Forseti Slóveníu mætir á afmælisdegi Vigdísar Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 26. mars 2026 15:19 Nataša Pirc Musar hefur gegnt embætti forseta Slóveníu frá árinu 2022. EPA Nataša Pirc Musar, forseti Slóveníu, kemur til landsins þann 15. apríl í tengslum við árlegt Velsældarþing í Reykjavík. Þar tekur hún ásamt Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, þátt í samtali um leiðtoga í breyttum heimi í Veröld, húsi Vigdísar, en dagurinn er einmitt afmælisdagur Vigdísar Finnbogadóttur.
Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá embætti forseta Íslands. Forsetarnir munu funda á Bessastöðum fyrir hádegið, en eiga síðan hádegisverðarfund með forsætisráðherra, Kristrúnu Frostadóttur, í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu. Síðdegis verður opinn viðburður í Veröld Vigdísar, Brynjólfsgötu 1 í Reykjavík, þar sem forsetarnir taka þátt í samtali undir yfirskriftinni „The Courage to Care: Leadership in a Changing World“. „Heimsókn forseta Slóveníu til Íslands undirstrikar mikilvægi alþjóðlegs samtals og samvinnu um þróun efnahagskerfa þar sem velsæld fólks og náttúru er höfð að leiðarljósi. Táknrænt er að kvenleiðtogarnir hittist í Veröld, húsi Vigdísar Finnbogadóttur, sem var fyrsta konan sem var kosin forseti í lýðræðislegri kosningu í heiminum árið 1980,“ segir í fréttatilkynningu. Haldið í fjórða skiptið Á formlegri dagskrá Velsældarþings, sem verður haldið í Silfurbergi í Hörpu dagana 16. og 17. apríl, koma saman leiðtogar, stjórnmálamenn, hagfræðingar, fulltrúar atvinnulífs, alþjóðlegra stofnana og frjálsra félagasamtaka. Á þinginu verður rætt um hvernig þróa megi efnahagskerfi á alþjóðavísu sem þjónar fjölbreyttum þörfum samfélaga. Forseti Íslands er verndari Velsældarþingsins, sem haldið er í fjórða skiptið í ár. „Fremur en að horfa eingöngu til hagvaxtar og vergrar landsframleiðslu leggja þingfulltrúar áherslu á velsæld og almennari mælikvarða þar sem hugað er að þáttum á borð við lýðheilsu, sjálfbærni, félagslegt réttlæti og umhverfisvernd,“ segir í tilkynningunni. Embætti landlæknis skipuleggur þingið í samstarfi við JA PreventNCD, sem er styrkt af EU4Health áætlun Evrópusambandsins. Meðal annarra innlendra og erlendra samstarfsaðila þeirra eru embætti forseta Íslands, heilbrigðisráðuneytið, Reykjavíkurborg, Samband íslenskra sveitarfélaga, Festa – miðstöð um sjálfbærni, Wellbeing Economy Alliance, Wellbeing Economy Governments , Alþjóðaheilbrigðisstofnunin, Efnahags- og framfararstofnun OECD, The B Team, Club of Rome og Earth4All.
Forseti Íslands Halla Tómasdóttir Slóvenía Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Innlent Fleiri fréttir Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Sjá meira