Alvotech ætlar að færa hluta framleiðslunnar til Bandaríkjanna
Alvotech vinnur nú að því að koma á fót annarri framleiðsluaðstöðu sem yrði í Bandaríkjunum fyrir hluta af lyfjaframleiðslu sinni með því að gera samning við stategískan samstarfsaðila þar í landi. Að sögn stjórnenda félagsins, sem hefur hingað til verið með alla framleiðslu sína hér á landi, er markmiðið meðal annars að auka afhendingaröryggi og styðja við markaðssetningu og aukna sölu á alþjóðamörkuðum.
Tengdar fréttir
„Allt í boði“ með einföldun regluverks sem minnkar verulega þróunarkostnað
Áform eftirlitsstofnana beggja vegna Atlantshafsins um að einfalda regluverk og kröfur þegar kemur að klínískum rannsóknum á líftæknilyfjum mun minnka verulega þróunarkostnað og leiða til þess að það verður arðbærara að fara í þróun á mun fleiri hliðstæðum en áður, að sögn forstjóra Alvotech. Hann er afar gagnrýninn á einkaleyfakerfið í Bandaríkjunum, sem búi til hindranir fyrir innkomu líftæknilyfjafélaga, og þá skaði það mjög samkeppnisumhverfið hvernig framleiðendur frumlyfja fái að „læsa markaðinum“ í aðdraganda þess að einkaleyfi þeirra rennur út.
Samkeppnisstaða Alvotech verði „enn sterk“ þótt verð á frumlyfjum muni lækki
Ef áform Trump um að knýja í gegn tugprósenta lækkun á verði lyfja vestanhafs mun raungerast ætti það að sama skapi að leiða til verðhækkana á frumlyfjum í Evrópu og öðrum löndum, að sögn forstjóra Alvotech, og styrkja þá samkeppnisstöðu félagsins enn frekar utan Bandaríkjanna. Hann telur að útspil Bandaríkjaforseta muni ekki hafa áhrif á boðaða skráningu Alvotech í Svíþjóð í næstu viku og vegna „mikils áhuga“ séu væntingar um að stórir norrænir fjárfestar muni bætast við hluthafahópinn eftir að félaginu verður fleytt á markað þar í landi.