Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 2. apríl 2026 20:58 Gucci Mane er meðal áhrifameiri rappara 21. aldarinnar. EPA Níu Bandaríkjamenn hafa verið ákærðir fyrir mannrán og vopnað rán eftir að hafa lokkað nokkra tónlistarmenn inn í upptökuver í Dallas, frelsissvipt þá og rænt af þeim fjármunum og lausafé fyrr á þessu ári. Meðal fórnarlamba er rapparinn og Íslandsvinurinn Gucci Mane.
Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna greindi frá þessu á blaðamannafundi í dag en CBS greinir frá. Átta hinna grunuðu voru handteknir í vikunni í tengslum við rannsókn málsins. Meðal þeirra eru minna þekktu rappararnir Pooh Shiesty og Big30. Samkvæmt upplýsingum frá saksóknara skipulagði hópurinn ofbeldisfullt fyrirsát þann 10. janúar með því að lokka fórnarlömb að upptökuveri í Texas undir því yfirskyni að viðskiptafundur væri fyrirhugaður. Þegar þangað var komið hafi fórnarlömbunum verið stíað í sundur, og þeir frelsissviptir. Rapparinn Pooh Shiesty hafi farið með Gucci Mane afsíðis, hótað honum með skammbyssu af gerðinni AK og neytt hann til að undirrita skjal þess efnis að samningi Pooh Shiesty við útgáfufyrirtækið 1017 Labels, sem er í eigu Gucci Mane, yrði rift. Aðrir hinna grunuðu hafi á meðan frelsissvipt hin fórnarlömbin, hótað þeim með vopnum og rænt þau. Skartgripum, Rolex-úri og tösku frá Louis Vuitton auk annarra verðmæta hafi verið rænt. Samkvæmt einni kærunni héldu fórnarlömbin á tímapunkti að þau yrðu tekin af lífi. Hinir grunuðu hafi síðan flúið á brott. Skírði dótturina Iceland Dagana eftir ránið birtu nokkrir hinna grunuðu myndir af sér haldandi á reiðufé og með skartgripi á samfélagsmiðlum, sem talið er að þeir hafi rænt umræddan dag. Sem fyrr segir eru þeir ákærðir fyrir mannrán og vopnað rán. Gucci Mane vakti mikla athygli þegar hann kom til Íslands árið 2018 til að spila á tónlistarhátíðinni Secret Solstice, sér í lagi vegna hrifningar hans á Bláa lóninu. Hann hreifst af Íslandi svo mjög að hann nefndi dóttur sína, sem fæddist árið 2023, því áhugaverða nafni Iceland.
Bandaríkin Tónlist Íslandsvinir Erlend sakamál Tengdar fréttir „Ég er morðingi, en ég styð ekki ofbeldi“ Rapparinn Gucci Mane stígur á svið á Secret Solstice í kvöld. 22. júní 2018 12:00 Bjóst við ísbirni í Bláa lóninu Rapparinn virðist mjög hrifinn af lóninu og kallar það "fountain of youth“. 22. júní 2018 23:17 Mest lesið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tímamót hjá Árna Má Menning Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Lífið Fleiri fréttir Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster Sjá meira
„Ég er morðingi, en ég styð ekki ofbeldi“ Rapparinn Gucci Mane stígur á svið á Secret Solstice í kvöld. 22. júní 2018 12:00
Bjóst við ísbirni í Bláa lóninu Rapparinn virðist mjög hrifinn af lóninu og kallar það "fountain of youth“. 22. júní 2018 23:17