Það er dýrt að liggja í polli eigin græðgi Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar 25. mars 2026 14:31 Framkvæmdarstjóri fjármálastöðugleikasviðs Seðlabankans hélt því fram í morgun á fundi nefndarinnar að dýrt væri fyrir skuldsett byggingarfyrirtæki að sitja uppi með óseldar íbúðir. Sem er eflaust rétt hjá honum.Nema á sama tíma segir seðlabankastjóri að gott sé að þessi byggingarfyrirtæki séu fjárhagslega sterk. Þá spyr maður sig : “Eru verktakar almennt skuldsettir – eða standa þeir vel að vígi?” Leggjum nokkrar staðreyndir fram til að meta þessar fullyrðingar: ·Nýjar íbúðir eru ekki að lækka í verði svo eftir sé tekið. Mörg byggingarfyrirtæki hafa í staðinn komið á fót fyrirkomulagi þar sem þau lána kaupanda hluta af íbúðinni og leigja honum hann á háu verði.Þetta segir okkur tvennt: Verð er ekki lækkað eins og gerist á samkeppnismarkaði. Fyrirtækin eru nægilega fjársterk til að lána út umtalsverðan hluta kaupverðs. Ef farið er inn á vef BHM má sjá greiningu á arðsemi byggingarfyrirtækja (https://www.bhm.is/greinar/byggingaverktakar-tvofalda-hverja-kronu).Þar kemur fram að frá 2018 hafa verktakar tvöfaldað álagningu sína — þeir fá í raun tvöfalt meira fyrir hverja framkvæmd en áður. Ef skoðuð er þróun húsnæðisverðs hér á landi samanborið við Evrópu eru tölurnar sláandi. Frá 2015 byrjar húsnæðisverð að skilja sig frá launaþróun og hefur síðan hækkað umtalsvert meira en laun. Vert er að nefna að í dag kosta 2-3 herbergja íbúðir um 60-80 Miljónir. Fyrir einu kynslóðarbili, eða um aldamót kostuðu samsvarandi íbúðir 6-8 Miljónir. Niðurstaðan er því skýr ! Þessi fyrirtæki standa ekki bara vel að vígi því þau hafa aukið arðsemi sína verulega —heldur eru að miklu leyti drifkraftur verðbólgu síðustu ára. Það sem er hins vegar óskýrt er af hverju seðlabankastjóri sér ekki að hver maður þarf að eiga sitt heimili. Þegar húsnæði hækkar — hvort sem það er til leigu eða kaups — verða laun að duga. Þannig að þetta „höfrungahlaup“ er ekki eins og hann heldur. Þetta snýst einfaldlega um kostnaðinn við að hafa þak yfir höfuðið. Og þegar við bætist sú staðreynd að um helmingur verðbólgu síðustu 12 ára er tilkominn vegna fasteignamarkaðarins — og það vita bæði hann og við — þá spyr maður sig „Fyrir hverja vinnur þessi maður?“ Raunin er sú að laun eru stöðugt að reyna að ná utan um kostnaðinn við að fá að búa í landinu. Sem, takið eftir, sífellt fleiri geta ekki lengur: Eldri borgarar Öryrkjar Ungt fólk sem getur ekki snúið heim úr námi. Höfundur er formaður leigjendasamtakanna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Leigumarkaður Yngvi Ómar Sigrúnarson Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar