Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Stefán Árni Pálsson skrifar 7. apríl 2026 11:02 Brynjar lýsir sambandinu sem hreinu helvíti fyrir son sinn. Brynja Ýr Baugsdóttir er gift þriggja drengja móður. Elstur er 18 ára, nemi í Tækniskólanum. Sindri Sindrason ræddi við Brynju í Íslandi í dag í síðustu viku en ástæðan fyrir viðtalinu er sú að strákurinn lenti í ofbeldissambandi. Eitthvað sem Brynja hafði aldrei getað ímyndað sér að gæti hent strák. „
Hann kynnist þessari stelpu og þau fara eitthvað svona aðeins að hittast og þá kemur í ljós að hún á kærasta, og svo bara deyr það út, enda er hún á föstu. Þá kynnist hann annarri konu og það er stelpa sem er eldri en hann og á börn. Hann fer í samband með henni í fyrrasumar og þá fer þessi stelpa að hafa samband aftur af því að þá var hún hætt með sínum kærasta og vildi þá fá hann aftur,“ segir Brynja og heldur áfram. „Hún sem sagt byrjaði bara að áreita son minn og þá kærustu hans. Stelpan sem hann var með þarna segir þá bara stopp og þetta sé ekki eitthvað fyrir sig og það samband bara deyr. Þá byrjar hann strax með þessari stelpu og þetta gerist náttúrulega rosalega hratt og hann er ekkert að segja mér neitt frá. Þetta er allt svolítið svona feluleikur af því að bara alveg frá byrjun þá fann hann líka alveg að þetta var eitthvað skrítið.“ Vildi hana ekki inn á sitt heimili En eftir stutt og erfitt samband hætta þau saman og hætti Brynja þá að hugsa um þessi mál. Þá hafði sambandið verið ljótt og erfitt. En þau ákveða að byrja aftur saman og segir Brynja að í ljósi þess sem á undan var gengið vilji hún ekki fá hana inn á heimilið. „Svo hættir hún aftur með honum og sendir honum skilaboð eins og „þú ert ógeð, ég vil ekki vera með þér.“ Og þá kemur hann til mín og byrjar að segja mér smá. Hún bannar honum í raun að tala almennt við annað fólk. Hún reyndi að draga úr því að hann talaði við mig og mér fannst eins og hún væri að reyna að skemma okkar samband líka. Ég var ekki sátt og var að reyna að vernda strákinn minn.“ Viðbjóður og ógeð Brynja segist hafa fengið að lesa textaskilaboð frá stelpunni og henni hafi blöskrað. „Hún talaði um að hann ætti bara að drepa sig. Hann ætti ekki að lifa lengur því hann væri bara viðbjóður og ógeð. Hann er svo mikið að spyrja hana af því hann telur sig vera ástfanginn af henni. Af hverju, hvað gerðist, hvað gerði ég rangt? Af því hann vildi alltaf meina að hann væri að gera eitthvað rangt og þess vegna væri hún svona við sig. Hún elskaði hann aldrei, hún var aldrei hrifin af honum. Hann bara hentaði.“ Hér að neðan má sjá viðtalið í heild sinni þar sem kemur í ljós hvernig málin þróuðust enn meira.
Ísland í dag Mest lesið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Fleiri fréttir Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Sjá meira