Brennum bækur! Henry Alexander Henrysson skrifar 30. mars 2026 09:47 Auðvitað á maður ekki að gantast með svona fyrirsögn á tímum þegar bókabrennur og bókabönn eru raunveruleiki í samtímanum í löndum sem eru óþægilega nálægt okkur. En ég stóðst þó ekki mátið vegna fréttar sem kom á Vísi í gær um umræður sem höfðu spunnist á Facebook um bækur í ruslagámi. Samkvæmt fréttinni voru flestir sem tóku þátt í umræðunum á því að bækur ættu aldrei að lenda í ruslinu. Vissulega er gott að bókum sé ekki hent í hugsunarleysi og að fólk fái ráðgjöf um hvaða bækur séu fágætar og dýrmætt að eintök séu til af. Og maður vill ekki mæla gegn því að bækur fái framhaldslíf eftir lestur eiganda – hvort sem það er með láni til vina og kunningja eða á gjafaborðum. En um leið spyr maður sig hvort bækur séu svo heilagar að eigendur bóka megi ekki rýma til fyrir nýjum. Sjálfur hef ég oft heyrt af fólki sem afþakkar fleiri bækur því það eigi svo margar og allar hillur séu fullar. Það getur ekki verið góð niðurstaða fyrir íslenskt bókmenntalíf og bókaútgáfu. Sjálfur á ég bágt með að losa mig við bækur, og á örugglega of margar, en mig langar til bæta mig í því. Áskoranir íslenskrar bókaútgáfu, hvort sem það er á sviði fagurbókmennta eða fræðibóka, felast ekki í þeim bókum sem enda í ruslinu heldur þeim sem ná ekki að koma út. Og sjaldan hefur útlitið verið svartara fyrir hið flókna vistkerfi höfunda, þýðenda, bókahönnuða, umbrotsfólks, prófarkalesara, ritstjóra og útgefenda sem saman sjá til þess að hér kemur þrátt fyrir allt umtalsverður fjöldi bóka út á hverju ári. Nóg er að eiga við árlegt raus um listamannalaun og að þurfa stöðugt að benda á raunlækkanir á styrkjum til fræðistarfa, verra er að þurfa að þar að auki að berjast við hugmyndir um að nóg sé til að bókum og ekki megi rýma til fyrir nýjum. Ástandið er heldur ekki að skána með tilkomu spunagervigreindar sem hefur heldur betur hrist upp í bókaútgáfu. Margs konar stafræn útgáfa hefur einnig því miður ekki stutt við öflugt útgáfustarf. Sem betur fer reynum við að sinna því að fólk taki upp bækur og lesi. Sú frábæra lestrarhvatning sem er núna í gangi og kallast Bókaðu stund fyrir bók hefur svo sannarlega skilað sínu í þeirri varnarbaráttu sem er í gangi fyrir hönd bókarinnar. En lestur er eitt og útgáfustarf annað. Ég get satt best að segja ekki hugsað mér neitt annað svið hagkerfisins sem kallar minna á einhvers konar hringrásarhagkerfi (þar sem ekki má glata því sem inn hefur verið lagt) heldur en bókaútgáfu. Bækur eru þegar öllu er á botninn hvolft ekkert annað en efnisleg umgjörð fyrir hugmyndir. Og við þurfum á nýjum hugmyndum að halda í samfélagi sem tekur stöðugt hraðari breytingum og kallar á svör við nýjum spurningum. Ég vona að lestrarhvatningar framtíðarinnar þurfi ekki að fara fram í umhverfi þar sem íslensk bókaútgáfa hefur hrunið og fólk skiptist á snjáðum eintökum úr stútfullum bókahillum. Höfundur er varaformaður Hagþenkis – félags höfunda fræðirita og kennslugagna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Henry Alexander Henrysson Mest lesið Hamfarir Hildar Haraldur F. Gíslason Skoðun Sjálflærðir sérfræðingar í leikskólamálum Ingibjörg Sólrún Ágústsdóttir Skoðun Lægri húsnæðisvextir með evru (staðfest) Dagur B. Eggertsson Skoðun Nýr golfvöllur í Reykjavík Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Vatnsaflsvirkjanir eru æði Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Hvar er forgangsröðun ríkisstjórnarinnar? Dagmar Valsdóttir Skoðun Íslensk orka er svarið við olíukrísunni Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Innritun í framhaldsskóla – samspil fagmennsku og sanngirni Magnús Þór Jónsson Skoðun Foreldrahús Kristín Davíðsdóttir Skoðun Styrkjum heilsubæinn Hveragerði Maria Araceli,Berglind Ósk Guttormsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Mitt uppáhalds stefnumál? Systkinaforgangur Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ekki benda á mig Guðmundur Stefán Gunnarsson skrifar Skoðun Vönduð niðurstaða Feneyjanefndarinnar Pawel Bartoszek skrifar Skoðun Horfumst í augu við staðreyndir Eyþór Fannar Sveinsson skrifar Skoðun Hafa skal náttúruvernd í heiðri allar stundir! Elva Rakel Jónsdóttir,Guðmundur Þ. Guðmundsson,Rakel Garðardóttir,Rán Flygenring,Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun Vatnsaflsvirkjanir eru æði Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Innritun í framhaldsskóla – samspil fagmennsku og sanngirni Magnús Þór Jónsson skrifar Skoðun Hamfarir Hildar Haraldur F. Gíslason skrifar Skoðun Græna gangan - göngum fyrir hafið Guðrún Hallgrímsdóttir,Maríanna Traustadóttir skrifar Skoðun 10 loforð til ungs fólks á besta stað í heimi, Hafnarfirði Viktor Pétur Finnsson skrifar Skoðun Lýðheilsa er undirstaða sterks samfélags Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Sjálflærðir sérfræðingar í leikskólamálum Ingibjörg Sólrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Ég lofa að líta ekki undan Ingibjörg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Nýr golfvöllur í Reykjavík Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar bygging er ekki orðin að húsi: Ný nálgun í tryggingum framkvæmda Heiður Huld Hreiðarsdóttir skrifar Skoðun Lýðfullveldi Aðalstein Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Árangur á vakt Framsóknar í Suðurnesjabæ Anton Guðmundsson skrifar Skoðun Hvar er forgangsröðun ríkisstjórnarinnar? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Lægri húsnæðisvextir með evru (staðfest) Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Foreldrahús Kristín Davíðsdóttir skrifar Skoðun Börn án verndar: ofbeldi milli systkina sem fellur á milli kerfa Þórdís Bjarnleifsdóttir skrifar Skoðun Íslensk ofbeldismenning og réttarríkið Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Lykill að jöfnum tækifærum Isabel Alejandra Diaz skrifar Skoðun Jöfnuður, ábyrgð og uppbygging Stefán Þór Eysteinsson skrifar Skoðun „Selfies“ eru ekki hagsmunagæsla Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Dónaskapur Reykjavíkurborgar Lárus Blöndal Sigurðsson skrifar Skoðun Sterkari saman Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Popúlismi formanns VR Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Snúum Reykjavík við Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun #ÉGLOFA að láta ekki allt brenna til kaldra kola Alfa Jóhannsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hafa skal náttúruvernd í heiðri allar stundir! Elva Rakel Jónsdóttir,Guðmundur Þ. Guðmundsson,Rakel Garðardóttir,Rán Flygenring,Stefán Jón Hafstein skrifar
Skoðun Þegar bygging er ekki orðin að húsi: Ný nálgun í tryggingum framkvæmda Heiður Huld Hreiðarsdóttir skrifar
Skoðun Börn án verndar: ofbeldi milli systkina sem fellur á milli kerfa Þórdís Bjarnleifsdóttir skrifar