Ferðalagið hans Jeb Ivey: Spurði Inga hvort hann væri brjálaður Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. apríl 2026 08:00 Ingi Þór Steinþórsson og félagar í Snæfelli biðu með öndina í hálsinum að Jeb Ivey kæmist í tæka tíð í Stykkishólm fyrir annan leikinn gegn Keflavík í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta karla 2010. sýn sport Flestir blótuðu eldgosinu í Eyjafjallajökli í sand og ösku en ekki fólkið í Stykkishólmi. Í þriðja þætti Augnablikanna er sagan af ótrúlegu ferðalagi Jebs Ivey fyrir annan leik Snæfells og Keflavíkur í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta karla 2010 rakin.
Þegar ljóst var að Sean Burton myndi ekki geta spilað meira með Snæfelli í úrslitaeinvíginu gegn Keflavík þurftu Hólmarar að hafa hraðar hendur við að finna bandarískan leikmann. Ivey var íslensku körfuboltaáhugafólki að góðu kunnur eftir að hafa spilað með KFÍ, Fjölni og Njarðvík. Vorið 2010 var hann fastur í Finnlandi vegna eldgossins í Eyjafjallajökli og Hólmarar sáu sér leik á borði. „Fyrsta línan var: Ertu brjálaður? En svo þegar hann áttaði sig á því að ég var ekki brjálaður var hann tilbúinn,“ sagði Ingi Þór Steinþórsson, sem var þjálfari Snæfells 2010, er hann rifjaði fyrstu samskipti sín við Ivey upp. Klippa: Augnablikin - Ferðalagið hans Jeb Ivey Ivey var tilbúinn að hjálpa Snæfelli í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn en svo þurfti að koma honum til Íslands sem var hægara sagt en gert. Við tók langt og strangt ferðalag hjá bandaríska leikstjórnandanum, frá Joensuu í Finnlandi og alla leið í Stykkishólm. „Þetta er nánast lygasaga,“ sagði Hlynur Bæringsson sem var fyrirliði Snæfells á þessum tíma. Þriðji þáttur Augnablikanna, „Ferðalagið hans Jeb Ivey“, verður sýndur klukkan 20:00 á Sýn Sport Ísland í kvöld. Strax að honum loknum verður þátturinn „Kraftaverkið í Barcelona“ sýndur.
Snæfell Augnablikin Bónus-deild karla Tengdar fréttir Varð landsfræg á einni nóttu: „Hefur alveg mótað mig í gegnum lífið“ Handboltakonan Lovísa Thompson segir að það hafi verið krefjandi að verða allt í einu landsfræg á einni nóttu eftir að hún tryggði Gróttu sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil, þá aðeins fimmtán ára. 31. mars 2026 09:00 Draugamarkið í Eyjum: Kastaði medalíunni út í hraun Tómas Ingi Tómasson á enn erfitt með að sætta sig við markið sem var dæmt af honum í úrslitaleik ÍBV og ÍA um Íslandsmeistaratitilinn í fótbolta karla fyrir aldarfjórðungi. 30. mars 2026 08:02 Íslensku íþróttaugnablikin: „Hann var búinn að flauta“ Í Augnablikunum, nýjum þáttum úr smiðju Sýnar Sports, er fjallað um þekkt og eftirminnileg augnablik úr íslenskri íþróttasögu. 29. mars 2026 09:02 Mest lesið Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Fótbolti María að gera Þóri að afa Fótbolti Meiðsli, veikindi og leikbann í herbúðum Englands Fótbolti Mbappé bætti fyrir vítaklúðrið og Frakkar brunuðu í undanúrslitin Fótbolti Lamine Yamal segir „ótrúlegt“ að sjá Messi enn vera að skína á HM Fótbolti Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Körfubolti Fleiri fréttir Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Sjá meira
Varð landsfræg á einni nóttu: „Hefur alveg mótað mig í gegnum lífið“ Handboltakonan Lovísa Thompson segir að það hafi verið krefjandi að verða allt í einu landsfræg á einni nóttu eftir að hún tryggði Gróttu sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil, þá aðeins fimmtán ára. 31. mars 2026 09:00
Draugamarkið í Eyjum: Kastaði medalíunni út í hraun Tómas Ingi Tómasson á enn erfitt með að sætta sig við markið sem var dæmt af honum í úrslitaleik ÍBV og ÍA um Íslandsmeistaratitilinn í fótbolta karla fyrir aldarfjórðungi. 30. mars 2026 08:02
Íslensku íþróttaugnablikin: „Hann var búinn að flauta“ Í Augnablikunum, nýjum þáttum úr smiðju Sýnar Sports, er fjallað um þekkt og eftirminnileg augnablik úr íslenskri íþróttasögu. 29. mars 2026 09:02