PSG segist ekki vera sigurstranglegra liðið á móti Liverpool Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. apríl 2026 14:00 Luis Enrique fagnar sigrinum á Liverpool á Anfield fyrir ári síðan en Paris Saint-Germain fór þá áfram eftir sigur í vítaspyrnukeppni. Getty/Jean Catuffe Evrópumeistarar Paris Saint-Germain kepptust við að létta pressunni af liði sínu á blaðamannafundi fyrir fyrri leik sinn á móti Liverpool í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar en leikurinn fer fram í kvöld.
Fulltrúar Paris Saint-Germain neituðu að fallast á að liðið væri sigurstranglegra en Liverpool í ljósi slaks gengis enska liðsins í deildinni heima fyrir. Það er margt í ólagi á Anfield. Liðið er fyrir löngu úr leik í baráttunni um enska úrvalsdeildartitilinn. Niðurlægt í enska bikarnum. Vaxandi spurningar um framtíð knattspyrnustjórans. Stjörnuframherji er á förum. Óánægður fyrirliði sem segir liðið hafa gefist upp. Liverpool stefnir í fyrri leik átta liða úrslitanna á miðvikudaginn í algerri ringulreið. Það er allt annað en þegar þessi sömu lið mættust í sextán liða úrslitum í fyrra. Þá var Liverpool á hraðri leið með að vinna enska úrvalsdeildartitilinn, nýi knattspyrnustjórinn Arne Slot var hetja borgarinnar og Mohamed Salah var upp á sitt besta. Aftur á móti hafði PSG átt í erfiðleikum með að komast upp úr riðlakeppni Meistaradeildarinnar og álitsgjafar efuðust um aðferðir þjálfarans Luis Enrique. PSG smaug áfram eftir vítaspyrnukeppni gegn Liverpool eftir harða baráttu í tveimur leikjum og vann síðan Meistaradeildina í fyrsta sinn með stórsigri á Inter Mílanó í úrslitaleiknum. En PSG hlustar ekki á neitt tal um að vera sigurstranglegra liðið í þetta sinn. Sigurstranglegra að ykkar mati „Sigurstranglegra að ykkar mati [fjölmiðla],“ sagði Vitinha, miðjumaður PSG, á blaðamannafundi á þriðjudaginn fyrir fyrri leikinn á Parc des Princes. „Á sama hátt og þið sögðuð í fyrra að Liverpool væri það. Jafnvel þótt Liverpool sé ekki í sínu besta formi er það samt frábært lið með frábæra leikmenn,“ sagði Vitinha. "There's no favourite" 💬Luis Enrique previews a 'difficult' clash for PSG against Liverpool and praises the style of football that Arne Slot has the Premier League champions playing 💪 pic.twitter.com/jUwRlfHU9O— Sky Sports News (@SkySportsNews) April 7, 2026 PSG er að nálgast enn einn franska titilinn en Liverpool er í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar, 21 stigi á eftir toppliði Arsenal. Eftir afhroð, 4-0 tap gegn Manchester City í átta liða úrslitum enska bikarsins á laugardaginn, sagði fyrirliðinn Virgil van Dijk að lið hans hefði „gefist upp“ og bað stuðningsmenn afsökunar. Að mínu mati er ekkert lið sigurstranglegra „Með þetta lið er ómögulegt að segja til um hver er sigurstranglegri,“ fullyrti Luis Enrique, þjálfari PSG. „Ég trúi því ekki.“ „Hverjir eru sigurstranglegri? Ef þið munið eftir síðasta ári sögðu allir að það væri Liverpool, en liðið sem komst áfram [í næstu umferð] var Paris Saint-Germain. Að mínu mati er ekkert lið sigurstranglegra,“ sagði Enrique. PSG verður án Bradley Barcola og Fabián Ruiz í fyrri leiknum á Parc des Princes, þar sem Harvey Elliott, sem nú er á láni hjá Aston Villa, tryggði Liverpool ótrúlegan 1-0 sigur á síðasta tímabili. „Arne Slot hefur talað um hversu ótrúlegur leikur þetta var,“ sagði Vitinha, sem endaði í þriðja sæti í Ballon d'Or kjörinu árið 2025. „Þeir fengu ekkert færi [í fyrri leiknum] fyrir utan markið sem þeir skoruðu og [markvörðurinn] Alisson var maður leiksins.“ Leikur Paris Saint Germain og Liverpool í kvöld verður í beinni útsendingu á SÝN Sport og hefst útsendingin klukkan 18.50 en klukkan 18.30 fer í gang upphitun fyrir Meistaradeildarkvöldið og eftir leikinn verður allt gert upp í Meistaradeildarmörkunum.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Liverpool FC Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fleiri fréttir Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Nottingham Forest - Arsenal | Gengið skelfilega að skora á þessum velli Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Thelma skoraði í toppslag og titillinn blasir við Löng bið eftir sigri lengist enn Stefán Ingi skoraði af stysta mögulega færi Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu „Þetta var allt of mikið“ FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Manzambi reyndist hetja Aston Villa Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Lyfti litlu tæki í stað gulra og rauðra spjalda Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Elísabet tjáir sig: Grátlega nálægt draumnum í þrígang Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - ÍBV 2-1| Grindavík/Njarðvík vann síðasta heimaleikinn á tímabilinu Sjá meira