Flugfólkið hjá Atlanta flakkar um allan heim Kristján Már Unnarsson skrifar 29. mars 2026 07:47 Einar Sebastian Ólafsson er yfirflugþjónn um borð í flugvélum Air Atlanta. Hér er hann í viðtali á sundlaugarbakka í starfsmannaþorpi Atlanta í borginni Jedda í Sádi-Arabíu. Sjálfur býr hann í Buenos Aires, höfuðborg Argentínu. Egill Aðalsteinsson „Íslendingar vita kannski ekki mikið um Atlanta. Þeir eru svo ósýnilegir í íslensku viðskiptalífi. Þar er bara yfirbyggingin og skrifstofan. En öll starfsemin er náttúrlega annarsstaðar.“
Þetta segir Einar Sebastian Ólafsson yfirflugþjónn í þætti Flugþjóðarinnar um Atlanta-flugfélagið á Sýn+. Sjálfur hóf hann störf hjá Air Atlanta árið 1996 og ætlaði þá bara að vera í einu tímabundnu pílagrímaverkefni. Þrjátíu árum síðar starfar hann enn hjá félaginu. Air Atlanta er eitt fjölþjóðlegasta fyrirtæki Íslands. Forstjórinn Baldvin Már Hermannsson segir að á háannatíma starfi allt að 1.300 manns hjá félaginu. Við síðustu talningu segir hann starfsfólkið hafa verið af 54-55 mismunandi þjóðernum. Þar af séu hátt í þrjúhundruð Íslendingar. Rafn Þór Rafnsson yfirflugvirki stýrir viðhaldsstöð Air Atlanta á flugvellinum í Jedda. Sjálfur býr hann í Indónesíu.Egill Aðalsteinsson Vinnuskipulagið hjá íslenska flugfólkinu er gjarnan þannig að unnið er erlendis í þriggja vikna törn. Síðan tekur við þriggja vikna frí. Þetta fyrirkomulag þýðir að íslensku starfsmennirnir eru ekki bundnir af því að búa á Íslandi. Nokkrir hafa valið sér búsetu í öðru landi, eins og fram kemur í þessum kafla þáttarins: Það að öll jörðin skyldi verða starfsvettvangur Air Atlanta er sú stefna sem stofnandinn Arngrímur Jóhannsson markaði félaginu í upphafi. Hann taldi Ísland einfaldlega of lítið, eins og fram kemur í þessum kafla: Áskrifendur geta séð þáttinn um Atlanta-flugfélagið í heild sem og alla nítján þætti Flugþjóðarinnar á streymisveitunni Sýn+. Fá má hugmynd um umfjöllunarefni nýjustu sjö þátta í þriðju seríu í þessari kynningarstiklu:
Flugþjóðin Air Atlanta Fréttir af flugi Tengdar fréttir Þegar forseti Íslands mætti á júmbó-þotu Ákvörðun Air Atlanta árið 1993 um að taka Boeing 747-þotur í rekstur þykir einhver sú djarfasta í sögu íslenskra flugmála. Júmbó-þoturnar voru á þeim tíma stærstu og dýrustu farþegaþotur heims. 1. mars 2026 07:47 Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Þegar Air Atlanta tók að sér viðamikið pílagrímaflug fyrir Saudia-flugfélagið árið 1993 lét Þóra Guðmundsdóttir, annar stofnanda félagsins, hanna og sauma sérstaka flugfreyjabúninga. Í þættinum Flugþjóðin lýsa fyrrverandi og núverandi starfsmenn íslenskra flugfélaga því hvernig var að starfa undir vökulum augum trúarlögreglu í Sádí-Arabíu. 8. febrúar 2026 08:00 Íslensk flugáhöfn horfði á ljónaárás rétt við hótelið Flugáhöfn Air Atlanta á hringferð um Afríku upplifði það að sjá ljón tvívegis ráðast á og drepa dýr í þjóðgarði skammt frá hóteli sínu. Áhöfnin var í hvíldarstoppi í borginni Nairobi í Kenýa. 6. október 2024 07:47 Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Innlent Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Erlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Fleiri fréttir Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Sjá meira
Þegar forseti Íslands mætti á júmbó-þotu Ákvörðun Air Atlanta árið 1993 um að taka Boeing 747-þotur í rekstur þykir einhver sú djarfasta í sögu íslenskra flugmála. Júmbó-þoturnar voru á þeim tíma stærstu og dýrustu farþegaþotur heims. 1. mars 2026 07:47
Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Þegar Air Atlanta tók að sér viðamikið pílagrímaflug fyrir Saudia-flugfélagið árið 1993 lét Þóra Guðmundsdóttir, annar stofnanda félagsins, hanna og sauma sérstaka flugfreyjabúninga. Í þættinum Flugþjóðin lýsa fyrrverandi og núverandi starfsmenn íslenskra flugfélaga því hvernig var að starfa undir vökulum augum trúarlögreglu í Sádí-Arabíu. 8. febrúar 2026 08:00
Íslensk flugáhöfn horfði á ljónaárás rétt við hótelið Flugáhöfn Air Atlanta á hringferð um Afríku upplifði það að sjá ljón tvívegis ráðast á og drepa dýr í þjóðgarði skammt frá hóteli sínu. Áhöfnin var í hvíldarstoppi í borginni Nairobi í Kenýa. 6. október 2024 07:47