„Algjört kjaftæði og menn verða að fara taka sig aðeins saman í andlitinu“ Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 17. apríl 2026 21:05 Lárus Orri Sigurðsson fær gult spjald í leiknum í kvöld Guðmundur/Vísir Skagamenn heimsóttu Breiðablik í annari umferð Bestu deild karla í kvöld og þurftu að sætta sig við svekkjandi 1-0 tap á Kópavogsvelli. Lárus Orri Sigurðsson var að vonum svekktur eftir leik. „
Mér fannst við í fyrri hálfleik ekki nógu góðir, við vorum of passívir og við leyfðum þeim að spila boltanum alltof mikið“ sagði Lárus Orri Sigurðsson þjálfari ÍA eftir leik. „Við stigum ekki nógu hátt á þá og vorum í raun kannski áhorfendur stóran hluta af fyrri hálfleik. Það er eitthvað sem að við viljum ekki standa fyrir að leyfa liðum bara að spila fyrir framan okkur“ „Fyrri hálfleikur hjá okkur var ekki góður en samt í raun voru þeir ekkert að skapa sér neitt þannig lagað sér og við fáum alveg dauðafæri undir lok fyrri hálfleiks“ Það var allt annað að sjá til Skagaliðsins í seinni hálfleik og þeir mættu af krafti út í seinni. „Í seinni hálfleik þá kom allt annað lið út hjá okkur og við stigum miklu harðar upp á þá og bara herjuðum á þá í 45 mínútur í seinni hálfleik og fengum nokkur mjög góð færi“ „Ég er að reyna að hugsa hvaða færi þeir fengu í leiknum og það er ekkert sem poppar upp í hausinn þannig jú ég er alveg hundsvekktur“ „Ég er hundsvekkur með frammistöðuna hjá okkur að hluta til í fyrri hálfleik en líka bara fúll yfir því að fara ekki með neitt héðan“ Lárus Orri Sigurðsson hélt svo eldræðu um frammistöðu þriðja liðsins í kvöld en sigurmark Breiðabliks kom eftir vítaspyrnu sem var heldur vafasöm þegar hendi var dæmd á Viktor Jónsson inn í teig en boltinn virtist fara af lærinu á honum og upp í hendina sem hefði þar að leiðandi ekki átt að vera vítaspyrna. „Dómarateymið var lang lélegasta liðið á vellinum, lang lélegasta. Það er bara dómarinn sem verður þess valdandi að við töpum leiknum á endanum“ „Hann dæmir á okkur víti sem átti ekki að vera víti og við áttum svo að fá klárt víti í seinni hálfleik þegar það er neglt í höndina á honum Höskuldi“ „Þegar dómararnir missa svona stór atvik þá er það bara mjög slæmt“ Þetta var þó ekki það eina sem gerðist í leiknum en það kom rautt spjald á bekkina undir lok leiks en þeir fengu líka gult í lok fyrri hálfleiks. „Það voru smá læti hérna, ekkert stórt og stjórn hans á leiknum var nátturlega bara alveg út í hött“ „Fjórði dómarinn sem er hérna á hliðarlínunni, ég veit ekki hvað hann var að gera allan leikinn og þetta er ekki í fyrsta skipti sem að við erum með þennan strák sem fjórða dómara. Hann er bara arfaslakur í þessu“ „Að þeir skuli gefa Jón Guðna [Fjóluson] og Deano [Dean Martin] rauð spjöld fyrir þetta. Þeir voru að takast aðeins á og voru að rífast þeir tveir sín á milli og svo takast bara menn í hendur eftir leik og þetta er búið“ „Það er verið að búa til einhverja dramatík úr þessu og henda rauðum spjöldum á menn. Þetta er bara algjört kjaftæði og menn verða að fara taka sig aðeins saman í andlitinu og fara leyfa mönnum að vera aðeins ástríðufullir í þessu og ekki vera búa til einhverja dramatík“ „Það gerðist svo fyrir hálfleikinn að það var einhver fundur með fyrirliðum og svo fundur með sitthvorum þjálfaranum áður en við fórum í seinni hálfleikinn. Þetta er bara algjört bull“ sagði Lárus Orri Sigurðsson.
Fótbolti Besta deild karla ÍA Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Íslenski boltinn Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Fleiri fréttir Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham „Það eru bara engin orð til þess að lýsa þessu“ Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl Semenyo frá í allt að átta vikur „Hann kvartar yfir öllu“ Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Frá út tímabilið vegna blóðtappa í lungum KA í hræðilegri stöðu og Kane verður að spila í kvöld Kane lentur og má spila í kvöld Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Mest pirrandi leikmaðurinn hrækti á andstæðing Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sjá meira