Telja litla áhættu af notkun vagnanna en ráðfæra sig við ríkislögreglustjóra Hólmfríður Gísladóttir skrifar 24. mars 2026 10:37 Strætó bs. á fimmtán Yutong-vagna. Strætó Stjórnendur Strætó bs. telja litla áhættu felast í notkun rafvagna sem keyptir voru frá kínverska fyrirtækinu Yutong en hafa átt samráð við samgönguyfirvöld á Norðurlöndunum og óskað eftir uppýsingum frá ríkislögreglustjóra um nokkur atriði.
Þetta kemur fram í svörum innviðaráðherra við fyrirspurn Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Þórdís spurði meðal annars að því hvort og þá hvernig stjórnvöld hefðu brugðist við fregnum af því að framleiðandi vagnanna gæti mögulega haft áhrif á virkni þeirra með rafrænum hætti. Samkvæmt svörum ráðherra hefur ráðuneytið sett sig í samband við Samgöngustofu, Strætó bs. og Vegagerðina, auk þess sem upplýsinga var leitað frá samgönguyfirvöldum í Noregi, Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi. Stjórnvöld í Noregi sögðust hyggja á úttektir á vögnunum nú í ár en samkvæmt niðurstöðum norska samgöngufyrirtækisins Ruter væri ólíklegt að framleiðandi vagnanna gæti stjórnað vögnum sem væru í gangi. Hins vegar væri fræðilegur möguleiki að hafa áhrif á virkni vegna, líkt og þekktist hjá öðrum bílaframleiðendum sem reiddu sig á þráðlausar hugbúnaðaruppfærslur. Svíar voru sama sinnis en beðið er svara frá Danmörku og Finnlandi. „Eins og áður sagði framkvæmdi Ruter öryggisprófun á rafknúnum Yutong-strætisvögnum þar sem annars vegar var metið hvort eftirlitsmyndavélar vagnanna gætu sent gögn út og hins vegar hvort framleiðandi hefði fjaraðgang að stjórnkerfum vagnanna. Niðurstöður sýndu að myndavélarnar eru ekki nettengdar, senda ekki út gögn og ekki er hægt að virkja slíka tengingu með hugbúnaðaruppfærslum. Vagnarnir styðji þó fjaruppfærslur hugbúnaðar í gegnum farsímanet sem gæti skapað möguleika á fjaraðgangi að tilteknum kerfum. Í frétt Ruter um öryggisprófunina er því haldið fram að framleiðandinn hafi því fræðilega séð getuna til að valda stöðvun vagna eða gera þá ónothæfa,“ segir í svörum ráðuneytisins við fyrirspurn Þórdísar. Þá segist Vegagerðin hafa fengið þær upplýsingar frá umboðsaðila Yotong að unnið sé að því að koma upp eftirlitskerfi og breyta hugbúnaði vagnanna þannig að upplýsingum frá þeim sé ekki miðlað til framleiðandans. Strætó bs. metur því litla áhættu af notkun vagnanna en hefur óskað eftir svörum við eftirfarandi spurningum frá ríkislögreglustjóra: Hvort til staðar sé einhver sérstök áhætta sem Strætó bs. þarf að vera meðvitað um varðandi söfnun gagna frá kínverskum vögnum og hægt er að misnota í ólöglegum tilgangi til eftirlits eða njósna, þjálfunar gervigreindar og hvort einhver hætta sé á að kínversk yfirvöld geti stöðvað notkun kínverskra vagna í rekstri á Íslandi. Hvort greiningardeild ríkislögreglustjóra hafi einhver tilmæli eða ráðleggingar til Strætós bs. sem rekstraraðila almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu sem það geti fylgt til að lágmarka alla þá áhættu sem nefnd er í 1. tölul. ef hún er þá til staðar. Hvort áhættumat tengt kínverskum vögnum sé á einhvern hátt frábrugðið mati á öðrum kínverskum vörum svo sem einkabílum, farsímum og farsíma- og símakerfum.
Strætó Vistvænir bílar Kína Bílar Noregur Svíþjóð Samgöngur Vegagerð Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent Fleiri fréttir Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Sjá meira