Miðflokkurinn úr leik í Árborg Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 13. apríl 2026 16:41 Karl Gauti Hjaltason þingmaður Miðflokksins í Suðurkjördæmi og fyrrverandi lögreglustjóri í Vestmannaeyjum. Vísir/Vilhelm Miðflokkurinn mun ekki bjóða fram lista í Árborg í komandi sveitarstjórnarkosningum. Þingmaður flokksins í Suðurkjördæmi segir ástæðuna þá að enginn hafi mætt fyrir hönd flokksins í persónu til að staðfesta framboðið. Hann segir skorta sveigjanleika hjá fulltrúum yfirkjörstjórnar sem séu skipaðir af núverandi fulltrúum í sveitarstjórn.
Mbl.is greindi fyrst frá þar sem Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins í kjördæminu, sagði niðurstöðuna svæsna og ósanngjarna. Framboðsfrestur hafi runnið út á föstudaginn klukkan tólf á hádegi og listanum verið skilað 22 mínútum síðar en fulltrúar flokksins hefðu talið að allt væri klappað og klárt. „Formið er allsráðandi,“ segir Karl Gauti í færslu á Facebook. „22 mínútur eru látnar fella framboð Miðflokksins í Árborg. Öll okkar gögn voru tilbúin fyrir kl. 12, þar á meðal undirskriftir nægilegs fjölda meðmælenda, sem yfirkjörstjórn vissi af og voru þeim aðgengilegar. Enginn mætti frá flokknum fyrir tilskilinn tíma vegna misskilnings um að nægilegt væri að ljúka öllum formsatriðum rafrænt.“ Karl Gauti bendir á að fulltrúar í yfirkjörstjórn Árborgar séu kjörnir af núverandi fulltrúum í sveitarstjórn. Miðflokkurinn á engan fulltrúa í sveitarstjórn. Karl Gauti veltir fyrir sér hvað hefði gerst ef fulltrúi úr þeim sömu flokkum hefði gleymt sér og ekki verið mættur á slaginu tólf til að skila gögnum, hvort ekki hefði verið hnippt í hann? Ákvörðun yfirkjörstjórnar var kærð til úrskurðarnefndar kosningamála sem staðfesti úrskurð kjörstjórnarinnar í dag.
Árborg Miðflokkurinn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Fleiri fréttir Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Sjá meira