Fleiri vilja standa á hálum ís Guðlaug Ingibjörg Þorsteinsdóttir skrifar 12. apríl 2026 17:02 Hreyfing er allra meina bót – það vita flestir. En vitneskja ein og sér dugir skammt ef aðstæður til iðkunar eru ekki til staðar. Ávinningur hreyfingar er óumdeildur, bæði líkamlegur og andlegur. Hún hefur áhrif á efnaskipti, hormónabúskap og almenna heilsu, auk þess að gegna lykilhlutverki í forvörnum. Þrátt fyrir þetta er ekki sjálfgefið að allir hafi raunhæfan aðgang að viðeigandi aðstöðu til að stunda reglulega hreyfingu. Skautahallir eru gott dæmi um íþróttamannvirki sem þjóna bæði almenningi og skipulögðu íþróttastarfi. Þar geta einstaklingar á öllum aldri stundað hreyfingu samhliða æfingum íþróttafélaga. En staðan á Íslandi er skýr: aðeins þrjú vélfryst skautasvell eru starfrækt allt árið um kring – á Akureyri, í Laugardal og Egilshöll í Grafarvogi. Öll eru þau löngu orðin yfirfull. Nýting þessara mannvirkja er gríðarleg. Dagskrá þeirra spannar frá árla morguns og fram á kvöld, oft frá klukkan sex og fram undir miðnætti. Þau eru fá íþróttamannvirkin sem má bera saman við slíka nýtingu. Áhugi almennings er augljós. Hjartasvellið í Hafnarfirði, sem opnaði í desember síðastliðnum, fékk um 3.000 heimsóknir á aðeins einum mánuði. Novasvellið á Ingólfstorgi fékk 12.000 heimsóknir á þeim mánuði sem það var opið. Á sama tíma sýna tölur að skráðir iðkendur skautaíþrótta eru færri en gæti verið, ekki síst vegna aðstöðuleysis. Í sumum tilvikum er einfaldlega ekki hægt að taka við nýju fólki. Sömuleiðis eru dæmi um að ekki sé pláss fyrir reglulega iðkunn annarra greina sem krefjast sömu aðstöðu, líkt og krullu og skautahlaups, jafnvel þótt áhugi sé til staðar. Þegar þetta er borið saman við aðrar greinar, til dæmis skíðaíþróttir, blasir við ákveðið ósamræmi. Þrátt fyrir færri iðkendur er aðgengi að skíðasvæðum víða gott, á meðan skautaíþróttir búa við þröngan kost. Munurinn er sá að skautahallir geta starfað allt árið, óháð veðri, og því skapað stöðug tækifæri til hreyfingar. Krafan um úrbætur er því einföld og skýr: bæta þarf aðstöðu. Það felur í sér ný mannvirki, endurbætur á þeim sem fyrir eru og mögulega uppbyggingu opinna svella. Slíkar fjárfestingar eru ekki aðeins í þágu íþróttahreyfingarinnar heldur samfélagsins alls. Greiðara aðgengi að hreyfingu skilar sér í bættri lýðheilsu. Það er staðreynd. Spurningin er hvort viljinn sé til staðar að fylgja henni eftir. Höfundur er íþrótta- og lýðheilsufræðingur og varaformaður Íshokkísambands Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skautaíþróttir Heilsa Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Skoðun Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Sjá meira
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar