Íslenski boltinn

Stuðnings­menn kosta Þór og Víking hundruð þúsunda

Sindri Sverrisson skrifar
Stuðningsmenn Þórs höfðu góða ástæðu til að kætast á langþráðum leik í Bestu deildinni. Blysin þeirra kosta félagið hins vegar skildinginn.
Stuðningsmenn Þórs höfðu góða ástæðu til að kætast á langþráðum leik í Bestu deildinni. Blysin þeirra kosta félagið hins vegar skildinginn. vísir/Guðmundur

Knattspyrnudeild Þórs þarf að greiða 250.000 króna sekt til KSÍ, og knattspyrnudeild Víkins 150.000 króna sekt, vegna stuðningsmanna sem kveiktu á blysum í fyrstu umferð Bestu deildar karla í fótbolta.

Kveikt var á blysum á fyrsta leik tímabilsins, þegar Víkingur og Breiðablik mættust í Víkinni. Samkvæmt niðurstöðu aga- og úrskurðarnefndar KSÍ voru það stuðningsmenn Víkings sem kveiktu á blysum fyrir leik og þegar Gylfi Þór Sigurðsson jafnaði metin í leiknum.

Reykurinn frá blysum á leik Víkings og Breiðabliks sást vel í sjónvarpsútsendingu.Sýn Sport

Þá er þess getið að stuðningsmenn Víkings hafi ítrekað kallað „KSÍ-mafía“ inn á völlinn og hefur það einnig áhrif á sektarupphæðina sem eins og fyrr segir var 150.000 krónur í þessu tilfelli.

Blysin á upphafsleik Bestu deildarinnar höfðu sín áhrif á útsýnið um stundarkorn.vísir/Anton

Stuðningsmenn Þórs kveiktu svo í fleiri blysum, eða minnst fjórum, á Hlíðarenda þar sem þeir fögnuðu fræknum sigri gegn Val í fyrsta leik Þórs í efstu deild síðan árið 2014.

Þór fékk sekt upp á 250.000 krónur vegna þessa en hámarks sektarupphæð félaga, þegar áhorfendur gerast sekir um vítaverða eða hættulega framkomu, er 500.000 krónur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×