„Ég vil ekki líkjast öllum öðrum“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 14. apríl 2026 20:02 Amma Nadíu er hennar fremsti tískuinnblástur. Aðsend „Mesti innblásturinn í mínu lífi hefur alltaf verið amma mín,“ segir hin 25 ára gamla Nadía Sif Líndal Gunnarsdóttir, áhrifavaldur, tískuáhugakona og fyrirsæta. Nadía vinnur í tískuvöruversluninni Nínu á Akranesi og hefur sömuleiðis tekið að sér ýmis verkefni tengd markaðssetningu. Hún byrjaði að sitja fyrir þegar hún var sextán ára gömul og elskar að klæða sig upp fyrir öll tilefni.
Blaðamaður ræddi við Nadíu Sif um tískuna, persónulegan stíl og fleira. Hvað finnst þér skemmtilegast við tískuna? Tíska er ákveðin tjáning. Mér finnst skemmtilegast að sjá fólk þora að vera það sjálft og leika sér með stílinn sinn. Tíska er mikil tjáning hjá Nadíu.Aðsend Hver er uppáhalds flíkin þín og af hverju? Ég er miklu meira fyrir „statement“ yfirhafnir en eina uppáhalds flík. Eins og staðan er núna elska ég Balenciaga úlpuna mína og rauðu retro Polaris úlpuna. Yfirhafnir geta gert allan klæðaburðinn betri. Nadía í uppáhalds úlpunni sinni hér með kærasta sínum, körfuboltakappanum Lucien Christofis.Aðsend Eyðirðu miklum tíma í að velja föt hverju sinni? Ef fittið virkar þá nei. Ef ekki þá get ég eytt ótrúlega miklum tíma í að finna rétta lúkkið. Ég vil alltaf mæta vel klædd. View this post on Instagram A post shared by NADÍA SIF LÍNDAL (@nadiiasif) Hvernig myndirðu lýsa stílnum þínum? Ég vil ekki líkjast öllum öðrum. Ég leik mér með tísku og ég kýs frekar að vera of fín eða overdressed en underdressed. Nadía Sif vill alltaf mæta flott klædd.Aðsend Hefur stíllinn þinn breyst með tímanum? Hann hefur þróast með mér. Því eldri sem ég verð, því meðvitaðri verð ég um hvað virkar og hvað ekki. View this post on Instagram A post shared by NADÍA SIF LÍNDAL (@nadiiasif) Nýturðu þess að klæða þig upp? Algjörlega. Það er eitt af því skemmtilegasta sem ég geri. Þegar mér líður vel í klæðaburði þá líður mér vel yfir höfuð. Góður klæðaburður gerir mikið fyrir Nadíu og þessi úlpa er í miklu uppáhaldi hjá henni.Aðsend Hvað skiptir þig mestu máli í klæðaburði? Að skera sig úr og vera óhrædd við að klæðast því sem mér finnst flott. Nadía er óhrædd við að skera sig úr.Aðsend Hvaðan sækirðu innblástur? Ég nota mikið samfélagsmiðilinn Pinterest en mesti innblásturinn í mínu lífi hefur alltaf verið amma mín. Hún er algjör tískudrottning og gömlu flíkurnar frá henni eru á meðal minna uppáhalds hluta í dag. Amma Nadíu er algjör skvísa.Aðsend Ertu með einhver boð eða bönn þegar það kemur að klæðaburði? Alls ekki, það er hægt að leika sér svo mikið með tísku. Eitthvað sem manni hefði mögulega aldrei dottið í hug að myndi ganga saman getur algjörlega gengið upp. View this post on Instagram A post shared by NADÍA SIF LÍNDAL (@nadiiasif) Hver er eftirminnilegasta flík sem þú hefur klæðst? Tvær standa upp úr. Annars vegar silfurkjóll sem Sædís Ýr saumaði og hins vegar DKNY gallakjóll/jakki frá ömmu minni. Báðar hafa mikla sögu og ég elska þær. View this post on Instagram A post shared by NADÍA SIF LÍNDAL (@nadiiasif) Hvað er heitast fyrir 2026? Kúrekavíbrur, lög af léttum efnum og gallastuttbuxur, svokallaðar „jorts“, eru sömuleiðis að koma sterkt inn. View this post on Instagram A post shared by NADÍA SIF LÍNDAL (@nadiiasif) Býrðu yfir einhverju góðu ráði þegar það kemur að tískunni? Farðu út fyrir þægindarammann. Það er þar sem skemmtilegasta tískan verður til. Skemmtilegustu tískustundirnar gerast út fyrir þægindarammann að sögn Nadíu.Aðsend
Tíska og hönnun Tískutal Mest lesið Ástir og átök milli Laufeyjar og Hudsons Williams Tónlist Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Lífið Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Lífið „Ég vil ekki líkjast öllum öðrum“ Tíska og hönnun „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ Lífið Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn Tónlist Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Lífið Höfði í stóru hlutverki í æsispennandi stiklu Bíó og sjónvarp Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Lífið Fleiri fréttir „Ég vil ekki líkjast öllum öðrum“ Gabbana stígur til hliðar hjá Dolce & Gabbana Euphoria stjörnurnar gáfu ekkert eftir Kröfuharður og með öll smáatriði á lás Feiminn í æsku en fann sig í tískunni Elskar að klæða sig upp fyrir jafnvel ekkert Guðbjörg hlaut heiðursverðlaun í London Skarsgård seiðandi senuþjófur Dorrit sprengir skvísuskalann á skíðum Hátískuhönnuður yfir í hraðtískuheiminn Klæddist fimm kílóum af mannahárum „Meðan ég er ánægð skiptir álit annarra engu“ Óþekkjanleg á Óskarnum Súperstjarna tískuheimsins klæddi Laufeyju Elín Hall í sjóðheitri íslenskri hönnun Þau flottustu og mest púkó á Óskarnum Hvetur karlmenn til að leggja sig meira fram Heitasti keramiker landsins í fíling Chappell Roan elskar Fischersund Tískan vopnið í keppni gegn krabbameini Slakur með 62 milljón króna hálsmen Björk glæsileg í indverskri hönnun Sjá meira