Tekur undir gagnrýni á umdeildan fyrirlestur eigin stofnunar Kjartan Kjartansson skrifar 27. mars 2026 11:28 Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði, (t.h.) Ragnar Árnason, heiðursprófessor í hagfræði, (f.m.) og Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs, (t.v.) voru á meðal þeirra sem sóttu fyrirlestur um kolefnishlutleysi á vegum Hagfræðistofnunar í dag. Vísir/Sigurjón Stjórnarkona Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands sem er einnig varaformaður Loftslagsráðs segist taka undir gagnrýni á að stofnunin hafi boðið fyrrverandi þingmanni að halda fyrirlestur um loftslagsmál. Alvarlegar vísindalegar athugasemdir hafa verið gerðar fyrir við bók hans um málefnið.
Hagfræðistofnun bauð Frosta Sigurjónssyni, fyrrverandi þingmanni Framsóknarflokksins, að halda fyrirlestur um kostnað við kolefnishlutleysi í Háskóla Íslands í dag. Af auglýsingu fyrir viðburðinn mátti ráða að umfjöllunarefnið yrði ekki einskorðað við hagfræðileg atriði. „Eru vísindin sem baráttan gegn losun koltvísýrings grundvallast á hafin yfir vafa?“ sagði í auglýsingunni þrátt fyrir að vísindaleg þekking á orsökum og afleiðingum loftslagsbreytinga hafi legið fyrir um áratugaskeið. Bók sem Frosti skrifaði og gaf út á eigin vegum um loftslagsmál í vetur var full af rangfærslum um loftslagsvísindi. Einn helsti loftslagsvísindamaður landsins sagði fullyrðingar Frosta um vísindi í bókinni sjaldnast standast skoðun og að þær byggðu að miklum hluta á löngu hröktum fullyrðingum. Töluverð gagnrýni á að Hagfræðistofnun hafi boðið Frosta að ræða óvisindalegar tilgátur um loftslag hafa bæði heyrst innan og utan háskólsamfélagsins. Brynhildur Davíðsdóttir, varaformaður Loftslagsráðs, situr í stjórn Hagfræðistofnunar. Í samtali við Vísi segist hún taka undir gagnrýnina á að stofnunin hafi boðið Frosta að halda fyrirlesturinn. „Að mínu mati á sú gagnrýni fullan rétt á sér,“ sagði Brynhildur sem vildi ekki hafa fleiri orð um hvað henni fyndist sjálfri sérstaklega aðfinnsluvert. Brynhildur Davíðsdóttir, prófessor í umhverfis- og auðlindasvæði, er varaformaður Loftslagsráðs auk þess sem hún situr í stjórn Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands.Vísir/Anton Spurð að því hvort hún ætli að taka málið upp í stjórn Hagfræðistofnunar segir Brynhildur að það sé „ekki eitthvað sem stjórnin mun líta fram hjá“. Útiloka engan Sigurður Jóhannesson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar, sagði Vísi fyrr í vikunni að boðið til Frosta þýddi ekki að stofnunin tæki undir með honum. Sagðist hann þekkja Frosta sem „kláran mann“ þó að hann hefði ekki lesið bók hans um loftslagsmál sjálfur. Frosta var boðið að tala á vegum háskólans eftir ábendingu frá föstum starfsmanni Hagfræðistofnunar um bókina sem hann gaf út í vetur. „Það er málfrelsi, enginn er útilokaður en allir þurfa að standa fyrir máli sínu,“ sagði Gylfi Zoega, formaður stjórnar Hagfræðistofnunar í skriflegu svari við fyrirspurn Vísis um ákvörðun stofnunarinnar um að bjóða Frosta að halda fyrirlestur á hennar vegum í ljósi vísindalegrar gagnrýni á málflutning hans. Er þöggun að fá ekki boð sem fyrirlesari? Sumir starfsmenn háskólans hafa tekið upp hanskann fyrir Hagfræðistofnun á sama tíma og þeir viðurkenna að fullyrðingar Frosta um loftslagsvísindi eigi ekki við rök að styðjast. „Ég get alveg tekið undir að það er mjög skrýtið að bjóða Frosta að halda háskólafyrirlestur enda eru þetta engin vísindi sem hann er að fjalla um. Það liggur skýrt fyrir. Ég vil hins vegar miklu frekar leyfa 100 slíka fyrirlestra en að þagga niður í einum sem hefur raunverulega eitthvað til málanna að leggja,“ skrifaði Gylfi Magnússon, prófessor við viðskiptafræðideild háskólans í umræðum sem sköpuðust um fyrirlesturinn á Facebook-síðu hans í vikunni. Frosti fer yfir glæru um hækkandi meðalhita á jörðinni frá iðnbyltingu á fyrirlestri á vegum Hagfræðistofnunar. Í umdeildri bók sinni hélt Frosti meðal annars fram að það væri vafasamt að hægt væri að mæla meðalhita jarðar þrátt fyrir að breytingar á honum sé vel þekktar stærðir.Vísir/Sigurjón Rithöfundurinn og umhverfisverndarsinninn Andri Snær Magnason brást við þeim orðum Gylfa og spurði hvort læknadeild háskólans þaggaði þá niður í Frosta með því að bjóða honum ekki að halda erindi um sóttvarnir. Frosti gagnrýndi sóttvarnaraðgerðir í kórónuveirufaraldrinum og talaði fyrir meðferð með sníkjudýralyfi með enga sannreynda virkni gegn veirunni. „Með þessu er Hagfræðideildin að blotta sig sem ábyrðgarlausa og gjörsamlega ólæsa á náttúruvísindi,“ skrifaði Andri Snær.
Loftslagsmál Háskólar Efnahagsmál Skóla- og menntamál Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fleiri fréttir Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Sjá meira