Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Þórarinn Þórarinsson skrifar 19. mars 2026 08:56 Ásta Kristín er sú fyrsta í sögu Íslensku tónlistarverðlaunanna sem afsalar sér verðlaunum og fyrri tilnefningum. „Ég hef tekið þá ákvörðun að afsala mér Íslensku tónlistarverðlaununum og öllum þeim tilnefningum sem ég hef hlotið,“ segir tónlistarkonan Ásta Kristín Pjetursdóttir og þar með hafi hún sagt sitt síðasta í málinu sem hófst með „til- og fránefningu“ hennar til verðlaunanna í ár. „
Eftir atburði undanfarinna tveggja vikna er varða til- og fránefningu mína til Íslensku tónlistarverðlaunanna og eftirmála þess, hef ég ákveðið að slíta allri tengingu minni við verðlaunin og afsala mér þeim verðlaunum sem ég hlaut í mars árið 2020 fyrir plötu ársins,“ segir Ásta Kristín í tilkynningu. Platan Sykurbað kom út 2019 en auk verðlaunanna sem besta platan í flokki þjóðlagatónlistar skilaði hún Ástu Kristínu tilnefningum til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2020 sem söngkona ársins og fyrir lag ársins, Sykurbað. Ásta Kristín lætur þess jafnframt getið í tilkynningu sinni að auk þess sem hún afsali sér verðlaununum hafi hún „óskað eftir því að nafn hennar verði fjarlægt af lista yfir þær tilnefningar sem hún hefur hlotið í gegnum tíðina.“ Mælirinn fullur Ásta er söngkona, lagahöfundur og víóluleikari, sem hefur tekið virkan þátt í íslensku tónlistarlífi um árabil, og segist ekki taka þessa ákvörðun í neinu óðagoti heldur eftir tveggja vikna stopul samskipti við „ ábyrgðaraðila hátíðarinnar“ og að hennar mati ófullnægjandi svör við spurningum hennar um hvað varð til þess að henni barst tilkynning um tilnefningu sem skömmu síðar var afturkölluð. Hún segir í samtali við Vísi að mælirinn hafi verið fullur á mánudaginn eftir árangurslausar tilraunir til að ná símsambandi við Kristján Frey Halldórsson, framkvæmdastjóra Íslensku tónlistarverðaunanna, og Guðrúnu Björk Bjarnadóttur, framkvæmdastjóra Samtóns. Þá hafi hún ákveðið að afsala sér verðlaununum frá 2020 og slíta á öll sín tengsl við Íslensku tónlistarverðlaunin og upplýst þau Kristján og Guðrúnu um það með tölvupósti. Númer sex af fimm Í kjölfarið hafi hún heyrt frá þeim, hvoru í sínu lagi, og Kristján Freyr hafi þá „eftir allan þennan tíma“ tjáð henni að hún hafi verið á lista yfir „topp 6“ tilnefndra sem flytjandi ársins og að „dómnefnd hafi láðst að fjarlægja nafnið mitt“ þar sem aðeins fimm tilnefningum er til að dreifa. Þá hafi Kristján beðið hana að endurskoða ákvörðun sína og ítrekað afsökunarbeiðni vegna þeirra mistaka sem settu þessa leiðinlegu atburðarás af stað. „En ég fullvissaði hann um það að ég væri búin að taka þessa ákvörðun vegna þess að mér líður ekki vel með þetta allt saman og að það sé minn vilji að taka skref í burtu frá Íslensku tónlistarverðlaununum.“ Kristján Freyr er framkvæmdastjóri Íslensku tónlistarverðlaunanna.Vísir/Einar Guðrún Björk hafi síðan svarað henni með tölvupósti þar sem hún segir að sér þyki leitt að Ásta Kristín hafi komist að þessari niðurstöðu en bendi henni síðan á að ef hún vilji geti hún skilað verðlaunagripnum á skrifstofu STEFs. „Ég hugsa að ég komi bara við á skrifstofu STEFs í minni næstu Reykjavíkurferð og skili verðlaunagripnum til þeirra í eigin persónu,“ segir Ásta Kristín, sem býr á Ísafirði, þegar hún er spurð hvort og þá hvernig hún hyggist skila verðlaunagripnum.Hún bætir jafnframt við að málinu og skeytasendingum vegna þess sé hér með lokið af hennar hálfu. „ Ég hef sagt allt mitt í þessu máli.“Þetta mun vera fyrsta og eina skiptið í sögu Íslensku tónlistarverðlaunanna sem listamaður afsalar sér verðlaunum og fyrri tilnefningum en Ásta Kristín gerir nokkuð ítarlega grein fyrir ástæðum sínum í yfirlýsingu sem fylgir með tilkynningu hennar: Yfirlýsing Ástu Kristínar Þessi ákvörðun er ekki tekin í neinu óðagoti, heldur er þetta vel ígrunduð ákvörðun sem hefur mótast innra með mér með hverri slæmri ákvörðun sem ábyrgðaraðilar Íslensku tónlistarverðlaunanna hafa tekið í þessu ferli. Reynsla mín í ár af samskiptum við ábyrgðaraðila Íslensku tónlistarverðlaunanna er sú að reynt hafi verið að hylma yfir spillingu í stað þess að mæta mér með heiðarleika. Slík hegðun leiðir alltaf af sér ógagnsæi. Það er ekkert sem segir mér að vinnubrögðin hafi ekki verið þau sömu árið 2020 þegar ég hlaut mín verðlaun, og það er eitthvað sem mér líður ekki vel með. Ég get ekki með góðri samvisku haldið í verðlaun sem byggja á ferli sem ég ber vantraust til. Ég er fullmeðvituð um að ég get ekki endurskrifað söguna: vissulega hlaut platan mín, Sykurbað, Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir plötu ársins í flokki þjóðlagatónlistar árið 2019 og því verður ekki breytt. Einnig hef ég hlotið fleiri tilnefningar og því verður heldur ekki breytt - þær staðreyndir verða alltaf partur af sögunni. Hins vegar er þetta prinsippmál. Því ég veit hvers virði ég er sem manneskja og ég veit hvers virði ég er sem listamaður. Ég veit hvar mín mörk liggja, en yfir þau hafa ábyrgðaraðilar Íslensku tónlistarverðlaunanna ítrekað stigið yfir í öllu þessu ferli. Gildi hátíðarhaldara stangast greinilega á við mín eigin og þar af leiðandi kæri ég mig ekki um að vera hluti af þessu batterýi sem kallar sig Íslensku tónlistarverðlaunin. Einnig kæri ég mig ekki um að undir nokkrum kringumstæðum geti Íslensku tónlistarverðlaunin notað mitt nafn og mína tónlist sem skrautfjöður í sinn hatt. Mér er gróflega misboðið eftir samskipti mín við ábyrgðaraðila Íslensku tónlistarverðlaunanna, Kristján Frey Halldórsson og Guðrúnu Björk Bjarnadóttur. Þau hafa ekki gefið mér skýr og gagnsæ svör við spurningum mínum er varða hvað olli því að ég var tilnefnd og síðan fránefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna. Þess þá heldur hafa þau valið að hunsa mig, gaslýsa mig og boðist til að borga mér pening í þeirri von að sú gjörð sópi þessum skandal undir teppið. Þeim hefur ekki borið gæfa til þess að taka betri ákvarðanir en þessar, og er það miður. Þessi framkoma af þeirra hálfu er ekki bara vanvirðing við mig, heldur vanvirðing við stétt íslenskra tónlistarmanna í heild sinni. Það er einhver þarna úti sem veit hvað gerðist, en ljóst er að einbeittur brotavilji er innan stjórnar Samtóns og verkstjórnar Íslensku tónlistarverðlaunanna að beita þöggun og kaffæra sannleikann. Eðli sannleikans er að hann vill alltaf leita upp á yfirborðið. En á meðan ábyrgðaraðilar verðlaunanna rembast við að halda sannleikanum á bólakafi þá get ég ekki annað en sniðgengið Íslensku tónlistarverðlaunin héðan í frá og afsalað mér þeim verðlaunum sem ég hlaut árið 2020 ásamt öllum tilnefningum.
Íslensku tónlistarverðlaunin Tónlist Mest lesið Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Innlent Matthías kominn á áfangaheimili Innlent Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Innlent Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Innlent Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Innlent Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Innlent Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Innlent Gönguljósin á Miklubraut: Bráðalausn eða bið eftir stokknum? Innlent Tyrkir neita skipi fullu af hommum um að leggja að bryggju Erlent Nord Stream skemmdarverkin: Yfirvofandi réttarhöld gætu orðið bandamönnum erfið Erlent Fleiri fréttir Átta handteknir vegna fíkniefnaræktunnar Hækka gjald fyrir heilsugæslu og taka upp nýtt fyrir sjúkraþjálfun Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Strætó og sláttutraktor lentu saman Enginn handtekinn en áfram áætlað að sömu aðilar hafi verið að verki Gönguljósin á Miklubraut: Bráðalausn eða bið eftir stokknum? Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Sýknuð af kröfum Vestmannaeyjabæjar Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Forseti tekur sæti í ráðgjafanefnd um gervigreind Beinbrot og minniháttar áverkar í rútuslysi Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Rútuslys, umferðarhnútar og afbókanir í almyrkva Matthías kominn á áfangaheimili Sex slasaðir í rútuslysi í Suðursveit Kona mannsins sem lést þungt haldin Eina tilboðinu í ráðhúströppurnar hafnað og verkið boðið út að nýju Ráðin forstöðumaður Heyrnar- og talmeinastöðvar Viðbragðsáætlun virkjuð vegna fjarskiptaleysis á Sjúkrahúsinu á Akureyri Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Björgunarsveitir fara að lambinu: „Vonumst eftir því besta“ Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Ósamræmi einkunna: „Við verðum að horfast í augu við það“ Nám í dýralækningum í fyrsta sinn í boði hérlendis Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti „Við erum sáttir“: Gönguhóparnir stóðu fyrir sínu Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Sjá meira
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“