Innherji

Varan­leg tug­pró­senta hækkun olíu­verðs gæti ýtt verð­bólgunni upp í sex pró­sent

Hörður Ægisson skrifar
Konráð Guðjónsson, hagfræðingur og efnahagsráðgjafi IFS, segir að skilaboð peningastefnunefndar í gær hafi verið mikilvægt skref til að snúa við óheillaþróun síðustu mánaða, en líklega þurfi meira að koma til. 
Konráð Guðjónsson, hagfræðingur og efnahagsráðgjafi IFS, segir að skilaboð peningastefnunefndar í gær hafi verið mikilvægt skref til að snúa við óheillaþróun síðustu mánaða, en líklega þurfi meira að koma til.  Vísir/Vilhelm

Vaxtahækkun og skilaboð peningastefnunefndar var nauðsynlegt skref til að snúa við óheillaþróun síðustu mánaða þannig að endingu skapist forsendur fyrir lækkun vaxta, að mati hagfræðings, en hann varar við því að verðbólgan geti farið upp undir sex prósent á árinu ef hækkun olíuverðs gengur ekki til baka. Lítilsháttar lækkun á verðbólguálaginu í gær var skammgóður vermir fyrir Seðlabankann og hafa verðbólguvæntingar skuldabréfafjárfesta rokið upp á nýjan leik.


Tengdar fréttir

Spá því að peninga­stefnu­nefnd verði „nauðbeygð“ til að hækka vexti

Verðbólguvæntingar hafa aukist á alla mælikvarða á undanförnum vikum, sem hefur þýtt talsvert minnkandi aðhaldsstig peningastefnunnar, og er Seðlabankinn þess vegna „nauðbeygður“ til að hækka vexti um 25 punkta í næstu viku, að mati greinenda IFS. Útlit er fyrir að verðbólgan muni aukast enn frekar í mars og bankinn þurfi að bregðast hratt við „óheppilegri framvindu“ síðustu mánuði.

Því lengur sem verðbólgan er yfir mark­miði því meira rýrnar trúverðug­leikinn

Með hliðsjón af verðbólguskoti síðustu mánaða og væntingum um betri hagvaxtarhorfur í ár þá kom mjúkur tónn í yfirlýsingu peningastefnunefndar á óvart, að sögn efnahagsráðgjafa IFS. Miðað við verri verðbólguhorfur til skamms tíma telja sumir hagfræðingar sennilegt að bíða þurfi fram í ágúst eftir næstu vaxtalækkun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×