Flugvél fór út af og öllum brautum lokað Agnar Már Másson skrifar 23. mars 2026 17:47 Flugvélin fór út af brautinni um klukkan 17.30. Flight radar Öllum brautum á Keflavíkurflugvelli var tímabundið lokað í kvöld en flugvél Icelandair fór út af akbraut á vellinum þegar henni var ekið frá hliði upp úr klukkan 17. Engan sakaði. „Þetta er bara minniháttar,“ segir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, í samtali við Vísi. „En samkvæmt verklagi þarf að framkvæma skoðun á vélinni, svo fer hún líklega bara í afísingu og áfram sína leið.“ Hann segir að vélin, sem er af tegundinni Airbus A321, hafi verið á leið frá hliði og runnið til er henni var ekið frá flugstöðinni. Engan hafi sakað en um fulla vél var að ræða. Mikil hálka er á vellinum, að sögn Guðna en gular veðurviðvaranir hafa verið í gildi víða um landið í dag. Hann segir að vélin fari að líkindum í loftið á ný um leið og búið sé að draga hana. Vélin á að fara til Lundúna. Samkvæmt heimildum fréttastofu var öllum brautum á vellinum lokað en upp úr klukkan 18 voru flugvélar teknar að lenda á vellinum á ný eftir að hafa verið flogið í biðstöðu í nokkra stund. Farþegi sagði við Vísi klukkan 18.30 í að farþegum hefði verið tilkynnt að vegna hálku væri erfitt fyrir önnur farartæki á vellinum að komast að vélinni. Farþegar hefðu setið í vélinni síðan klukkan 18. Fréttin hefur verið uppfærð. Veistu meira um málið eða áttu myndefni? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið. Veður Isavia Keflavíkurflugvöllur Icelandair Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Sjá meira
„Þetta er bara minniháttar,“ segir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, í samtali við Vísi. „En samkvæmt verklagi þarf að framkvæma skoðun á vélinni, svo fer hún líklega bara í afísingu og áfram sína leið.“ Hann segir að vélin, sem er af tegundinni Airbus A321, hafi verið á leið frá hliði og runnið til er henni var ekið frá flugstöðinni. Engan hafi sakað en um fulla vél var að ræða. Mikil hálka er á vellinum, að sögn Guðna en gular veðurviðvaranir hafa verið í gildi víða um landið í dag. Hann segir að vélin fari að líkindum í loftið á ný um leið og búið sé að draga hana. Vélin á að fara til Lundúna. Samkvæmt heimildum fréttastofu var öllum brautum á vellinum lokað en upp úr klukkan 18 voru flugvélar teknar að lenda á vellinum á ný eftir að hafa verið flogið í biðstöðu í nokkra stund. Farþegi sagði við Vísi klukkan 18.30 í að farþegum hefði verið tilkynnt að vegna hálku væri erfitt fyrir önnur farartæki á vellinum að komast að vélinni. Farþegar hefðu setið í vélinni síðan klukkan 18. Fréttin hefur verið uppfærð. Veistu meira um málið eða áttu myndefni? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.
Veistu meira um málið eða áttu myndefni? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.
Veður Isavia Keflavíkurflugvöllur Icelandair Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Sjá meira