Eins og ef einhver myndi hella vatni yfir tölvu Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 16. mars 2026 22:50 Gunnar segir nauðsynlegt að rætt sé um sjúkdóminn. Sjúkraþjálfari sem fékk Long Covid árið 2020 og er öryrki í dag líkir líkama sínum við tölvu sem einhver hafi hellt vatni yfir. Alþjóðlegur dagur Long Covid var í gær og segir sjúkraþjálfarinn hann bráðnauðsynlegan, þeir sem greinist með veikindin mæti enn skilningsleysi. „
Þetta kerfi sér um svo margt, þetta ósjálfráða taugakerfi okkar, það heldur þeim hlutum gangandi sem að við eigum ekki að vera að þurfa að hugsa um dagsdaglega, hjartslætti og öndun og eitthvað svona. Og svo ef einhver fer að lauma sér þar inn í, þá geturðu bara ímyndað þér, það er svona eins og ég myndi hella vatni yfir tölvuna þína. Þú veist ekkert hvað gerist. Einn daginn þá virkar F sem G eða upphrópunarmerki,“ segir Gunnar Önnu Svanbergsson sjúkraþjálfari. Hann ræddi málið í Reykjavík síðdegis og skrifaði á dögunum skoðanagrein vegna málsins á Vísi. Hann segir að talið sé að eitt prósent Íslendinga, um fjögur þúsund manns, séu með sjúkdóminn. Hann geti haft áhrif á hjarta, lungu, æðakerfi, taugakerfi og meltingarfæri. Algengustu einkennin séu þreyta örmögnunarköst eftir áreiti, verkir í vöðvum, liðum, öndunarerfiðleikar, höfuðverkur, erfiðleikar við hugsun og einbeitingu, heilaþoka og breytingar á bragðskyni. Hefur upplifað allskonar einkenni Gunnar sýktist af veirunni jólin 2020. Hann segist fyrst hafa furðað sig á því hvað hann væri lengi að jafna sig eftir veikindin, fyrst hafi hann upplifað þreytu og fengið lungnabólgu. Síðan hafi einkennin ágerst. Hann hafi áður verið mikill íþróttagarpur, duglegur uppi á fjöllum, fjallaskíðum og fjallahjólum sem dæmi. „Ég átti mitt eigið sjúkraþjálfarafyrirtæki og ég seldi minn hlut í fyrra. Því þeir sem eru eigendur þurfa að vinna, gera og það var erfitt að vera heima og gera ekki neitt.“ Hvernig er þá venjulegur dagur hjá þér svona í grófum dráttum? „Ég fer á fætur með konunni minni og færi henni kaffi í rúmið og ég fæ mér kaffi. Ég fer svo fram og tek lyfin mín. Og fer yfirleitt svo aftur inn í svona hálftíma, klukkutíma, til að lyfin fari að virka. Og þá er svona pínu eins og maður sé togaður upp úr þokunni. En að ætla sér að fara á fætur á morgnana, það er alveg eins og ég hafi misst úr, ef ég á að reyna að líkja því saman við eitthvað áður, viku í svefni. Ég vakna miklu, miklu þreyttari heldur en þegar ég fór að sofa.“ Hann segir nauðsynlegt að það sé talað um sjúkdóminn, þörf sé á þessum árlega degi til að vekja athygli á honum. Hópurinn mæti enn fálæti, þó það hafi farið batnandi frá því 2020. „Það fer batnandi. En það er enn til nóg af fólki í minni stöðu og í ábyrgðastöðu sem á að taka á móti fólki sem tekur ekki vel á móti fólki. Finnst þetta bara óskaplegt væl.“ Sjúkdómurinn sé stöðugt betur rannsakaður. Hann segir að vitað sé að veiran taki yfir stöðvar í vöðvum sem séu orkustöðvar. „Og ef hún fær að taka yfir mikið af orkustöðvum, þá er náttúrulega bara lítið eftir af vöðvunum, sem þýðir að vöðvinn sýrnar og vöðvarnir sýrna mjög hratt, og þú framleiðir mjólkursýru í óhóflegu magni og hún fer svo að fara út um allt.“
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Reykjavík síðdegis Tengdar fréttir „Síðustu tvö ár hafa verið helvíti“ Sigríður Elín Ásgeirsdóttir er ein af þeim fjölmörgu Íslendingum sem hafa þurft að glíma við langtímaveikindi í kjölfarið á COVID-19. Hún var áður heilsuhraust og í fullri vinnu en eftir tvær bólusetningar og þrjú Covid-smit hefur líf hennar tekið algjöra kollsteypu að hennar sögn. 21. apríl 2024 08:01 Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Fleiri fréttir Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Sjá meira
„Síðustu tvö ár hafa verið helvíti“ Sigríður Elín Ásgeirsdóttir er ein af þeim fjölmörgu Íslendingum sem hafa þurft að glíma við langtímaveikindi í kjölfarið á COVID-19. Hún var áður heilsuhraust og í fullri vinnu en eftir tvær bólusetningar og þrjú Covid-smit hefur líf hennar tekið algjöra kollsteypu að hennar sögn. 21. apríl 2024 08:01