntist konu sinni Tove í Nonna og Manna, hún var þar fjármálastjóri. Hann fer síðan með henni til Noregs og haslar sér þar völl,“ segir Ásgrímur.
Bíó og sjónvarp Kvikmyndagerð á Íslandi Óskarsverðlaunin Noregur Mest lesið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Tólf barna móðir selur sveitadraum á Selfossi Lífið Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Tímamót hjá Árna Má Menning Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Lífið Fleiri fréttir Tólf barna móðir selur sveitadraum á Selfossi Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Sjá meira