Hófu frumkvæðisathugun í kjölfar umfjöllunar Kveiks Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 22. mars 2026 17:07 Margrét Einarsdóttir er formaður nefndar um eftirlit með lögreglu. Vísir/Lýður Valberg Nefnd um eftirlit með lögreglu ákvað að ráðast í frumkvæðisathugun í kjölfar fréttaumfjöllunar Kveiks í fyrra sem varðaði gagnaleka hjá lögreglunni. Nefndin segir að ráðast þurfi í umbætur.
Ákvörðun var tekin um að ráðast í frumkvæðisathugunina þann 9. maí 2025 vegna Kveiks-þáttar sem birtur var 29. apríl 2025. Þar var því uppljóstrað að tveir fyrrverandi lögreglumenn, sem höfðu tekið til starfa hjá fyrirtækinu PPP, hafi verið að njósna um Róbert Wessman og fengu greitt frá Björgólfi Thor Björgólfssyni. Sjá nánar: Gögnum stolið frá sérstökum saksóknara „Frumkvæðisathugun nefndarinnar snýr að verklagi er varðar geymslu gagna hjá lögregluembættum landsins. Markmið athugunarinnar er að skoða hvort meðferð gagna hjá lögregluembættunum sé fullnægjandi til að koma í veg fyrir að gagnaleki geti átt sér stað og ef svo er ekki, kanna til hvaða ráðstafana unnt sé að grípa,“ segir í ákvörðun nefndarinnar sem birt var 11. mars 2026. Hún óskaði til að mynda eftir upplýsingum um hvernig embætti lögreglunnar sæi um varðveislu gagna og eyðingu þeirra, skrásetningu á hvenær og hvaða starfsmenn lögreglu hafa opnað, skoðað eða breytt skjölum og hvort og hvernig væri tryggt að uppflettingar í málaskrá lögreglu væru rekjanlegar. „Rétt er að árétta að það fellur ekki undir verksvið nefndarinnar að rannsaka mögulega saksókn vegna þeirra þátta sem varðar mögulega refsiverða háttsemi í starfi lögreglumanns sem greint var frá í þætti Kveiks. Sú rannsókn er á hendi lögreglustjórans á Suðurlandi sem var falið rannsókn málsins með bréfi frá embætti ríkissaksóknara, dags. 9. maí 2025,“ segir í ákvörðuninni. Bæta þurfi öryggi gagna vistuð hjá lögreglu Eftir að hafa metið gögnin og fengið athugasemdir frá embættunum taldi nefndin að gagnaöryggi og rekjanleiki í bæði málaskrá lögreglu og því kerfi sem vistar stafræn sönnunargögn sé ásættanlegt. Hins vegar sé ekki hægt að segja það sama um sameiginlegt netdrif lögregluembætta landsins. „Nefnd um eftirlit með lögreglu telur hins vegar brýna þörf á að bæta öryggi vistunar gagna inni á sameiginlegu svæði þar sem m.a. eru geymd viðkvæm rannsóknargögn. Nefndin telur að varsla þeirra gagna sem þar eru vistuð sé ófullnægjandi,“ segir í ákvörðun nefndarinnar og er tekið fram að ríkislögreglustjóri er að vinna að því að koma upp nýju kerfi. „Nefndin hvetur ríkislögreglustjóra til að hraða þeirri vinnu, til að tryggja megi með fullnægjandi hætti öryggi gagna, rekjanleika og aðgangsstýringu hjá öllum lögregluembættum landsins.“ Einnig virðist skorta yfirsýn yfir gagnakerfi lögreglu að mati nefndarinnar þar sem ítrekað þurfti að kalla eftir nánari útskýringum á margvíslegum þáttum kerfanna sem virtust ekki liggja ljósir fyrir. „Þá er varðveislutími gagna í sumum kerfum á reiki og jafnvel mismunandi á milli embætta. Loks virðast embættin vinna með mismunandi hætti með gögn á fyrrnefndu svæði.“ Nefndin segir ljóst að ákveðnir vankantar séu á gagnaöryggi hjá embættum lögreglu. Hraða þurfi yfirstandandi umbótavinnu sem hófst í kjölfar frumkvæðisathugunarinnar. „Til þess þarf fjármagn en samkvæmt upplýsingum frá ríkislögreglustjóra eru kerfisuppfærslur og innleiðing nýrra kerfa háðar sértekjum frá lögregluembættunum. Nefndin telur þetta fyrirkomulag fela í sér ófyrirsjáanleika og valda töfum. Er vakin athygli dómsmálaráðuneytisins á því.“
Gögnum stolið frá sérstökum saksóknara Lögreglan Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira