Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Eiður Þór Árnason skrifar 18. apríl 2026 15:54 Alex Óli og Pálmi ræddu við Ernu Hrönn útvarpskonu um tónlistarútgáfuna. Bylgjan Tilviljun réði því að hinn tólf ára stórsöngvari Alex Óli Jónsson gaf út lagið Himinn og jörð sem Björgvin Halldórsson söng svo eftirminnilega á dánardegi tónlistarmannsins.
Alex vakti fyrst landsathygli þegar hann tók þátt í Jólastjörnunni og Jólagestum Björgvins árið 2022. Hann hefur sungið víða síðustu ár og vakið athygli fyrir einstaka rödd sína. Kom hann meðal annars fram á minningartónleikum tileinkuðum Vilhjálmi Vilhjálmssyni í Eldborg í Hörpu, tónleikum Gunnars Þórðarsonar og á eigin jólatónleikum í Lindakirkju í desember. Þar kynntist hann Pálma Sigurhjartarsyni tónlistarmanni og fljótlega vildu þeir vinna frekar saman og taka upp tónlist. Klippa: Erna Hrönn: Tilviljun réði að lagið kom út á dánardegi Björgvins „Alex er 12 ára. Svo veit maður ekki hvernig röddin verður eftir tvö ár,“ sagði Pálmi í samtali við Ernu Hrönn á Bylgjunni. Þeir hafi því farið í hljóðver til Vignis Snæs og hljóðritað þrjú lög í mars. Valdi Alex lögin Himin og jörð, Líf og Sorry Seems to Be the Hardest Word með Elton John. Pálmi segir það hafa verið meðvitaða ákvörðun að vera með lágstemmdan hljóðfæraleik í upptökunum svo rödd Alex fengi að njóta sín sem best. Himinn og jörð kom út níunda apríl en sama dag varð Björgvin Halldórsson bráðkvaddur. Pálmi og Alex nýttu tækifærið í viðtalinu og sendu fjölskyldu, ættingjum og vinum, Björgvins kveðju. Hlusta má á nýja útgáfu Alex af Himinn og jörð í spilaranum. Alltaf viljað verða söngvari Alex sagði í samtali við Ernu Hrönn á Bylgjunni að hann hefði sungið síðan hann man eftir sér og alltaf dreymt um að verða söngvari. Þá hefur hann einnig verið í dansinum frá því að hann var þriggja ára gamall. Alex hefur komið víða við á stuttum ferli og fór meðal annars með sigur af hólmi í söngvakeppni barnanna á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum með lagið Lítill drengur sem Vilhjálmur Vilhálmsson gerði frægt. Síðar flutti hann sama lag á stórtónleikum tileinkuðum Vilhjálmi í Eldborg í Hörpu.
Tónlist Andlát Björgvins Halldórssonar Mest lesið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Sahara Ray látin Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Richard Riehle látinn Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira