Kreppuverðbólga og kjaraviðræður í aðsigi Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 18. mars 2026 19:53 Halla segir útséð um gildandi kjarasamninga í haust haldi fram sem horfir. Vísir/Vilhelm Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir stefna í kreppuverðbólgu. Að óbreyttu sé útséð um gildandi kjarasamninga strax í haust.
Peningastefnunefnd Seðlabankans tilkynnti í morgun um hækkun stýrivaxta um 0,25 prósentustig. Stýrivextir sitja nú í 7,5 prósentum. Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir launafólk ekki munu bera þungan af efnahagsástandinu mikið lengur. „Hér fyrir tveimur árum síðan voru gerðir kjarasamningar þar sem launafólk felldi sig við lágar launahækkanir í trausti þess að ríki og sveitarfélög myndu halda að sér höndunum í gjaldskrárhækkunum og fyrirtækjur myndu halda aftur af verðhækkunum, þannig myndu verðbólga og stýrivextir fara niður. Verðbólgan fór vissulega niður. Stýrivextir fylgdu mjög hægt á eftir og nú er þessu lækkunarferli lokið og hækkunarferli tekið við. Það blasir við mér mjög alvarleg staða,“ segir Halla sem ræddi efnahagsmálin í kvöldfréttum Sýnar. Stefni í kreppuverðbólgu Verðhækkanir á breiðum grunni þýði að forsendur gildandi kjarasamninga verði brostnar í haust. „Nú er matvara að hækka stöðugt á milli málanna og svo eru gjaldskrárhækkanir sem hafa verið miklar. Við erum að sjá verðbólgu á breiðum grunni sem er yfir marki óháð olíunni. Síðan bætast við átökin í Miðausturlöndum. Að því viðbættu erum við komin í alvarlega stöðu. Við stefnum í kreppuverðbólgu þar sem atvinnuleysi hækkar og verðbólga líka,“ segir Halla. „Þetta er bara ekki réttlæti“ Halla segist hafa átt góðan fund með stjórnvöldum. Hún kveðst greina ríkan samtalsvilja. „En ég hef ekki heyrt stjórnvöld stíga inn í þetta mál að öðru leyti en að þau tali um að ná niður halla ríkissjóðs og skila hallalausum fjárlögum. Það er markmið sem er gott og gilt en það er ekki að fara að hjálpa okkur í þessari stöðu. Þvert á móti getur það leitt til frekari niðurskurðar með aukinni gjaldtöku, veggjöldum, komugjöldum og öllum þeim gjöldum sem hægt er að bæta á okkur og þannig gert illt verra,“ segir hún. „Við sömdum um 3,5 prósenta launahækkanir. Verðbólgan er 5,2 prósent og hún fer hækkandi. Hvað annað eigum við að gera? Þetta er eina tækið sem við höfum til að halda í verðbólgu og óðastýrivexti. Ég er alveg sammála því að almennar launahækkanir séu ekki það besta í stöðunni. En við getum ekki fellt okkur við það að launafólk og þá sérstaklega skuldarar, leigjendur og launafólk eigi að halda áfram að bera þungan af þessu efnahagsástandi á meðan aðrir hópar eru í fullkomnu vari. Fyrirtækin hækka eins og þeim sýnist, hið opinbera hækkar eins og því sýnist. Þetta er bara ekki réttlæti,“ segir Halla Gunnarsdóttir formaður VR.
Efnahagsmál Kjaramál Stéttarfélög Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira