Færðu Penn Óskar fyrst hann missti af hátíðinni Magnús Jochum Pálsson skrifar 18. mars 2026 13:19 Penn var kampakátur með úkraínska Óskarinn sem hann fékk í vikunni. Ukrzaliznytsia Yfirmaður úkraínska járnbrautarkerfisins færði leikaranum Sean Penn silfraðan Óskar úr lestarbraki. Penn hafði sleppt því að mæta á Óskarinn um helgina, þar sem hann var valinn besti leikarinn í aukahlutverki, til að heimsækja Úkraínu.
Sean Penn hlaut sinn þriðja Óskar um helgina þegar hann var valinn besti leikarinn í aukahlutverki fyrir leik sinn sem Steven J. Lockjaw í hasarmyndinni One Battle After Another. Áður hafði hann fengið Óskarsverðlaun fyrir leik sinni í Mystic River (2004) og Milk (2009). Penn hafði sleppt því að mæta á flestallar verðlaunahátíðirnar í aðdraganda Óskarsins (og áður sleppt því að mæta á hátíðina) þegar hann var tilnefndur þannig það kom ekki sérlega mikið á óvart þegar hann var hvergi sjáanlegur um helgina. Selinskí og Penn funduðu á mánudaginn.EPA Á mánudaginn kom í ljós að Penn var staddur í Úkraínu á sama tíma og hátíðin fór fram og náðist á mynd í miðborg Kænugarðs með sólgleraugu og sígarettupakka. Selinskí birti síðan mynd af þeim félögum saman í forsetaskrifstofunni. Penn hefur farið reglulega til Úkraínu á síðustu árum, fundað með Selinskí og gert heimildarmynd um forsetann. Sjá einnig: Sean Penn gerir heimildarmynd um innrás Rússa í Úkraínu Fyrst Penn missti af Óskarnum ákvað Oleksandr Pertsovskyi, yfirmaður úkraínska járnbrautarkerfisins, að færa leikaranum silfraðan, úkraínskan Óskar búinn til úr braki lestarvagns sem hafði orðið fyrir rússneskri eldflaug. „Þú misstir af Óskarnum,“ sagði Pertsovskyi þegar hann færði leikaranum styttuna. „Svo gafstu forsetanum líka þann síðasta þannig við gerðum þennan fyrir þig,“ bætti hann við en Penn lánaði Selenskí einn af Óskurunum sínum árið 2022. View this post on Instagram A post shared by Укрзалізниця — Ukrzaliznytsia (@ukrainianrailways) „Þetta er úr lestarvagni sem Rússarnir eyðilögðu,“ sagði Pertsovskyi og bætti svo við: „Hann er ekki úr gulli en hann er raunverulegur og frá okkar dýpstu hjartarótum.“ „Þetta eru allt fjársjóðir, þakka þér fyrir,“ svaraði Penn. Árið 2022 lánaði Penn forsetanum einn af Óskurunum sínum tveimur og sagði: „Þessi er fyrir þig, þetta er bara táknrænna kjánalegur hlutur, en ef ég veit af honum hér hjá þér mun mér líða betur og sterkar fyrir bardagann.“ „Þegar þú sigrar kemurðu með hann aftur til Malibu. Mér mun líða miklu betur vitandi að hluti af mér er hér,“ sagði hann jafnframt.
Úkraína Óskarsverðlaunin Hollywood Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Lífið Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Lífið Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Lífið Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Lífið Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Menning Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Lífið Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Bíó og sjónvarp Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið Fólk eigi ekki að vera feimið við sleipiefnið Heilsa „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið Fleiri fréttir Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Danny Glover með Alzheimer Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Michael Byrne er látinn Fyrsta stiklan úr mynd Eggers og Sjónar James Burrows látinn Laufey Lín er mætt til Springfield Ef meðferðarlotan beri ekki árangur verði hann ekki í næstu þáttaröð Tyra Banks kærir Netflix fyrir ærumeiðingar Ekki talað við Franco lengi og vill ekki vinna með honum aftur Þórður leikstýrir kvikmyndaútgáfu Dead by Daylight Margaret Kerry er látin Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Harbour rýfur þögnina Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Biðst afsökunar á áratugagömlu gríni með „blackface“ Youtube-leikstjórar kaffærðu Stjörnustríði Sjá meira