Leik lokið: Njarðvík-Grindavík 84-91 | Grindvíkingar í undanúrslit Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 14. apríl 2026 20:53 Deandre Donte Kane í leiknum í kvöld en Njarðvíkingurinn Veigar Páll Alexandersson er til varnar. Vísir/Guðmundur Þórlaugarson Deildarmeistarar Grindavíkur tryggðu sér sæti í undanúrslitum Bónusdeildar karla í körfubolta eftir sjö stiga sigur á Njarðvík í kvöld, 91-84. Grindavík tapaði fyrsta leik í einvíginu en svaraði með þremur sigrum í röð og vann því seríuna 3-1. Njarðvík var ellefu stigum yfir eftir fyrsta leikhlutann en Grindavík var skrefinu á undan eftir frábæran annan leikhluta. Spennan var í leiknum til loka en Grindvíkingar héldu út og lönduðu sigri.Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi seinna í kvöld. Bónus-deild karla UMF Njarðvík Grindavík