Óhapp um borð sem á sér engin fordæmi Freyja Þórisdóttir skrifar 3. apríl 2026 14:49 Í áhöfninni eru f.v. kanadíski geimfarinn Jeremy Hansen og Bandaríkjamennirnir Reid Wiseman, Christina Koch og Victor Glover. Hér má sjá teymið á myndbandsráðstefnu sem var haldin í gær, fimmtudaginn annan apríl. AP Artemis-II er liður í Artemis-áætlun Geimferðastofnunarinnar NASA en tunglskotið er sögulegt að mörgu leyti. Geimfarið Orion fór nýlega af braut sinni í kringum jörðina og í átt að tunglinu en óvænt óhapp, sem þykir þó tiltölulega minniháttar, skeði um borð í gær.
Þetta er í fyrsta skipti sem kona mun fljúga um mánann, fyrsta skipti í hálfa öld sem menn sjá fjarhlið mánans berum augum og sá leiðangur sem flytur menn lengra frá jörðu en nokkru sinni fyrr. En það sem meira er, þetta er í fyrsta skipti sem eiginlegt klósett er um borð í mönnuðu geimfari. Þessu greinir bandaríski fjölmiðillinn New York Times (NYT) frá en þar segir einnig að geimfararnir fjórir, Reid Wiseman, Victor Glover, Christina Koch og Jeremy Hansen, hafi verið á braut um jörðu þegar upp kom vandamál. Áhöfnin kallaði niður til leiðangursteymisins á jörðu til að láta vita af einskonar bilana eða viðvörunaljósi sem blikkaði. New York Times hefur eftir Amit Kshatriya, aðstoðarforstjóra NASA, að þetta væri „stýringavandamál“ en hann tjáði sig um málið á blaðamannafundi. Vandamálið ætti að hann sögn að geta verið leyst á nokkrum klukkustundum en það á samkvæmt frétt NYT að hafa tekist stuttu fyrir miðnætti í gær. Árið 1969 steig Neil Armstrong á tunglið, fyrstu allra manna. Hann tók yfir hundrað myndir en sú fyrsta sýnir poka sem sumir telja hafa innihaldið mannlegan úrgang.Getty Í Apollo-geimferðunum sem fluttu geimfara til tunglsins á sjöunda og áttunda áratugnum var hvorki salerni né sérstakt hreinlætissvæði um borð. Áhafnirnar notuðu sérbúna úrgangssöfnunarpoka á leið sinni til tunglsins. Þar skildu þeir svo pokana eftir, á yfirborði tunglsins, en það var gert til þess að minnka massa geimfarsins og hættu á mengun á leiðinni aftur til jarðar. Í lengri geimferðum, líkt og þegar dvalið er í Alþjóðlegu geimstöðinni, endurvinna geimfarar fljótandi úrgang og breyta honum aftur í drykkjarhæft vatn. En þar sem Artemis II ferðin er aðeins 10 daga löng mun áhöfnin losa þvag út úr geimfarinu á hverjum degi.
Artemis-áætlunin Geimurinn Alþjóðlega geimstöðin Bandaríkin Tengdar fréttir Íslendingur tók þátt í að gera tunglskotið að veruleika Artemis-áætlun NASA er ætlað að leiða til varanlegrar dvalar manna á tunglinu. Fjölmargar þjóðir koma að verkefninu en í Danmörku starfar Íslendingur sem hefur svo sannarlega lagt hönd á plóg. 2. apríl 2026 15:50 Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Fleiri fréttir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi Sjá meira
Íslendingur tók þátt í að gera tunglskotið að veruleika Artemis-áætlun NASA er ætlað að leiða til varanlegrar dvalar manna á tunglinu. Fjölmargar þjóðir koma að verkefninu en í Danmörku starfar Íslendingur sem hefur svo sannarlega lagt hönd á plóg. 2. apríl 2026 15:50