STRAX-D Rúnar Freyr Gíslason skrifar 17. apríl 2026 07:33 Ég fæ sömu spurninguna aftur og aftur þegar ég tala við fólk í borginni, hvort sem það eru almennir borgarar eða forsvarsfólk félagasamtaka: „Af hverju gerist ekkert í Reykjavík?“ Mál þvælast frá fundi til fundar, frá einni nefnd tilannarrar. Það er rýnt, skipulagt og greint. En þegar kemur að því að klára mál, þá stoppa þau einhvers staðar í kerfinu. Á meðan bíða borgarbúar. Foreldrar bíða eftir leikskólaplássi, fólk situr fast í umferð og skólar glíma við viðhaldsvanda sem hefði mátt leysa fyrir löngu. Ég skil vel að fólk sé búið að missa þolinmæðina. Á síðustu árum hefur borgarkerfið þanist út. Starfsmönnum Reykjavíkurborgar hefur fjölgað um tugi prósenta á fáum árum og borgin er í dag stærsti vinnustaður landsins. Auðvitað þarf stór borg öflugt starfsfólk, en því miður hefur þjónustan við borgarbúa ekki batnað í hlutfalli við stækkun kerfisins. Á sama tíma borga íbúar Reykjavíkur hæsta útsvar sem leyfilegt er og mjög há fasteignagjöld. Þetta fólk á rétt á því að borgin þeirra virki. Það má tryggja, ef rétt er á málum haldið. Ég hef reynslu af framkvæmdastjórnun þar sem hlutirnir þurfa að klárast. Þar er ekki nóg að funda, það þarf að skila niðurstöðu, ná árangri. Mér finnst að í ráðhúsinu þurfi að innleiða þá árangursdrifnu hugsun.Við þurfum að einfalda kerfið, fækka flækjustigum, taka ákvarðanir hraðar og skila árangri. Við þurfum að byggja meira og hraðar svo fólk komist í húsnæði. Við þurfum að tryggja leikskólapláss og halda betur utan um skólana okkar. Hvað ætli það séu komin mörg ár síðan Samfylkingin lofaði því að eyða biðlistunum? Muniði það? Ég giska á að börnin sem voru á fyrstu biðlistum sem Samfylkingin lofaði að eyða séu núna komin með sín eigin börn á þessa sömu biðlista. Ég rakst á auglýsingu úr borgarstjórnarkosningunum árið 2006 þar sem Dagur, fyrrverandi borgarstjóri, lofar: "Setjum Sundabraut alla leið og Öskjuhlíðagöng í forgang og útfærum Miklubraut í stokk." 2006. Og ef mig misminnir ekki, þá var þessu lofað fyrir allar kosningar fram til þessa. Núna, 20 árum eftir að loforðið var fyrst gefið, er ekki einu sinni byrjað á neinu af þessu. Við þurfum að fara að klára hlutina. Skila borgarbúum þeim árangri sem þeir eiga skilið. Ég og allt það öfluga og fólk sem skipar lista Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar 16. maí erum tilbúin að bretta upp ermar, taka til í rekstri borgarinnar og skila árangri, STRAX-D. Höfundur skipar 5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Rúnar Freyr Gíslason Sjálfstæðisflokkurinn Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar